Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1972, Blaðsíða 9

Frjáls verslun - 01.02.1972, Blaðsíða 9
Tölvur Landssíminn gerir markaðskönnun varðandi skýrsluvélanotkun Landssími fslands verður að- ili að markaðskönnun, sem Ev- rópusamband pósts og síma mun gangast fyrir í aðildar- löndunum í sumar. Beinist könnunin að notkun skýrslu- véla og tölva og þörf fyrir sendingu á upplýsingum til slíkra tækja og á milli þeirra. Rannsókn þessi var boðin út og er það brezkt fyrirtæki, sem hana annast. Koma starfs- menn þess hingað til lands í sumar. í framhaldi af þessari könn- un verður ráðizt í áætlanagerð um nauðsynlegar framkvæmd- ir í hverju landi fyrir sig og um aðgerðir landanna sameig- inlega. Af hálfu Landssímans er gert ráð fyrir því, að mál þetta veki áhuga forstöðumanna stærstu fyrirtækja hérlendis, sem þegar hafa tekið skýrslu- vélar í notkun. Víða erlendis er notkun IJtgáfa Notkun skýrsluvéla og tölva fer ört vaxandi hér á landi. tækja af þessu tagi mjög um- fangsmikil og t.d. algengt í daglegum rekstri að í verzlun- unum séu sérstök senditæki við peningakassa, sem lesi af verðmiðum, hvaða vörutegund hafi verið seld, sendi upplýs- ingar um það inn á rafmagns- heila, sem síðar gerir viðvart þegar kominn er tími til að endurnýja lagerinn. Flutningur á slíkum upplýs- ingum getur einnig farið fram milli íslands og annarra landa. Hafa sæsímalínur verið til þess reyndar og tilraunir gefið góða raun. Er bví hugsanlegt, að stærstu notendur skýrslu- véla hérlendis eins og bankar, SÍS, Eimskip og Skýrsluvélar ríkisins geti haft aðgang að tölvumiðstöðvum erlendis vegna stærri verkefna, sem tækjabúnaður þessara aðila hér heima getur ekki sinnt. Af hálfu Landssímans verður málið frekar kynnt fyrir þess- um aðilum í sambandi við markaðskönnunina í sumar. Nýtt rit á ensku um viðskiptamál Út er komið nýtt kynningar- rit á ensku um viðskiptamál á íslandi. Er það í tímaritsbroti, alls 50 síður og kápa í þremur litum. Útgefandi er Frjálst framtak hf. í Reykjavík. Rit þetta, sem nefnist „In- side Iceland“ flytur ýmsar upp- lýsingar um íslenzk málefni, einkanlega efnahags- og við- skiptamál. Meðal greína má nefna yfirlit um landhelgis- málið, mikilvægi fiskveiða fyr- ir íslendinga, reglur um milli- ríkj aviðskipti, útflutningsverzl- unina og skrá yfir íslenzka út- flytjendur. Liggur mikil vinna á bak við þá skýrslu, sem gef- ur upplýsingar um útflytjend- ur eftir flokkum útflutnings- varnings. Þá er og að finna í ritinu „Inside Iceland“ grein- ar um ráðstefnuhald hér á landi, útflutningsiðnað og sam- göngur við útlönd. „Inside Iceland" er gefið út í 5000 eintökum og verður því dreift til erlendra aðila, einkanlega verzlunarsamtaka pg félaga í viðskiptallöndum íslendinga. Áætlað er, að þetta nýja rit komi út tvisvar á ári og verði fyrst og fremst upp- lýsingarit fyrir kaupsýslumenn. Ritstjóri þess er Haukur Helgason, hagfræðingur og blaðamaður. FV 2 1972 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.