Frjáls verslun - 01.03.1974, Qupperneq 11
Albert Guðmundsson,
borgarfulltrúi, var sean
kunnugt er búinn að
Iýsa yfir því fyrir all-
löngu, aö hann hygðist
gefa kost á sér í fram-
boð til Alþingis. Þegar
ljóst var, að kosningar
yrðu boðaðar 30. júní
þótti sumum samstarfs-
mönnum Alberts sem
nálægð þingkosninga
við borgarstjómarkosn-
ingar myndi gera honum
erfitt fyrir í baráttunni.
Þegar Albert ræddi þessi
mál í kunningjahópi var
liann afslappaður að
vanda, púaði vindilinn,
brosti kankvíslega og
sagði:
— Það er lélegt fyrir-
tæki, strákar mínir, sem
ekki getur afgreitt tvær
pantanir í einu.
Framámaður í Fram-
sóknarflokknum í
Reykjavík var fyrir
nokkru spurður um
stöðu Ólafs Ragnars
Grímssonar innan flokks-
ins ’um þessar mundir,
og hvort hann hefði
möguleika á að komast
í framboð fyrir næstu
þingkosningar.
Þessi Reykjavíkurfors-
prakki taldi það af og
frá miðað við núverandi
aðstæður, en bætti svo
við:
„Nýtt kjördæmi á há-
lendi íslands er eini
sjensinn fyrir Ólaf nQ.“
Meðan prentara.verk-
fallið stóð sem hæst kom
hingað í heimsókn fyrr-
verandi yfirmaður banda-
ríska flotans, Zumwalt,
aðmíráll. Hann átti fund
með blaðamönnum
skömmu áður en hann
hélt af landi brott að
loknum einkaviðræðum
við fulltrúa í utanríkis-
málancfnd Alþingis og
fleiri framámenn í stjórn-
mál'um. Þegar Hannibal
Valdimarsson fór í Am-
eríkuheimsókn sína á ár-
unum var hann vestan
hafs í persónulegu boði
Zumwalts. Eftir að
Hannibal kom heim úr
reisunni lét hann mörg
fögur orð falla um gest-
gjafa sinn. Blaðamaður
Þjóðviljans notaði tæki-
færið nú og spurði Zum-
walt, hvað honum fynd-
ist um Hannibal. Vitnis-
burðurinn var ekki af
lakara taginu:
“That gentleman is one
of the finest examples
of western civilization”,
svaraði Zumwalt eftir
nokkra umhugs'un.
Breytingar eru fram-
‘undan í rekstri margra
ferðaskrifstofanna. Hjá
Ferðaskrifstofu ríkisins
hefur Sigurður Magnús-
son, sagt starfi sínu
lausu. Ferðaskrifstofan
Úrval og Ferðaskrifstofa
Zoega verða sameinaðar,
að því talið er, og jafn-
framt mun Úrval ætla a.ð
kaupa Ferðaskrifstofu
Akureyrar. Þá verða eig-
endaskipti hjá Landsýn
og er það A.S.Í., sem
ætlar að ka'upa þá skrif-
stofu.
Innan skamms verður
tilkynnt opinberlega um
ráðningu fimm yfir-
manna hjá Flugleiðum
h.f., en sem kunnugt er
verða aðalforstjórarnir
þeir Alfreð Elíasson, Sig-
urður Helgason og Örn
Johnson. Næstir þeim
mun'u síðan koma Einar
Helgason, (innanlands-
flug), Hörður Sigur-
gestsson, (fjármál),
Jóhannes Einarsson,
(tæknimál), Jón Júlíus-
son, (starfsmannahald og
kynningardeild) og Mart-
in Petcrsen, (markaðs-
mál).
Þeim, sem þekkja
Gylfa Þ. Gíslason, finnst
það svolítið skrítið,
hvernig hann hefur
stundað erindrekstur fyr-
ir rússneska sendiherr-
ann upp á síðkastið. Mál-
ið er það, að Gylfi hefur
gengið á milli formanna
Rotary-klúbbanna í
Reykjavík og lagt ríka
áherzlu á, að sendiherra
Sovétríkjanna yrði boð-
inn þátttaka í starfi Ro-
tary-félaga. Hefur for-
maður Alþýðuflokksins í
engu sparað lofsamleg
ummæli um þennan vin
sinn að austan. En með-
a.I annarra orða: Tilmæl-
um Gylfa hefur verið
hafnað af réttum aðilum.
Framsóknarmcnn eru
sagðir óánægðir með að
Einar Ágústsson skuli
ekki hafa ráðið einn ein-
asta flokksbróður sinn í
utanríkisráðuneytið í
valdatíð sinni þar. Það
hefur því komið þeiin í
opna skjöldu, að Einar
hefur fengið þá hug-
mynd að gera flokks-
bróður sinn Hannes
Jónsson, blaðaf'ulltrúa,
að sendiherra í Moskvu
innan skamms. Enginn
veit, hvort Einar ætlar
að sýna Hannesi heiður
með þessu eða ergja
Rússa.
FV 3 1974
11