Frjáls verslun - 01.03.1974, Blaðsíða 51
ÞÖRF A ÁTAKI
í GATNA- OG
UMHVERFISMALUM
Hér á undan hefur verið
skýrt frá grundvelli atvinnu-
lífs og helztu framkvæmdum
í kaupstöðum og kauptúnum
Vesturlands. Þeim er það öll-
um sameiginlegt, að í kjölfar
gagngei’ðra umbóta á fisk-
vinnslustöðvunum samkvæmt
hraðfrystihúsaáætluninni hef-
ur þörfin á að gera átak í
gatna- og umhverfismálum
aukizt. Gerðiar hafa verið
kostnaðaráætlanir fyrir varan-
lega gatnagerð á öllum stöðun-
um, en hún er vart hafin
nema á Akranesi og í Borgar-
nesi. Á vegum Samtaka sveit-
arfélaga í Vesturlandskjör-
dæmi er rannsóknum og áætl-
un vegna olíumalarframleiðslu
að ljúka með jákvæðum ár-
angri. Framkvæmd þessara á-
ætlana er sveitarfélögunum
hinsvegar íjárhagslega ofviða
með óbreyttum tekjustofnum,
nema á löngum tíma.
Mikill 'Sikortur er á íbúðar-
húsnæði, en þrátt fyrir stór-
auknar 'húsbyggingar hefur
ekki tekizt að fullnægja eftir-
spurninni. Öll sveitarfélögin
leggja fram mikið fé í nýjar
götur og holræsi og til að gera
lóðir byggingarhæfar.
Á Vesturlandi er eitt stórt
orkuver, Andakílsárvirkjun,
sem er sameign Akraneskaup-
staðar, Borgarfjarðarsýslu og
Mýrasýslu. Orkuvinnsla þess
1972 var 28.741 MWh. Um
þriðjungur af orkuöflun kjör-
dæmisins er aðkeypt orka.
Tvö sjúkrahús eru á Vestur-
landi, á Akranesi og í Stykkis-
hólmi. Gert er ráð fyrir heilsu-
gæzlustöðvum í Borgarnesi, Ó'l-
afsvík og Búðardal. Grunn-
skólar eru í öllum þéttbýlis-
'stöðvunum og víða í sveitun-
um, en sérskólar, Samvinnu-
skóli á Bifröst, bændaskóli á
Hvanneyri, húsmæðraskólar á
Varmalandi og Staðarfelli og
iðnskólar á Akranesi, Borgar-
nesi og Stykkishólmi. Nú er
verið að gera ítarlega könnun
á skólaskipan fyrir næstu
framtíð á vegum Samtaka
sveitarfélaga í Vesturlands-
kjördæmi.
í Söluskálinn við
íþróttablaðinu Ólafsbraut, Ólafsvík
er lesefni fyrir alla, ekki sízt þá, sem hafa áhuga á íþróttum og vilja gæta heilsu sinnar. Býður: Shell, Esso og BP þjónustu. Hjólbarðaviðgerðir. öl, sælgæti, tóbak og allar nauðsynlegar ferða- og ljósmyndavörur.
• Nesti.
Áskriftarsímar: Smáréttir — kaffi, og samlokur.
82300 - 82302. Opið frá fel. 9.00 — 23.00
FV 3 1974
51