Frjáls verslun - 01.03.1972, Page 33
Söebech veltu 52 milljónum á
seinasta ári, og þar af fóru
sex milljónir til greiðslu vinnu-
launa.
í viðtölum við ýmsa verzlun-
armenn í Miðbæ kom fram al-
menn ánægja með miðstöðina.
Menn voru á einu máli um, að
verzlunarmiðstöðvar væru
hagkvæmar fyrir neytendur og
verzlunarmenn.
ÓEÐLILEG SAMKEPPNI
VIÐ FRYSTIHÚS
Kristján Guðmundsson hef-
ur frá byrjun átt fiskbúðina
Sæver í Miðbæ. Kristján segir
sömu sögu og flestir aðrir fisk-
kaupmenn, að erfitt sé að afla
vörunnar. „Það þarf að borga
meira en eðlilegt er fyrir fisk-
inn,“ segir hann. „Við verðum
að keppa við frystihúsin, sem
hafa aðstöðu og fjármagn, sem
við höfum ekki yfir að ráða,
og eru jafnvel mikið studd af
ríkinu. Við bindum vonir við
dreifingarmiðstöð, en það á
eftir að koma í ljós, hvernig
það gengur.“
Kristján rekur ernnig fisk-
búð í nýju verzlunarmiðstöð-
inni í Breiðholti.
GLÆSIBÆR—
9000 viðskiptavinir á
einum degi þegar
mest er
Stærsta verzlunarmiðstöðin í
Reykjavík komst í gagnið í
haust, og þar er nú umfangs-
mikill rekstur, þótt miðstöðin
sé ekki komin í fullan gang.
Glæsibær að Álfheimum 74
markar þáttaskil í verzlun.
Verzlunarmiðstöðin er 8200 fer-
metrar og 31.600 rúmmetrar.
Verzlun Silla og Valda tók til
starfa í desember síðastliðnum.
Matvöruverzlunin er 1000 fer-
metrar, langstærsta matvöru-
verzlun landsins.
í Glæsibæ hafa Silli og Valdi
matvöruverzlun, snyrtvöru-
verzlun og sælgætissölu. Þar
rekur Útgarður hf. umfangs-
mikinn veitingarekstur, Hákon
Jóhannsson rekur Sportvöru-
verzlun. Bókabúðin er eign
Oddnýjar Ingimarsdóttur o.fl.,
Paul Heide úrsmiður hefur
gull-, silfur- og úraverzlun.
Hans Petersen verzlar með Ijós-
myndavörur.
I norðurálmunni er klæða-
verzlun Andersen og Lauth,
blómabúðin Rósin, sem Anton
Ringelberg á, Skóverzlunin
Skóhornið, í eign Ólafs Ingi-
mundarsonar og útibú Útvegs-
bankans.
Vestanvert er hárgreiðslu-
og snyrtistofan Salom—Vehr í
eign Elsu Haraldsdóttur, Rak-
arastofa Jörundar Guðmunds-
sonar og Guðmundar Hólm-
kelssonar og tannlæknir.
Mikið vantar á að allar verzl-
anir sem í Glæsibæ eiga að
vera séu komnar í gagnið. í
kjallara verða vefnaðarvöru-
verzlanir, sem væntanlega taka
tilstarfa í sumar oghaust. Uppi
verður meðal annars lækna-
miðstöð, og er hugmyndin, að
þar verði einir 16 læknar og
heilsurækt.
FV ræddi við Baldur Ágústs-
son verzlunarstjóra og spurði
hann um reksturinn.
Baldur Ágústsson var áður
verzlunarstjóri í verzlun Silla
og Valda í Austurstræti, sem
byrjaði árið 1965. Hann hefur
kynnt sér verzlunarmiðstöðvar
í Svíþjóð. „Þetta hefur þróazt
eins og við var búizt,“ segir
hann. „Nú, reksturinn er farinn
að ganga skínandi vel, og salan
ágæt. Eg vil benda á það, sem
sagt var í Svíþjóð, að gott væri,
1 Glœsibœ er langstœrsta matvöruverzlun landsins.
FV 3 1972
33