Frjáls verslun - 01.06.1971, Qupperneq 54
54
FRJÁLS VERZLUN NR. 6 1971
NÝJA BLIKKSMIÐJAN BÝÐUR....
NÝJA BLIKKSMIÐJAN HF.
Ármúla 12, Reykjavík. — Símar 81172 og 81104.
ALLS
KONAR
BLIKKSMÍÐI
í SMIÐJU OKKAR.
□ Þakrennur, niðurfallspípur,
þakrennur, þakgluggar.
□ Loftræstikerfi í allar byggingar.
□ Steypumót.
□ Spíralar, allar lengdir og
víddir.
□ Hjólbörur 4 stærðir.
Q Flutningavagnar, margar gerðir.
[J Póstkassar í fjölbýlishús.
Rætt við Árna Ámason.
Framhald af bls. 33.
urn veginn eftir áætlun. Þá má
nefna, að við áttum lægsta til-
boð í vegarlagningu austur í
Berufirði, sem unnið verður
við í sumar. En síðastliðinn
vetur gerðum við svo einnig
veg upp Hlíðarfjall hér fyrir
ofan Akureyri, upp í Skíðahót-
elið. og er það í fyrsta sinn að
slíkur vegur er byggður hér
nyðra að vetri til. Það tókst
mjög vel. en hefði ekki verið
framkvæmanlegt að sumarlagi,
nema með mikilli framræslu.
Samtals eru unnin eða umsam-
in verk Norðurverks h.f. frá
upphafi á um 285 milljónir
króna. Fyrirtækið hefur skilað
fullum afskriftum og greitt
10% arð af hlutafé.
GÓÐUR TÆKJAKOSTUR
OG FJÖLHÆFNI.
FV: Nú eru þetta æði mis-
munandi verkefni, er ekki erf-
itt að fara úr einu í annað og
bæta sífellt við nýrri tegund
verkefna?
ÁÁ: Jú, vissulega er það svo.
En fjöldi og stærð verkefna er
innan þeirra takmarka, að litið
verður handa hverjum, og þá
verður að vinna að fleiru. Þessi
margvíslegu verkefni okkar
hafa krafizt uppbyggingar á
góðum og fjölbreytilegum
tækjakosti og það verður ekki
annað sagt en að fyrirtækið
sé orðið mjög fjölhæft, þótt það
sé aðeins rúmlega þriggja ára.
Norðurverk er nú búið undir
að taka að sér verkefni á þess-
um ýmsu sviðum, og við höf-
um í sigti ýmis verk, sem boð-
in verða út á næstunni, einkum
hér á Norðurlandi og svo á
Austurlandi.
SAMVINNA ERT.FNnRA OG
INNLENDRA VERKTAKA.
FV: Talsvert hefur verið um
samvinnu erlendra og inn-
lendra verktaka og innlendra
innbvrðis. Er Norðurverk með
í því?
ÁÁ: Norðurverk hefur haft
nokkra samvinnu við norska
fyrirtækið Selmer, bæði við
undirbúning tilboðsins í Laxá
og um tilboð í hraðbrautargerð
á Suðurlandi í fyrra. Fhá þessu
fyrirtæki höfum við fengið ó-
metanlega tækniaðstoð og
þannig getur íslenzkum verk-
takafyrirtækjum nýtzt erlend
þekking og reynzla. Innlenda
verktakastarfsemin er óneitan-
lega enn á þroskaskeiði, og
þótt um samvinnu sé að ræða
innbyrðis, er hún tæpast komin
á framtíðarstig. Innlendir verk-
takar eru að stækka, og taka
út vaxtarverkina, og ég tel að
þeir séu um það bil að verða
einfærir um að annast öll þau
verkefni, sem hér standa til
boða á næstunni.
SMÆÐ OG ÓVISSA
VANDAMÁL.
Hins vegar er það óumflýj-
anleg staðreynd, að okkur er
vandi á höndum að standa ein-
ir, hvað sem innbyrðis sam-
vinnu líður. Flest verkefnin eru
tiltölulega smá, eða þá brytjuð
í smátt, og framtíðaráform um
framkvæmdir ná aðeins til
næstu mánaða í senn. Við þess-
ar aðstæður er erfitt að sér-
hæfa fyrirtækin nóg. og þau
eru því fjármagnsfrek. Óviss-
an er því mikil. og reynzlan
hefur sannað, að það er ekki
vandalaust að fóta sig á þess-
um akri okkar. Ég fyrir mitt
leyti, og ég held ég geti talað
þar fyrir Norðurverk, tel því
að það eigi ekki að verða neitt
veldi, til þess er öryggið ekki
nægilegt, a. m. k. enn sem kom-
ið er. Við erum að mínum dómi
komnir nokkurn veginn á þann
grundvöll, sem svigrúm er fyr-
ir á okkar mælikvarða að sinni.