Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1974, Qupperneq 13

Frjáls verslun - 01.03.1974, Qupperneq 13
Menningarmál: Höfuðstóll Thor Thors- sjóðsins tæplega 240 þús. doilarar Söfnunarherferð vestan hafs hefur tekizt vel Sjóðurinn, sem stofnaður var 1965 til minningar um Thor Thors, sendiherra, hefur nú styrkt samtals tæplega 100 íslendinga til náms í Banda- ríkjunum og liingað til Iands hafa komið bandarískir menntamenn til náms við Há- skóla íslands fyrir tilstuðlan hans. Yfirleitt eru betta 1000 dollara styrkir, sem veittir hafa verið, en á þessu ári er ráðstöfunarfé hans um 12.500 dollarar. Sigurður Helgason, forstjóri Loftleiða í New York er for- maður sjóð;stjórnarinnar og sagði hann frá störfum henn- ar í samtali við F. V. Forsaga málsins er sú, að Thor Thors-sjóðurinn var stofnaður fyrir forgöngu Pet- ers Strong, formanns Ameri- can Scandinavian Foundation IH< IHOR ÍHOR$ KtLANÞK FVNt> Forsíða kynningar- bæklings sjóðsins. í New York og hefur starf sjóðsins síðan fariði fram inn- an vébanda þeirra samtaka. Með almennri söfnun vestan hafs tókst að afla í byrjun um 50 þús. dollurum til sjóðsins en þar af lagði Rockefeller- stofnunin fram um 25 þús. dali. 50 ÞÚS. DOLLARAR FRÁ ÍSLANDI Hér heima á íslandi hafa þeir Þórhallur Ásgeirsson, ráðuneytisstjóri, Jónas Haralz, bankastjóri og Pétur Thor- steinsson, ráðuneytisstjóri, ver- iði forvígismenn um að afla sjóðnum framlaga frá ýmsum íslenzkum aðilum, og var unnt að leggja þannig til 50 þús. dollara frá íslandi á móti stofnfénu bandaríska. Auk þessara þriggja íslendinga hafa Sigurður Helgason, Haraldur Kröyer, Stefán Wathne, Sonja Benjamínsson og Áskell Löwe starfað ötullega fyrir sjóðinn. Hannes Kjartansson, ambassa- dor, serh nú er látinn, var lika í hópi fyrirsvarsmannanna vestan hafs og átti sæti í stjórn sjóðsins. TAKMARKIÐ 250 ÞÚS. DOLLARAR Árið 1969 var ákveðið að hefja skipulega söfnun fyrir sjóðinn vestan hafs. Markmið- ið var að höfuðstóll sjóðsins kæmist í 250 þús. dollara með þessu átaki. Var leitað til fyr- irtækja og einstaklinga um framlög og sagði Sigurður Helgason, að ýmis bandarísk ‘fyrirtæki, sem viðskipti gera við íslendinga, hefðu lagt sitt af mörkum en í söfnunarher- Sigurður Helgason, forstjóri. ferðinni voru fyrirtæki þessi beðin að gefa 250 dollara. Slík framlög eru frádrátt- arbær á skattaframtali. Ár- angurinn af þessari herferð voru framlög, er námu 42 þús. dollurum til ársloka 1973. Til viðbótar því kom svo framlag Árna Helgasonar, ræðismanns íslands í Chicago en hann arf- leiddi Thor Thors-sjóðinn að 86 þús. dollurum. Árni Helgason var ættaður úi' Hafnarfirði en fór ungur vestur um haf. Hann nam raf- magnsverkfræði í háskóla í N.-Dakota og starfaði síðan með Hirti Thordarson, sem rak fyrirtækið Thordarson Electric í Chicago. Árni stofn- aði seinna sitt eigið fyrirtæki, Chicago Transfer Corp. og rak það æ síðan. Hann varð ræðis- FV 3 1974 13
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.