Frjáls verslun - 01.05.1971, Qupperneq 42
42
GREINAR OG VIÐTÖL
FRJÁLS VERZLUN NR. 5 1971
Sóttvarnir og
ónæmisaðgerðir
Mikilvægast er að fólk
hafi ónæmisaðgerðir í
lagi ef það hyggst ferðast
utan Evrópu, en ekki er
þörf á neinum ónæmis-
aðgerðum á ferðalögum
innan Evrópu nema vitað
sé um einhverjar farsótt-
ir. Þó mun vera krafizt
bólusetningar við tauga-
veiki og taugaveikibróð-
ur í sumum af Austur- Ev-
rópulöndunum. Eftirfar-
andi meginreglur eru
gerðar um bólusetningar:
Fyrir ferðalög í Asíu skal
bólusett við kúabólu,
taugaveiki, taugaveiki-
bróður. gulu og Kóleru.
Fyrir ferðalög í Afríku er
krafist þess sama. í Aust-
urlöndum nær er krafizt
bólusetningar við tauga-
veiki og taugaveikibróð-
ur og Kóleru, en í Amer-
íku og Astralíu er nægj-
anlegt að vera bólusett-
ur við kúabólu.
Vegabréf og
áritanír
Einföld regla gildir um
notkun vegabréfa á ferða-
lögum erlendis. Vegabréf
þurfa menn að hafa í öll-
um utanlandsferðum
nema til Norðurlanda.
En aftur á móti er mis-
jafnt hvort áritun þarf á
vegabréfin eða ekki. ís-
lendingar þurfa ekki árit-
un til þess að fá að fara
inn í lönd í Vestur-Ev-
rópu, svo og nokkur af
Austur-Evrópulöndunum,
t. d. Júgóslavíu og Búlg-
aríu. Flest ríki í Afríku
og Asíu krefjast vega-
bréfsáritana en þó eru
þar nokkrar undantekn-
ingar. Til dæmis þarf
ekki áritun til þess að
komast til Marocco, Tún-
is og ísrael. Vegabréfsá-
ritun er nauðsynleg þeg-
ar farið er til Bandaríkj-
anna.
Yfirleitt er hægt að fá
vegabréfsáritun til styttri
dvalar í viðkomandi landi
á landamærum þess eða á
flugstöð þegar komið er
til landsins.
SLIXIMA:
Haliorca og Afríka
Frá Pa.Ima á Mallorca.
Ferðaskrifstofan Sunna hefur nú starfað í 14 ár og rekur um-
fangsmikla starfsemi. Á síðasta ári tóku um 4400 manns þátt
í skipulögðum hópferðum á vegum Sunnu til útlanda, en ferða-
skrifstofan annast hópferðir til fjölda landa. Vinsælastar hafa
hópferðirnar til Mallorca verið, en þangað fara um 35% af
hópferðarfarþegum Sunnu. Næstvinsælastar eru hópferðir um
Norðurlöndin. Sunna hefur haldið uppi reglubundnu leiguflugi
beint til Spánar og Norðurlandanna undanfarin ár en það er
nýjung í íslenzkum ferðamálum. f Kaupmannahöfn og Palma
á Mallorca rekur Sunna eigin skrifstofur.
Ferðaskrifstofan Sunna gengst fyrir 15 ferðum til Mallorca
á tímabilinu frá maíbyrjun til loka september. Hægt er að velja
2-4 vikur á Mallorca og velja má milli ferða með eða án við-
komu í London. Verð er nokkuð misjafnt eftir árstímum, svo
og vali hótela, en hægt er að fá hálfs mánaðar ferð frá 11.800
kr. upp í 27.600 kr. Á Mallorca er veðursæld mikil og er staðurinn
jafnt sóttur af Spánverjum sjálfum sem öðrum Evrópubúum.
Á eyjunni er fjöldi hótela og um 200 baðstrendur.
Auk hópferða til Mallorca og Norðurlandanna býður Sunna
upp á fjöldamargar sérkennilegar og skemmtilegar hópferðir,
má þar nefna hnattferð á 24 dögum, hópferð á Karneval í Rio
Janeiro í Brasilíu og síðast en ekki sízt ,,safari“ og baðstrandar-
ferð til Afríku. Þar er um hálfs mánaðar ferð að ræða til Kenya,
Uganda og Tansaníu og er þetta í fyrsta sinn sem íslendingum
gefst kostur á ódýrri hópferð á þessar slóðir. Verð ferðarinnar
er 49.800 kr.
Helmingur starfsemi Sunnu er bundinn við einstaklingsferðir
og ferðir fyrirtækja, en það fer vaxandi að fyrirtæki láti ferða-
skrifstofur annast skipulag viðskiptaferða sinna.
Innfæddir Kenyubúar dansa.