Frjáls verslun - 01.06.1971, Page 62
62
GREINAR OG VIÐTÖL
FRJÁLS VERZLUN NR. 6 1971
Þessar frabæru eld-
varnarhurðir eru smíB-
aSar eftir sænskri fyrir-
mynd og eru eins
vandaðar að efni og
fæknilegri gerð og
þekking framast leyfir.
Eldvarnarhurðirnar
eru sjálfsagðar fyrir
miðstöðvarklefa, skjala
skápa, herbergi sem
geymd eru i verðmæti
og skjöl, milli ganga
í stórhýsum, sjúkrahús-
um og samkomuhúsum
þar sem björgun
mannslífa getur oltíð
á slíkri vörn gegn
útbreiðslu elds.
Eldvarnarhurðir
GLÓFAXA eru viður-
kenndar af Eldvarnar-
eftirliti ríkisins.
Glófaxi hf
Ármúla 24.
Síml 34236
íþróttarinnar sem líkamsrækt-
ar.
Páll: Golfið er ekki erfið
eða þreytandi íþrótt, og það er
engin haetta á að menn of-
reyni sig þótt þeir séu ekki í
góðri þjálfun. Menn geta spil-
að það meðan þeir geta gengið.
Ég er sannfærður um að fyrir
innisetumenn er varla hægt að
fá hollari hreyfingu, sem jafn-
framt er eins skemmtileg og
golfið er. Ef t. d. eru spilaðar
18 holur, gengur maður um sjö
kílómetra, á mjúku grasi í
hreinu og tæru lofti. Menn
geta spilað með þeim hraða
sem hæfir þeim, og eiga því
ekki á hættu að ofþreyta sig.
FV:En hvernig er með kostn-
að, er þetta ekki ríkra manna
íþrótt?
Jóhann: Langt frá því. Það
er óhjákvæmilega dýrara með-
an verið er að koma upp að-
stöðu, en það er reynt að stilla
anda er t. d. óþarfi að kaupa
nema hálft „sett“ til að byrja
með. Það kostar 6-8 þúsund
krónur, og það er oft hægt að
fá það mun ódýrara, ef keypt
er notað og það er alltaf eitt-
hvað atf notuðum kylfum á
markaðnum, því þeir gömlu
endurnýja smám saman. Þátt-
tökugjald fyrir árið er mismun-
andi, það er að ég held frá 1500
upp í 5000 krónur, en það má
greiða í mörgum áföngum.
Páll: Það er sama hvaða tóm-
stundaiðju menn hafa, hún
kostar óhjákvæmilega peninga.
Miðað við aðrar greinar held
ég að golf sé frekar ódýrt.
Dýrasta ársgjaldið er t.d. ekki
meira en einn dagur í góðri
laxveiðiá, og hvað kostar ekki
að kaupa og ala hest? Golf er
líka spennandi keppnisíþrótt,
þar sem allt er undir einstakl-
ingnum sjálfum komið. Fyrir
þá sem ekkert vita um golf, er
kannske rétt að taka fram í
stuttu máli á hverju það bygg-
ist. Það er einfaldlega á þvi
að koma kúlunum oni holurn-
ar í sem allra fæstum höggum.
Til þess að byrjendur geti strax
í upphafi haft gaman af að
spila, notum við forgjöf. Við
skulum taka sem dæmi tvo
menn á einhverjum velli. Ann-
ar maðurinn er vanur, og leik-
ur yfiideitt völlinn á 70 högg-
um. Hinn er tiltölulega nýr,
og leikur hann kannske á 80
höggum. Þá fær sá 10 högg í
forgjöf þannig að þeir byrja
jafnir og hafa nokkuð jafnar
sigurlíkur.