Frjáls verslun - 01.03.1974, Side 15
maður íslands í Chicago árið
1942 og kom oft til íslands. I
erfðaskrá sinni arfleiddi hann
Thor Thors-sjóðinn að hluta af
eignum sínum en hann dó árið
1970, barnlaus.
HLUTABRÉF OG
SKULDABRÉF
Samanlagt nam höfuðstóll
sjóðsins 239 þús. dollurum,
þegar arfurinn eftir Árna
Helgason var meðreiknaður.
Ásamt öðrum sjóðum Ameri-
can Scandinavian Foundation,
sem nema samtals um 5 millj-
ónum dollara, er fjármagn
Thor Thors-sjóðsins ávaxtað í
hlutabréfum og skuldabréfum.
Að jafnaði mun sjóðurinn fá
um 5% arð árlega, sem er til
ráðstöfunar í styrkveitingum.
Það er Íslenzka-ameríska félag-
ið á íslandi, sem milligöngu
hefur um þessar styrkveiting-
ar en eins og áður sagði hafa
um 100 íslendingar notið góðs
af og nokkrir Bandaríkja-
menn. Það eru um 20 greinar
háskólanáms, sem þessir styrk-
þegar hafa lagt stund á en að
auki hafa íslenzkir kennarar
verið styrktir til þátttöku í
sumarnámskeiðum Luther Col-
lege og hlotið að jafnaði um
300 dollara til þess.
Að sögn Sigurðar Helgason-
ar hafa undirtektir fyrirtækja
og einstaklinga við beiðni
sjóðsstjórnar um framlög, yfir-
leitt verið mjög góðar og væri
þetta framtak talandi tákn um
árangur, er einstaklingar gætu
náð án atbeina ríkisvaldsins.
Félagar í Íslendingafélögunum
vestan hafs hefðu lagt þessu
máli lið og unnið ágætt starf
en í þeim munu nú vera lið-
lega 2500 félagar.
Orkumál:
Jarðgufuaflsstöð í Henglinum
fyrir Reykjavlkursvæðið?
Stjórn Landsvirkjunnar hefur gert ákveðnar tillögur um næstu virkjanir
Reykjavíkurborg á Landsvirkjun til helminga á móti ríkinu. Breytt viðhorf í orkumál-
um heimsins undanfarna mánuði hafa meðal annars leitt til áætlanagerðar hér á landi um
hröðun framkvæmda vegna aukinnar orkuframleiðslu úr innlendum hráefnum, ef svo mætti
segja.
Stjórn Landsvirkjunar hefur
að undanförnu tekið til með-
ferðar, hvað við skuli taka af
Sigölduvirkjun, sem nú er í
smíðum, en, eins og lög Lands-
virkjunar mæla fyrir um, hvíl-
ir á fyrirtækinu sú skylda að
byggja og starfrækja mann-
virki til vinnslu og flutnings
á raforku til almenningsnota
og iðnaðar á orkuveitusvæði
sínu. Fyrir nokkru samþykkti
stjórn Landsvirkjunar að í eft-
irtalinn undirbúning skuli ráðr
izt og að því stefnt, að honum
verið lokið innan árs:
1. Gerð verði útboðslýsing á-
samt nauðsynlegum viðbót-
arrannsóknum á um 850
gígavatta virkjun Tungnaá-
ar við Hrauneyjafoss. Áætl-
aður kostnaður við þetta
verk er 60 millj. króna.
2. Gerð verði hagkvæmnis-
skýrsla ásamt nauðsynleg-
um rannsóknum um 450
gígavatta virkjun við Sult-
artanga, neðst í Tungnaá.
Áætlaður kostnaður við
þetta verk er 25 millj.
króna.
3. Gerð verði í samvinnu við
Reykjavíkurborg hag-
kvæmnisskýrsla ásamt nauð-
synlegum rannsóknum um
400 gígavatta jarðgufuvirkj-
un í Hengli. Áætlaður
kostnaður við þetta verk er
20 millj. króna.
4. Leitað verði samninga við
Verkfræðiskrifstofu Sigurð-
ar Thoroddsen og Harza
Engineering International
Company um undirbúnings-
vinnuna við vatnsaflsvirkj-
anirnar. Einnig verði í sam-
ráði - við Reykjavíkurborg
leitað samninga við hæfa
sérfræðinga um undirbún-
ingsvinnu við jarðgufuvirkj-
unina.
Þá segja forráðamenn Lands-
virkjunar ennfremur, að orku-
spá sú, sem gerir ráð fyrir ör-
astri aukningu almennrar
notkunar sýni, að ný virkjun
verði að taka til starfa á árinu
1980, en ári síðar, ef aukning
notkunar verður hægari. í báðr
um tilvikum er reiknað með
málmblendiverksmiðju við
Hvalfjörð. Stjórn Landsvirkj-
unar segir, að virkjun við
Hrauneyjafoss geti verið tilbú-
in nægjanlega snemma til þess
að mæta örastri aukningu
markaðarins, ef strax verður
hafizt handa um gerð útboðs-
gagna. Ef orkuaukningin vex
hægar er nauðsynlegt að eiga
einnig aðrar og jafnframt
minni virkjanir undirbúnar,
sem til starfa gætu tekið nægj-
anlega snemma. Verður að
teljast nauðsynlegt, að sögn
forráðamanna Landsvirkjunar,
að ráðast þegar í stað í gerð
hagkvæmnisskýrslna um virkj-
un við Sultartanga og jarð-
gufustöð í Hengli.
ORKUSPÁR
ENDURSKOÐAÐAR
Verkfræðideild Landsvirkj-
unar hefur lokið við endur-
skoðun á fyrri orkuspám og
þeim virkjunarkostum, sem
fyrir hendi eru til þess að
mæta orkumarkaðinum, þegar
Sigölduvirkjun sleppir, en á-
ætlað er að sú virkjun taki til
starfa fyrir haustið 1976.
Þrjár mismunandi orkuspár
hafa verið gerðar. í þeirri
fyrstu er gert ráð fyrir rúm-
lega 6% vexti hins almenna
markaðar en það er sá vöxtur,
sem Alþjóðabankinn reiknar
FV 3 1974
15