Frjáls verslun - 01.03.1972, Síða 25
verið undirstaðan fyrir mjög
þýðingarmiklar framkvæmdir
á vegum borgarinnar seinustu
árin, fyrst og fremst gerð hrað-
brauta og malbikun gatna al-
mennt. Það er líka undirstað-
an fyrir íbúðarhverfi, sem risið
hafa nýverið. Eftir aðalskipu-
laginu hefur verið hægt að
skipta uppbyggingu í borg-
inni í íbúðar- og iðnaðarhverfi,
og með útivistarsvæðum hefur
verið stefnt að bví, að fólk
kæmist gangandi um borgina
án þess að vera í aðalumferð-
inni.
Aðalskipulagið hefur reynzt
ótrúlega traustur grundvöllur.
Við undirbúning þess var gerð
ítarleg umferðartalning og mið
tekið af henni við teikningu
umferðaræða. Minni umferð er
nú á helztu aðalbrautum en
gert var ráð fyrir í spám vegna
skipulagsins, og er það mikill
kostur, ef þær duga lengur en
við_ bjuggumst við upphaflega.
Ýmislegt er enn ógert af
skioulagsatriðum, eins og t. d.
unobvgging gatnamóta á
Miklubrautinni, þar sem reikn-
að er með brúm og undirgöng-
um í framtíðinni. Eftir um-
ferðarþunganum á Miklubraut
að dæma verður þó varla þörf
á þeim fyrr en við lok áratug-
arins.
Ákveðið er, að aðalskipulag-
ið verði endurskoðað á fimm
ára fresti og er það vissulega
nauðsynlegt, einkanlega vegna
margs konar þjónustustarfa,
sem aukið tillit verður að taka
til, svo sem dagheimila, leik-
valla, hiúkrunarheimila og fé-
lagsheimila.
— Nú hafa umræSur staðið
lengi um nýjan miðbæ sunn-
an Miklubrautar. Hvað líður
uppbygsringu hans?
— Tillögur, sem fyrir liggja
um nýjan miðbæ, gera ráð fyr-
ir 225 þús. fermetra svæði fyr-
ir ýmis mannvirki. Þar af eru
60 þús. fermetrar ætlaðir fyr-
ir verzlanir, en ég hygg, að
það verði ekki notað fvrr en
seinna. Hins vegar er nú verið
að hefia teikningu á borgar-
bókasafni, sem reisa á í nýja
miðbænum, og þar ætti líka að
byggja leikhús og gera svæðið
að menningarmiðstöð. Skrif-
stofur, oninberar stofnanir og
samkomuhús eiga þar líka
heima.
Ég tel, að ekki liggi svo
mjög á nýju verzlunarsvæði,
því að aðstaðan í Austurstræti
og á Laugavegi er það ákjósan-
leg. Með miðstöð strætisvagn-
anna á Hlemmi hefur staða
Laugavegar efri sem verzlun-
arsvæðis batnað mikið. Nokk-
uð er kvartað undan umferð-
arþunga, en ég hygg, að það
vandamál leysist með tilkomu
brúar yfir Geirsgötu, og bíla-
stæði verði ekki höfuðverkur,
þegar 1000 stæði bætast við
uppi á þaki vöruskemmu Eim-
skipafélagsins á austurbakka
hafnarinnar. Nú eru fyrir
hendi 2800 bílastæði frá
Klapparstíg vestur í Garða-
stræti.
— Hvert stefnir í frekari út-
víkkun höfuðborgarinnar á
komandi árum?
— Reykjavíkurborg verður
að sjá þeim, sem hér vilja búa,
fyrir landi undir húsnæði. Það
er greinilegt, að fólk kýs að
búa hér, þó að vegalengdir að
vinnustað frá heimkynnunum
séu kannski svipaðar og frá
nágrannasveitarfélögunum.
Á næstuni verða lóðir
skipulagðar vestur við Eiðis-
granda, en gera má ráð fyrir,
að byggðin færist aðallega í
Breiðholt II og III næstu
fimm ár. Eftir það verður
Korpúlfsstaðaland líklega tek-
ið undir húsbyggingar og svo
haldið áfram í norðurátt. Sem
stendur á Reykjavík land upp
að Blikastöðum, en ekki er ó-
trúlegt, að byggðin færist upp
í Mosfellssveitina og alla leið
á Kjalarnesið. Með þessu mun
samvinna sveitarfélaga á höf-
uðborgarsvæðinu að sjálfsögðu
aukast í mörgum greinum. Vís-
ir að þessu er samstarf um
strætisvagnaþjónustu og hita-
veitu. En þó að samvinna af
þessu tagi verði efld býst ég
ekki við pólitískum samruna
sveitarfélaganna, sem nú
mynda Stór-Reykjavík.
INSIDE ICELAND
er kynningarrit
fyrir erlenda
kaupsýslumenn
Utgefandi
FRJÁLST FRAMTAK HF.
OMEGA
SPEEDMASTER
KRÓNOGRAPH terproof.
VATNSÞÉTT
ÞÉR GETIÐ STRAX EIGNAST
SAMSKONAR OMEGA ÚR
OG APPOLLO GEYMFARAR
NOTA ER ÞEIR LENDA
Á TUNGLINU.
BIÐJIÐ ÚRSMIÐ YÐAR
UM ÞAÐ BESTA.
BIÐJIÐ IJV1 QMEGA
FV 3 1972
25