Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1970, Blaðsíða 29

Frjáls verslun - 01.10.1970, Blaðsíða 29
FRJALS VER2LUN 27 mestur hlutinn af því er að- fluttur. Það mun vera farið að bera á því að fólk sem er að setja sig niður velji Hafnar- fjörð, jafnvel þótt það stundi vinnu í Reykjavík. Það er ekki svo stórum mikið lengra frá Firðinum niður á torg, en t. d. frá Breiðholti, og strætisvagnar ganga á stundarfjórðungs fresti á daginn. Ef við snúum aftur að álver- inu, voru það ekki bara ein- staklingar sem höfðu atvinnu þar, verktakar fengu einnig drjúgan skilding í sinn hlut. Þá greiddu erlendir verktakar gjöld til bæjarins og erlendir starfsmenn greiddu þar útsvör. Síðan verksmiðjan fór í gang hefur svo hluti af framleiðslu- gjaldinu verið greiddur til Hafnarfjarðar. Árið 1969 nam sá hluti 3 milljónum, árið 1970 nam hann 12 milljónum og árið 1971 verður hann um 18 millj- ónir. Þá eignuðust Hafnfirðing- ar nýja höfn í Straumsvík með byggingu álversins. Auk þessa, og fiskiðnaðarins sem nefndur hefur verið lítillega, má svo minna á Raftækjaverksmiðj- una hf., sem hefur að vísu þurft að líða mikið vegna innflutn- ingsins, en er þó enn í fullu fjöri. VERZLUN. Verzlun í Hafn- arfirði á að vonum við stað- bundna örðugleika að etja. Þar er fjöldi ágætra verzlana, en í Reykjavík eru þær margfalt fleiri, og þangað er svo stutt að margir fara þangað í leið- angra til að vera vissir um að hafa nægilegt úrval. Þó hefur oft verið deilt á skipulag verzl- unarmála í Reykjavík, eða skipulagsleysi eins og það er stundum nefnt, og mikið skammast yfir því að verzlun- um sé hrúgað upp með nokk- urra metra millibili án alls til- lits til þarfa o. s. frv. Hafnfirð- ingar telja sig hins vegar hafa orðið áþreifanlega vara við að þar sem verzlanir eru stærstar og flestar, er verziað mest. Þó hefur það verið nokkur huggun harmi gegn að sjá ein- staka R-bíl læðast um Fjörðinn, þegar mest er að gera í jóla- ösinni í höfuðborginni. Þar er líklegast á ferðinni kúguppgef- in Reykjavíkurfjölskylda, sem er búin að fá svo mörg trömp ofan á líkþornin að hún hef- ur flúið á rólegri mið. En Hafnfirðingar þyrftu að hugleiða fyrir sjálfa sig, að heimaverzlunin eflist fyrst þeg- ar þeir fara að beina sem mestu að viðskiptum sínum til 'hennar. Hún vex ekki að sjálfu sér. Og þá eykst líka úrvalið í hafnfirzkum verzlunum jafn- harðan. Það er tvíþættur gróði og gagnkvæmur. FÉLAGSLÍF. Þegar veitinga- húsið Skiphóll tók til starfa var á sumum að skilja að það endaði nú með að Hafnar- fjörður hlyti sömu örlög og Sódóma og Gómorra. Ekki hafa þó orðið teljandi breytingar á vínmenningu Hafnfirðinga, og víst er að mikill fengur var að húsinu fyrir alls konar félags- starfsemi. Æsku Hafnarfjarðar hefur heldur ekki verið gleymt. Bær- inn keypti eignir Jóns Gísla- sonar, þar á meðal allstóra ver- búð, og afhenti Æskulýðsráði bæjarins. Húsið var endurnýjað og lagfært að innan, og þar unir hafnfirzk æska sér á síð- kvöldum, sérstaklega á því sjónvarpslausa. 1. Strandgatan er smám saman að taka á sig svip nýja tímans. Þar liefur lijarta Hafn- arfjarðar slegið, þar er hað og verður. 2. Það er borgarblær yfir Firðinum, bæjarstæðið er sér- stætt frá náttúrunnar hendi, og þannig er einnig um höfnina. Þessar náttúrugjafir liafa Hafn- firðingar hagnýtt sér vcl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.