Frjáls verslun - 01.03.1974, Page 9
í stnttu máli
0 Skattkerfisbreyting
Ríkisstjórnin hefur lagt fyrir Al-
þingi frumvarp um skattkerfisbreyt-
ingu í anda þeirrar yfirlýsingar, sem
hún gaf á meðan á kjarasamningum
stóð. Er merkilegt, hvernig þetta mál
ber að, því vitað var, að stjórnin hef-
ur ekki meirihluta til að koma í gegn
söluskattshækkun. Þessa dagana
reynir á, hvort ríkisstjórnin guggnar
og semur við stjórnarandstöðuna um
breytingar á frumvarpinu, eða hvort
einhver varastjórnarflokkur finnst til
að bjarga henni, þegar í nauðina
rekur.
Engin fyrirstaða
Hingað til hefur verið reynt að
halda hækkunum búvöru í skefjun.
Ekkert hefur bólað á þessu í tíð nú-
verandi ríkisstjórnar. Er öllu hleypt
beint út í verðlagið og það fyrr en
áður. Síðan 1. ágúst 1971 hafa bú-
vörur í vísitölu framfærslukostnaðar
hækkað um rösklega 117% að meðal-
tali og valdið yfir 30 stiga hækkun
vísitölunnar.
Vaxtahækkun ?
Lagt mun hafa verið til viö ríkis-
stjórnina aö vextir á innlánum og út-
lánum yrðu hækkaðir. Ríkisstjórnin
mun hins vegar hafa tekið illa í það.
Flugmenn ásaka Sterling
Tveir flugmenn Sterling Airways, sem
er stærsta ‘leiguflugfélag á Norðurlönd-
um (og í Evrópu) og er í eigu Tjöruborg-
arprestsins, hafa ákært það fyrir alvar-
leg brot á öryggisreglum. Vera kann, að
hér sé um tilraun að ræða til að lnickkja
veldi þeirra í Sviþjóð og Noregi, en eink-
um sænsk leiguflugfélög hafa átt erl'itt
uppdráttar.
0 Erlendar fjárfestingar í
Bandaríkjunum fara vaxandi
Skrif hérlendis og í öðrum Vestur-Ev-
rópulöndum haí'a verið nokkuð einhliða
um fjárfestingar bandariskra fyrirtækja
í Evrópu. Hin hliðin á málinu er sú, að
ekki fyrir ýkjalöngu voru fjárfestingar
Vestur-Evrópulanda i Bandaríkjunum
jafnar fjárfestingum þeirra íVestur-Ev-
rópu. Nýlegar tölur sýna, að fjárfesting-
ar erlendra aðilja liafa aukizt hratt í
Bandarikjunum á undanförnum árum.
Ymsar ástæður eru sagðar fyrir þessu.
Ein er sú, að verðbólga sé lægri þar en
annars staðar, önnur, að hlutabréf hafi
verið í tiltölulega lágu verði, hin þriðja,
að óttast sé, að þingið samþykki innan
tíðar takmarkanir á slikum fjárfesting-
um og að síðustu gengislækkun dollar-
ans um tíma.
0 Vegur Kiruna-IMarvik
Þrátt fyrir nokkur mótmæli íbúa á
stöðunum, virðist allt benda til þess,
að akvegur verði lagður milli Kiruna
og Narvik. Náttúruverndaraöiljar
hafa tekið vel í málið.
FV 3 1974