Frjáls verslun - 01.05.1971, Blaðsíða 57
57
FRJÁLS VERZLUN NR. 5 1971
Menntun
Offramfieiðsla á
menntamönnum
Víða um heim hefur orðið
vart offramleiðslu á mennta-
mönnum. Það hefur verið al-
menn trú, að enginn einstakur
hlutur sé þjóð eins mikilvæg-
ur eins og að hafa nóg af mennt-
uðu íólki, sérstaklega í þróun-
arlöndunum. Víða hefur farið
svo, að menntamenn hafa orðið
allt of margir á vissum sviðum
og þjóðíélagið ekki haft rúm
fyrir þá. Til dæmis eru um 50
þúsund atvinnuiausir verk-
fræðingar í Indlandi, landi sem
vissufega þarínast verkiegra
framkvæmda.
í Bandarikjunum, hefur þessi
þróun tekið þá stefnu, að of-
framleiðsla er á kennurum og
mönnum með doktorsgráðu í
visindafögum. Orsök þessa er
að nokkru leiti sá mikli áróður
fyrir vísindamenntun, sem
hófst í Bandarikjunum eftir
fyrstu geimskot Russa fyrir 14
árum. Þá drógu margir þá á-
lyktun, að tæknimenntun í
Bandaríkjunum heiði dregizt
aítur úr Rússum, og væri því
um að kenna, að Rússar voru
fyrstir út í geiminn.
Aukningin á útskrifuðum
doktorum hefur verið gífurleg
og sjáanlegt að hún muni halda
áfram. Á árunum 1960-64 voru
útskrifaðir 59.300 doktorar í
Bandaríkjunum, 1965-69 voru
þeir 104.500 eða nálægt helm-
ingi fleiri. Talið er að þeir verði
157.600 á árunum 1970-74 og
að þeir verði um 204 þúsund
á árunum 1975-79.
Hér á landi hefur orðið of-
framleiðsla á vissum sviðum
menntunar. Nú eru t.d. til mun
fleiri barnakennarar en geta
fengið vinnu. Offramleiðsla hef-
ur lengi verið á lögfræðingum,
með þeim árangri að lögfræði-
menntun hefur verið talin full-
gild til næstum hvers sem er.
Nú eru um 120 manns í hinni
nýju þjóðfélagsfræðideild Há-
skóla Islands, þar af nærri
'hundrað á fyrsta ári. Þó að ein-
hverjir falli úr virðist auðsætt
að ekki fái þeir allir vinnu á
sínu sviði, ekki sízt þar sem
deildin kennir ekki félagsráð-
gjöfum (social workers), sem
mikil þörf er þó fyrir. Þá má
GREINAR OG VIÐTÖL
Alifuglabúið
FJÖREGG
Selur
Lifandi hænuunga
á mismunandi aldri
Kjötkfuklinga
Grillkjúklinga
Alihænsn
Hótelkjúklinga
Kjúklingabringur
Kjúklingalæri
______Egg
fjR" ALIFUGLABÚIÐ
FJÖREGG
argus