Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1970, Page 14

Frjáls verslun - 01.10.1970, Page 14
12 FRJALS VERZLUN Ostaðfestar fregnir A FLAKKI Niðurskurður á Hvanneyrarfé ? Fyrir nokkru kom upp garnaveiki í fé Hvanneyrarbúsins, og hefur heyrzt, að það verði skorið niður. Hvanneyri er á garna- veikisvæði, en veikinnar hefur ekki orð- ið vart þar fyrr. Á Hvanneyri og víðar hafa verið rækt- aðir upp stofnar fjár með alhvíta ull og gærur. Stofninn á Hvanneyri er mikilvæg- ur í þessari ræktun, og er það því áfall og mikið tjón, að þurfa að farga honum. Aðstoðarráðherra viðskiptamála ? Skv. nýjum lögum um Stjórnarráðið, er heimilt að útnefna aðstoðarráðherra. Það hefur flogið fyrir, að hugmynd sé uppi um skipun aðstoðarráðherra viðskiptamála, enda ekki talin vanþörf á í kjölfar stórauk- ins vafsturs í viðskiptaheiminum yfirleitt með alþjóðlegum samsteypum og miklum sviftingum. Og a. m. k. mun vera laust herbergi í viðskiptamálaráðuneytinu, sam- boðið slíku embætti, þótt þar sé annars þröngt setinn bekkur. Hörð ásókn í ríkiskassann Nú hefur verið tilkynnt, að útgefendur fjögurra dagblaða hafi stofnað hlutafélag um offsetprentsmiðju, sem ætlunin er að koma upp á næstu tveim árum. Er sagt, ab stofnkostnaður verði um 23 milljónir kr., og að sameiginlegur sparnaður, miðað við- núverandi ástand hjá þessum fjórum blöð- um, verði 11 milljónir á ári. Út af fyrir sig verður vart talið, að um óeðlilega ráð stöfun sé að ræða. En það er mönnum hul- in ráðgáta, hvernig minnstu blöðin, Al- þýðublaðið og Þjóðviljinn, ætla að fjár- magna breytinguna af sinni hálfu, enda bæði blöðin sögð stórskuldug, og Alþýðu- blaðið var við það að stöðvast í haust af þeim sökum. Verður að ætla, að skuldir þessar verði blöðin að greiða jafnframt. Að undanförnu munu tvær nefndit tengdar Alþingi hafa unnið að atbugun á hugsanlegum styrkveitingum til dagblað- anna eða stjórnmálaflokkanna, en ekki er ljóst, hvort samstaða næst um einhvers konar styrk. Ólíklegt er þó að einhugur verði um styrk til dagblaðanna, þar sem einn flokkurinn hefur engin tengsl við dagblað, og aðeins eitt dagblaðanna, Tím- inn, er gefið út beinlínis af stjórnmála- flokki. En formið skiptir ekki höfuðmáli, ásóknin af hálfu sumra dagblaðanna í rík- iskassann er hörð, og að auki 'hefur verið beðið um ríkisábyrgð vegna hinnar fyrir- huguðu offsetprentsmiðju. En verði styrkur veittur í einhverju formi, mætti spyrja: Hvers eiga þeir að gjalda, sem ekki reka einsýna flokkspóli- tík? Stórhuga, en í miklum vanda Akureyringar hafa unnið að því síðustu misseri, að efla atvinnulíf bæjarins, enda engin vanþörf á, þar sem atvinnuleysið svarf hvað harðast að. Einkum ‘hefur ver- ið unnið að eflingu iðnaðar og umbótum í samgöngumálum til að tryggja flutninga og verzlun. Á döfinni er nú að endurnýja togaraflota Ú. A., og er lagt kapp á að iðn- aðurinn í bænum njóti verkefnisins. Nú mun svo komið, að skortur á fag- lærðum iðnaðarmönnum er orðinn tilfinn- anlegur, og skortur á vinnuafli í fleiri greinum mun á næsta leyti, ef atvinnu- uppbyggingin gengur skv. áætlun. Aðflutn- ingur fólks er því næsta mál á dag- skrá hjá Akureyringum, að því er bezt verður séð. Þar er meira vandamál á ferð- inni en menn kunna að ímynda sér í fljótu bragði. Húsnæði er ekki fyrir hendi og skólahúsnæði fyrir skyldunáms- stigið ekki heldur. í þessum efnum verður því að gera úrbætur skjótt, ef nýta á það fjármagn á fullnægjandi hátt, sem lagt hef- ur verið og er í atvinnuuppbyggingu. Nýfni getur borgað sig Kjötkaupmenn henda yfirleitt svoköll- uðu kjötsagi, sem fellur til við sögun á kjöti hvers konar, og mun það geta orðið nokkurt magn, Það álit hefur komið fram, að kjötsagið sé úrvalshráefni í minkafæðu, og væri það hagnýtt þannig, gætu feng- izt fyrir það allnokkrar krónur. Heyrst 'hef- ur ágizkun um kvart milljón króna verð- mæti á mánuði frá kjötkaupmönnum í Reykjavík einum saman. Það mætti hugsa málið fyrir færri hugsanlegar krónur. iii

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.