Frjáls verslun - 01.02.1972, Blaðsíða 27
hverri viðskiptagrein.
Auglýsingastofan Tígris ann-
ast hvers konar vinnu í sam-
bandi við auglýsingar og kynn-
ingu. Guðbergur kvaðst hafa
mikinn áhuga á að vekja athygli
fyrirtækja á þörfinni fyrir að
vanda vel til allra bréfa og
kynningarrita, sem þau láta frá
sér fara, því að gagnvart er-
lendum viðskiptaaðilum, sem fá
aragrúa af slíku efni, sé nauð-
synlegt, að hlutirnir séu áferð-
arfallegir og þess eðlis, að eftir
þeim sé tekið.
„Ég held, að í Finnlandi sé
fyrirtækjum veitt geysilegt að-
hald í þessu efni, enda má
segja, að Finnar láti ekkert frá
sér fara í þessum dúr nema að
einstaklega sé til þess vandað,“
segir Guðbergur.
Aðspurður um einhverjar
nýjungar af hálfu auglýsinga-
stofunnar Tígris sagðist Guð-
bergur hafa mikinn áhuga á
því að gera plaköt fyrir félög,
stofnanir og fyrirtæki. Hins
vegar væri ekki til neinn stað-
ur ætlaður fyrir þau í Reykja-
vík og reglugerðarákvæði um
notkun þeirra væru mjög
ströng. Aftur á móti sé full
ástæða til að ætla, að takast
megi að koma upp sérstökum
þiljum í borginni, þar sem gert
sé ráð fyrir, að plakötin megi
standa.
Gjörbylting á einu ári
Elektrónískar reiknivélar ryðja sér til rúms
Fyrirtækið Skrifvélin í Berg-
staðastræti 3 er fimmtán ára
gamalt og hefur á þeim tíma
aðallega annazt viðgerðir á
skrifstofutækjum, en fyrir einu
ári urðu mikil þáttaskil i rekstri
þess, þegar það fékk samning
við Canon-verksmiðjurnar í
Japan um umboð fyrir elek-
trómskar reiknivélar þeirra hér
á íslandi.
Örn H. Jónsson, eigandi
Skrifvélarinnar sagði í samtali
við FV, að mjög mikil sala hefði
verið á þessu eina ári í elek-
tróniskum reiknivélum enda
væru þær gjörbylting í reikni-
vélatækni og ódýrar miðað við
gæði. Hefði verð vélanna farið
mjög lækkandi á síðustu árum
og taldi hann, að vél, sem í dag
kostar 18 þúsund krónur hefði
kostað um 100 þúsund fyrir fá-
einum árum. Reiknivélafram-
leiðendur um allan heim hafa
tekið upp þessa nýju tækni en
þeir, sem það hafa ekki getað,
hafa orðið að draga saman segl-
in. Japanir standa mjög framar-
lega á þessu sviði, og hafa
reiknivélaverksmiðjur á Norð-
urlöndum til dæmis leitað til
þeirra og fengið aðstoð frá
þeim.
Helztu kostir þessara nýju
véla eru, hve viðhald er lítið
í samanburði við þær gömlu, en
mönnum reiknast til, að það
minnki um 90%. Þá er einnig
bent á, hve hljóðlátar þær séu
og hve flókin dæmi þær reikna
á augabragði. Auk þess má
stinga sumum elektróniskum
vélum í skjalatösku og fara
með fyrirhafnarlaust hvert á
land sem er.
Canon-fyrirtækið í Japan hef-
ur það fyrir reglu, að velja sér
umboðsmenn erlendis fyrir
þessar vélar, sem geta sjálfir
séð um viðhald þeirra. Tveir
menn starfa nú hjá Skrifvél-
inni að eftirliti með elektrónisk-
um vélum og hafa þeir farið á
sérstök námskeið í Hollandi
og Svíþjóð til að þjálfa sig.
Þá hefur fyrirtækið orðið að
afla sér nýrra tækja fyrir
hundruð þúsunda króna til þess
að geta tryggt góða þjónustu.
Getur allt eftirlit og viðgerðir
farið fram hérlendis.
Á þessu eina ári, sem Skrif-
vélin hefur haft umboð fyrir
Canon-reiknivélar, hafa verið
seldar mörg hundruð vélar, og
sagði Örn H. Jónsson, að Kaup-
stefnan í sumar, þar sem vél-
arnar voru sýndar, hafi mjög
orðið til að auka veg þessarar
nýju tækni hér á íslandi og
valdið gjörbyltingu á einu ári.
Aðspurður sagði Örn, að
gömlu reiknivélarnar yrðu enn
talsvert í notkun hjá einkaaðil-
um og smærri fyrirtækjum og
annast Skrifvélin áfram við-
gerðir á þeim svo og öðrum
tegundum skrifstofuvéla.
FV 2 1972
27