Frjáls verslun - 01.10.1970, Blaðsíða 27
FRJÁLS VERZLU Nf
25
tryggi sig þannig að bæturnar
nemi allt að 10.000 kr. á viku.
Að öðru leyti eru þessar trygg-
ingar gífurlega margþættar og
þá auðvitað iðgjöldin.
FV: Eru iðgjöldin af þessum
tryggingum skattfrjáls?
Baldvin: Nei, það er nú ekki
svo vel og verður að lagfæra
það. Það væri eðlilegt að ið-
gjöldin væru skattfrjáls, en að
tryggingarbætur yrðu gefnar
upp til skatts. í þessu sam-
bandi þyrfti einnig að 'hækka
þá upphæð líftryggingarið-
gjalds, sem tekin er til
greina sem skattfrádráttur.
Þegar við tölum um skatta,
langar mig til að benda á
furðuástand, sem hvergi þekk-
ist nema hér á landi og það er,
að söluskatt verður að greiða af
flestum tryggingum Það þekkt-
ist hvergi annars staðar í heim-
inum, að mönnum sé refsað fyr-
ir að veita sér öryggi. Finnst
mér að hið opinbera ætti alvar-
lega að íhuga, hvort ekki sé
hægt að afnema söluskatt af
tryggingum almennt.
FV: Hvers vegna er ekki
lögð meiri áherzla á að selja al-
rnennar líftryggingar hér?
Baldvin: Ég tel persónulega
að efnahagsástandið hér og
verðbólgan geri það að verk-
um að grundvöllur fyrir al-
mennum líftryggingum sé mjög
veikur og sjálfur myndi ég ekki
ráðleggja mönnum að kaupa
slíkar líftryggingar. Hér á ég
við líftryggingar. sem borg-
ast út við 65-70 ára aldur. Aft-
ur á móti höfum við hér svo-
kallaða stórtryggingu, sem er
þannig uppbyggð, t. d. að
maður, sem er að byggja,
tryggir sig fyrir skuldum og
síðan eftir því sem skuldirnar
minnka ár frá ári, læk'kar
tryggingin.
FV: Eiga menn þá yfirleitt
ekki að líftryggja sig?
Baldvin: Jú, eins og ástand-
ið er í okkar þjóðfélagi í dag
álít ég að menn eigi að taka
stórtrygginguna, en bezta
lausnin fyrir gamla fólkið
væri stofnun eins allsherjarlíf-
eyrissjóðs, „Landslífeyris-
sjóðs“. Þetta ætti að vera sjálf-
sögð þróun í okkar veiferðar-
þjóðfélagi. Hér er smálífeyris-
sjóðum dritað út um allt og
þeir verða aldrei annað en smá-
lánasjóðir fyrir viðkomandi að-
ila.
FV: Yrði hér ekki um að
ræða eitt ríkisbáknið enn?
Baldvin: Alls ekki. Við borg-
um fjölda iðgjalda til Trygg-
ingastofnunar ríkisins og eitt
iðgjald í viðbót breytti engu
og það þyrfti ekki einu sinni
að bæta við einum starfsmanni.
FV: Og að lokum Baldvin,
þetta klassíska?
Baldvin: Ætli það sé þá ekki
helzt tryggingafélög og að-
stöðugjaldið. Er það ekki ein-
'kennilegt, að eftir því sem
tryggingafélögin tapa meira,
verða þau að greiða hærra að-
stöðugjald?
TECHMIITIC er bylting í gerð rakvéla, ekkert rakblað, nú stillanleg
j?
rv 1
\
Gillette Techmatic er nútíma rakvél. Ekkert
blað, heldur stálband, sem er undið upp éins
og filma i myndavél. Það eru fimm úrvals
raksturseggjar á hverju rakbandi. Hver egg
gefur marga mjúka og þægilega rakstra. Þegar
þér viljið skiþta um egg, þá snúið arminum
og ný egg rennur fram.
Það er merkiskifa, sem sýnir yður, hve
margar eggjar eru eftir hverju sinni. Auk þess
er stilliarmur, sem gefur yður val á fjórum
mismunandi stillingum á rakþandið í sam-
ræmi við skegg yðar og húð. Techmatic er
vandað rakáhald —•. nútíma rakvél.
& -
TECHMATIC
Gillette TECHMATIC - Fullkominn rakstur með nútíma rakvél