Frjáls verslun - 01.06.1971, Síða 6
6
FRJÁLS VERZLUN NR. 6 1971
ÍSLAIMD
Efnahagsmál
Hvítbókin kom loksins - á ensku
The Economy of
ICELAND
Síðan í desember hefur verið
dreift af hálfu íslenzka ríkisins
„hvítbók" um efnahagsmál og
ýmis önnur þjóðfélagsmál, í
samanteknu og handhægu
formi — en á ensku. Bók þessi,
sem reyndar er aðeins 20 blað-
síðna ritlingur, geymir alls kon-
ar upplýsingar, sem íslendinga
skortir almennt í aðgengilegri
framsetningu, og enda þótt
þessi enski texti sé hvergi
nærri tæmandi, myndi hann þó
án nokkurs vafa varpa nýju
ljósi á margt í augum íslenzku
þjóðarinnar, væri hann þýdd-
ur á okkar eigin tungu og dreift
um landið. Það er stórmikið
undrunarefni, að ríkisvaldið
skuli ekki hafa veitt þjóðinni
þennan fróðleik, og lagt þann-
ig traustari grundvöll að mati
hennar á málefnunum t.d. fyrir
nýafstaðnar kosningar, hvað
sem annars er um þær að segja.
„Hvítbókin" var gefin út í
desember 1970 í tengslum við
lánsútboð ríkisins á alþjóðleg-
um peningamarkaði, samin af
Seðlabankanum.
Inngangur er stutt kynning
á landi og þjóð, stjórnarháttum,
stjórn og hlutdeild í alþjóðlegu
starfi. Síðan er fjallað um efna-
hagsmálin lið fyrir lið, og fylgja
textanum margar töflur, sem
veita mikla yfirsýn yfir þróun
og stöðu mála.
Þessi opinbera „hítbók“ á er-
indi til íslendinga — á íslenzku
að sjálfsögðu. Sérfræðingariiir
eru vafalaust saddir af upplýs-
ingum, þótt enn sé talið að víða
skorti þar á, en atvinnurek-
endur og launþegar, fólkið í
landinu, sem tekur með einum
eða öðrum hætti beinan og ó-
beinan þátt í ákvörðunum og
er hinn almenni gerandi og þol-
ÉREYTINGAR 1 ÚTFLUTNINGI
. OG ÞJOÐARFRAMLEIÐSLU
SamanburSur viS nokkur lönd
1961 1962 1963 19(4 19(5 1966 19(1 19(1 1969
Þetta eru fróðlegar töflur úr síðustu OECD-skýrsIu um
efnahagsmál íslands.
VIÐSKIPTAKJÖR
1960=100