Frjáls verslun - 01.03.1972, Síða 9
tfraðfrystihúsin:
Sveitarfélögin þurfa að verja
allt að 750 milljónum til
endurbóta
Sóðaleg íramhlið á írystihúsi — og lóðin í kring.
Bæjar- og sveitarfélög á
landinu munu þurfa að verja
samtals allt að 750 milljónum
króna til nauðsynlegra endur-
bóta, svo að’ uppfyllt séu þau
skilyrði um liollustuhætti og
frágang umhverfis fiskvinnslu-
stöðva, sem nú er stefnt að
vegna nýrrar reglugerðar um
matvælaframleiðslu í Banda-
ríkjunum.
Á vegum tillögunefndar um
hollustuhætti í fiskiðnaði hef-
ur verið gerð áætlun fyrir ein-
stök sveitarfélög samkvæmt
skýrslum, sem þau hafa sent
frá sér. Alls eru það 14 kaup-
staðir og 43 hreppar, er hlut
eiga að máli, en gögn hafa bor-
izt frá þriðjungi þeirra.
Ef litið er sérstaklega á
kaupstaðina, sem nú þegar
hafa sent frá sér skýrslur, lít-
ur dæmið þannig út, að Hafn-
arfjörður áætlar 75 millj.,
Keflavík 50 millj., Akranes 33
millj., (vatnsveita er stór lið-
ur í þeirri áætlun), Siglufjörð-
ur 25 millj., Sauðárkrókur 18
millj., Neskaupstaður 24 millj.
og Vestmannaeyjar 35 millj.
ÁÆTLA ALLS 2950 MILLJ.
TIL ENDURBÓTA
Á öllu landinu er gert ráð
fyrir að verja alls 2950 millj.
króna í endurbætur, bæði af
hálfu frystihúsanna sjálfra,
vegna hollustuhátta og ný-
bygginga, og sveitarfélaganna.
Hlutur frystihúsanna verður
1500 milljónir vegna hollustu-
hátta, en 700 millj. vegna ný-
bygginga.
Samkvæmt lauslegri áætlun,
sem byggð er á þeim skýrsl-
um, er þegar liggja fyrir, lítur
dæmið þannig út í einstökum
kjördæmum, að í Reykjavík
eru útgjöld frystihúsanna áætl-
uð 145 millj., en borgarinnar
35 millj., á Reykjanesi: frysti-
hús 550 millj., sveitarfélög
235 millj., á Vesturlandi:
frystihús 270 millj., sveitarfé-
lög 55 millj., á Vestfjörðum:
frystihús 290 millj., sveitarfé-
lög 105 millj., á Norðurlandi
vestra: frystihús 55 millj.,
sveitarfélög 65 millj., á No’ð-
urlandi eystra: frystihús 200
millj., sveitarfélög: 70 millj.,
á Austurlandi: frystihús 490
millj., sveitarfélög: 135 millj.
og á Suðurlandi: frystihús 200
millj. og sveitarfélög 50 millj.
97 FRYSTIHÚS Á LANDINU
Ýmsar af þeim framkvæmd-
um, sem ráð er fyrir gert,
munu koma íbúum sveitarfé-
laganna í heild til góða, því
að víða verða gerðar endur-
bætur á vatnsveitum, holræs-
um, gatnakerfi o. fl.
Alls hafa athuganir verið
gerðar hjá 85 frystihúsum,
þar af eru 62 á vegum Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihúsanna,
21 á vegum Sambands ísl. sam-
vinnufélaga, en alls eru starf-
andi á landinu 97 frystihús.
Fyrir dyrum stendur að reisa
8 nýbyggingar.
Framkvæmdastofnun ríkis-
ins hefur nú fengið þessi mál
til meðferðar. Talið er, að tóm
gefist til ársins 1975 til að
koma á nauðsynlegustu endur-
bótum með tilliti til þeirrar
nýju reglugerðar, sem unnið er
að vestanhafs.
FV 3 1972
.9