Frjáls verslun - 01.06.1971, Page 19
FRJÁLS VERZLUN NR. 6 1971
ÚTLÖND
19
undir er sá, að verðið er 10
sinnum hærra en á venjulegum
úrum, eða um 22 þúsund ís-
lenzkar krónur og helmingi
hærra en á úrum með stilli-
gafflinum.
Úrsmiðir eru sammála um
að venjulegt traust og ódýrt
úr sé það sem mesta framtíð
eigi fyrir sér, einkum til að
selja millj. Afríku- og Asíubúa,
sem enn hafa ekki eignazt arm-
bandsúr. Hér eru mestar vonir
bundnar við plastúr. sem ný-
lega kom á markaðinn á meg-
inlandi Evrópu. Plast er auð-
veldara í mótun en venjuleg-
ir málmar og því opnast mögu-
leikar á að gera framleiðsluna
algerlega sjálfvirka, sem er
mjög mikilvægt fyrir land eins
og Sviss, þar sem mikill skort-
ur er á vinnuafli. Helztu erfið-
leikarnir við smíði plastúrsins
voru að fullvinna nákvæmnis-
hlutina, þar sem ekki má
skakka meira en 1/100 úr milli-
metra. Þetta hefur Svisslend-
ingum tekizt og þeir halda því
fram, að ending þessara úra sé
svipuð og venjulegra úra. Hlut-
unum í einu úri hefur verið
fækkað úr 96 niður í 52. Eini
gallin á gjöf Njarðar er sá, að
ef úrið bilar, er ekki hægt að
gera við það. því að gangverk-
ið er innsiglað við framleiðsi-
una og engar skrúfur eru í
verkinu.
Bretland
Borga fyrir for-
tíðina
Brezka ríkisstjórnin ákvað á
síðasta hausti að afla nýrra
tekna að upphæð 1 milljón
punda, með því að innheimta
inngangseyri í opinberum söfn-
um. Þessi ákvörðun olli úlfa-
þyt, ekki sízt hjá þeim, sem
í söfnunum vinna. En listaráð-
herran, Lord Eccles, hélt ó-
trauður sínu striki. og lét þó í
það skína. að auknu fé yrði
varið til byggingarfram-
kvæmda við söfnin.
ferðainenn.
Sé inngangseyrir í söfnin tal-
inn réttlætanlegur, virðist
gjaldskráin í meginatriðum
réttlát. Börn eiga að greiða
sem svarar um 11 krónum alla
árstima. en fullorðnir helmingi
meira, nema júlí og ágúst. Þá
mánuði, þegar ferðamanna-
straumurinn er mestur, verða
fullorðnir að greiða tvöfalt
venjulegt gjald. En gert er ráð
fyrir að þessa tvo mánuði fá-
ist um fjórðungur ársteknanna,
sem ætlunin er að afla með
þessum hætti. Það er þó fund-
ið að gjaldskránni, að ekkert
tillit er tekið til aldraðra, fræði-
manna, stúdenta og skólanem-
enda, eins og í gjaldskrám t.
d. kvikmyndahúsa og bóka-
safna.
Byggingaráætlun safnanna
er ásteitingarsteinn forstjór-
anna. en það er ekkert nýtt.
1964 hófst framkvæmd 12 ára
bygingaráætlunar með 4.5
milljóna punda framlagi, og
framlagið var hækkað um
helming 1968. Nú á að bæta við
3.5 milljónum punda, þannig
að heildaruppphæðin verður
12.5 milljónir punda á tímabili
byggingaráætlunarinnar. En
forstjórarnir eru ekki ánægðir.
Margt verður að bíða.
Héraða- og borgasöfn falla
utan þessa ramma. Þau eru
hins vegar líkt á vegi stödd og
söfn ríkisins, fjárhagslega.
Þessi söfn eru 400 talsins, og af
þeim innheimtir nú 51 inn-
gangseyri, Lord Eccles myndi
að líkindum ákveða að hin 349
tækju þann sið upp einnig, ef
hann réði þar málum.
Safnamál Bretlands eru talin
þurfa endurskoðunar við, í
heild. Tillögur eru uppi um að
koma á heildarskipulagi, þar
sem t. d. 12 stór söfn myndi
miðstöðvar. líkt og læknamið-
stöðvar, og miðli síðan til
smærri safnanna sýningum og
sérfræðikunnáttu m. a.
Bandaríkin
Viija auka ferða-
lög Skandinava
til Banda-
ríkjanna
Fyrir skömmu voru ýmsir
framámenn í ferðamálum
Bandaríkjanna á ferð um
Skandinavíu, og kynntu sér
möguleika á því, að auka ferða-
lög Skandinava til Bandaríkj-
anna. Þeir komust að þeirri
niðurstöðu, að flugferðirnar
væru of dýrar fyrir almenna
ferðamenn, og tilkynntu í fram-
haldi af því, að þeir myndu
beita sér fyrir hagkvæmari
flugferðum á milli í náinni
framtíð, þá að sjálfsögðu í
skipulegum hópferðum. Töldu
þeir auðið, að bjóða innan 5
ára 7-10 daga ferðir til Banda-
ríkjanna frá Kaupmannahöfn
fyrir 12-18 þúsund krónur, eða
1800 ísl. kr. á dag.
Á síðasta ári komu 74.650
skandinavískir ferðamenn til
Bandaríkjanna, flestir frá Sví-
þjóð, 48%, frá Noregi 28% og
frá Danmörku 25%.
Bandaríkin
ICúaleigur og
járnbrautaleigur
Viljið þér taka kú á leigu?
Ef ekki, kannski má bjóða yð-
ur járnbrautarlest á leigu?
Bandaríkin eru áreiðanlega
eina landið í heiminum, þar
sem kúabóndi getur fengið
leigða mjólkurkú, eða útflutn-
ingsfyrirtæki getur fengið 115
vagna lest til að flytja fram-
leiðsluna til hafnarborgarinnar
til útflutnings.
Kúaleigan, sem byrjað var
á fyrir nokkrum árum nýtur
sívaxandi vinsælda, og nú er
farið að leigja einnig alinaut
og svín. John Darcy í Water-
town í Wisconsin er stærsti
kúaleiguaðilinn í því fylki.
Hann leigir nú út um 250
mjólkurkýr og getur ekki ann-
að eftirspurn. Viðskiptavinir
hans eru mjólkurbændur, sem
vilja auka við sig, en hafa ekki
efni á að kaupa fleiri kýr,
vegna þess að þeir þurfa að
nota fjármagnið til annarra
framkvæmda.
Kýrnar eru leigðar til eins
árs í senn og er leigan. sem er
um 10 þúsund íslenzkar krón-
ur, greidd fyrirfram. Skv.
samningnum fær bóndinn alla
mjólkina úr kúnni. svo og
kálfa, sem hún ber. Leigjand-
inn verður að greiða allan
kostnað við eldi kýrinnar og
hann ber ábyrgð á heilsu henn-