Frjáls verslun - 01.03.1974, Qupperneq 23
Ef nahagsmál:
Sfafangur - miðstöð olíuiðnaðarins
í IMoregi
Strandlengjan og höfnin við Stafangur í Noregi hafa lítið breytzt. Gamlar timbur-
byggingarnar standa á barmi brattra kletta, sem ná niður í flæðarmál. Og svona hefur það
verið öldum saman. Sjómennirnir labba um á bryggjunum og horfa til hafs. Á útimarkað-
inum uppi á hæðinni er enn hægt að kaupa kartöflur og kálmeti og rauð, girnileg norsk
ber. Efst á hæðinni stendur dómkirkjan í Stafangri, sem lætur ekkert á sjá þó að hún
sé 800 ára gömul.
Fagur vordagur við höfnina í Stafangri.
höifn, aukið sölu á steiikarkjöti
En undir þessu yfirborði
hefur margt tekið breytingum,
því að Stafangur er miðstöð
olíuleitar og olíuvinnslu Norð-
manna. Þar er viðgerða- og
birgðastöð fyrir þá liðlega tíu
olíupalla, sem að staðaldri eru
að leita að olíu á botni Norð-
ursjávarins. Mjólk og egg
handa neyzlufrekum áhöfnum
pallanna, járn í borana, gas-
kútar fyrir rafsuðumennina —
allt kemur þetta frá Stafangri,
flutt á löngum birgðaskipum
með opnu dekki. Og þegar á-
hafnir pallanna hafa lokið
störfum sínum á sjónum í bili
kemur þyrla frá Stafangri til
að flytja þá í land.
Venjulegur ferðamaður í
Stafangri verður kannski ekki
svo ýkja mikið var við merki
um olíuleitina. Að vísu eru jú
nýir gestir að staðaldri í mót-
tökusölum hótelanna, menn,
sem selja rafeindabúnað, pípur
og bolta, prófunartæki, kafara-
búninga og allt annað sem
menn þarfnast til olíuleitar
á hafsbotni. Þarna eru for-
stjórar olíufyrirtækja, lögfræð-
ingar þeirra og blaðamenn,
sem skrifa um olíuna. Inn á
milli eru líka áhugamannahóp-
ar, sem komnir eru til að
kanna, hvernig yfirvöldum í
Stafangri tekst að hafa hemil
á allri þessari öru framþróun.
„180 GRÁÐA
STEFNUBRE YTING“
Það er ekki hægt að fá
nokkur þúsund aðkomumenn
til fastrar búsetu án þess að
bæjarbragui’inn breytist eitt-
hvað lítillega. Mathákar frá
Texas verða að fá mat eins og
þeir borða heima í Texas og
þess vegna hefur Albert Idsöe,
sem á kjötverzlun niðri við
eins og það gerist í Ameríku.
Það er meira lausafé í Staf-
angri en áður, meira að gera
í bönkunum, aukin þörf fyrir
húsbyggingar. A1 Vick, borun-
arstjóri hjá Philips Petroleum
segir: „Olían hefur breytt
stefnu þessa bæjarfélags um
180 gráður".
Það sem athyglisverðast
FV 3 1974
23