Frjáls verslun - 01.03.1974, Page 55
Fyrirtaeki,Hiirur.
þjénusia
Coca Cola:
27 þúsund flöskur á klukkustund
Rætt vift Pétur Björnsson, forstjóra
Kók-verksmiðjan er ein fullkomnasta ftosdrykkjarverksmiðja
á landinu.
íslendingar drekka meira
kók en flestar aðrar þjóðir
heims, eða sem svarar til 7
kassa á hvert mannsbarn á
íslandi á ári. Kókið, sem oft
liefur verið kallað í gríni þjóð-
ardrykkur íslendinga hefur
verið framleitt lengst allra
gosdrykkja í heiminum eða í
tæplega 100 ár.
Aðalstöðvar Coca Cola eru
nú í Atlanta í Georgíufylki í
Bandaríkjunum og verða allar
kók verksmiðjum í heiminum
að fylgja þessum reglum í
framleiðislunni, sem þar eru
settar. Kók er nú framleitt i
allflestum iöndum heims, und-
ir ströngu eftirliti, og er í eigu
innlendra aðila. Kók var fyrst
framleitt á íslandi árið 1942
og var fyrsti forstjóri Coca
Cola, Björn Ólafsson, en nú-
verandi forstjórar eru Pétur
Björnsson og Ki'istján Kjart-
ansson.
F.V. átti nýlega samtal við
Pétur Björnsson og innti hann
eftir starfsemi fyrirtækisins.
27 ÞÚS. FLÖSKUR Á
KLUKKUSTUND
Nýlega tók til starfa ný og
mjög fullkomin kók verk-
smiðja á nýja iðnaðarsvæðinu
í Árbæjarhverfi. Verksmiðja
þessi er fullkomnasta gos-
drybkjaverksmiðja á landinu,
nær sjálfvirk og afkastageta
hennar er 27 þúsund flöskur á
klukkustund.
Kassar með tómum flöskum
koma af lager. Eru þær færð-
ar upp á færibönd með vélum.
Síðan tekur við, vel, sem tek-
ur tómu flöskurnar upp úr
kössunum og flytur þær á
annað færiband. Síðan fara
þær í þvottavél, sem þvær
flöskurnar upp úr mismunandi
vö-kvum, en að síðustu eru
þær skolaðar. Að þvotti lokn-
um eru flöskurnar gegnum-
lýstar og þær flöskur sem eru
brotnar eða gallaðar teknar út.
Þá halda flöskurnar áfram á
færibandi í ásetningu, þar sem
þær eru fylltar af gosdrykkj-
um, sem áður hefur verið
blandaður í þar til gerðum vél-
um. Að öllu þessu loknu eru
tapparnir settir á flöskurnar í
vél, en halda síðan áfram á
færibandi í kassana, sem áðúr
hafa verið þvegnir vel og
vandlega í sjálfvirkni þvotta-
vél. Að lokum eru kassarnir
með kókinu færðir á lager til-
búnir til útkeyrslu.
HÖRGULL Á STÖRUM
FLÖSKUM
Um 95% af framleiðslu
verksmiðjunnar er kók, en
Freska um 5% framleiðslunn-
ar. Að sögn Póturs eykst notk-
un þess drykkjar stöðugt. Þá
framleiðir nýja kók verksmiðj-
an einnig nokkrar tegundir
drykkja frá Coca Cola í
Bandaríkjunum fyrir kæli-
tanka með krana, sem mikið
eru notaðir á veitingastöðum
og matsölustöðum.
Efnið í kókið, sem íslend-
ingar drekka kemur aðallega
frá Brússel, þar sem fram-
leiðsla þess fer fram. í kókinu
eru ýmsar efnablöndur, en
einnig er í því kolsýra, sem
myndar gosið í drykknum. Að
sögn Péturs, er haft mjög mik-
ið gosmagn í þvi kóki sem
framleitt er hér, vegna þess
að íslendingar vilja svo mikið
magn goss. Vegna þessa þarí
kók verksmiðjan íslenzka að
sækja um undanþágu til aðal-
stöðvanna í Bandaríkjunum.
Nokkur önnur lönd nota
einnig jafn mikið magn kol-
sýr-u í kó-k, og mé þar nefna
Norðurlöndin og Kanada.
FV 3 1974