Frjáls verslun - 01.03.1974, Síða 56
5 stærðir af kókflöskum eru
til í heiminum, en aðeins eru
notaðar hér á landi tvær
stærðir. Fyrst var farið að
nota stærri gerðina af kók-
flöskum um jólaleytið 1967,
en síðan hefur stóra flaskan
unnið stöðugt á, að sögn Pét-
urs.
Talnalega séð er notkunin i
stóru flöskunum rétt rúmlega
50%, en að sögn Péturs hefur
ekki verið unnt að anna eftir-
spurn í stóru flöskunum sér-
staklega vegna yfirstandandi
olíukreppu. Sagði Pétur, að nú
væri orðið nokkuð erfitt að fá
flöskur og væru þær orðnar
geysilega dýrar, eða milli 16-
20 krónur í innkaupum.
BREYTT FYRIRKOMULAG
í FRAMLEIÐSLU
Um 200 manns eru nú á
launaskrá hjá kók verksmiðj-
unni á Ártúnshöfða, og flutti
allt starfsfólkið úr verksmiðj-
unni Vífilfelli í nýju verk-
smiðjuna á Ártúnshöfða. Sagði
Pétur að nú væri verið að
vinna að því að finna nýjan
starfsvettvang fyrir gömlu Víf-
ilfellsverksmiðjuna.
Flestir vinna við framleiðslu
og dreifingu eða milli 60-70
manns, bílar eru í stöðugum
útkeyrslum með kók allan
daginn. Þá vinna einnig nokkr-
ir að skrifstofustörfum. Verk-
smiðjustjóri er Smári Wírum.
Að sögn Péturs, er verið að
vinna að því nú að breyta fyr-
irkomulaginu í framleiðslu og
dreifingu og samræma það því
fyrirkomulagi sem er erlendis.
Pétur Bjöi’nsson vildi geta
þess að gosdrykkjaiðnaðurinn
í heiminum hefði dregizt tals-
vert aftur úr almennum vísi-
töluverðhækkunum s.l. áratugi
samkvæmt rannsóknum sem
gerðar voru árið 1960.
TVÖ HEIMSFRÆG
AUGLÝSINGALÖG
Öllum auglýsingum sem
birtast hér sem erlendis er
stjórnað frá aðalstöðvum Coca
Cola í Bandaríkjunum, að
sögn Péturs. Coca Cola notar
ákveðna upphæð árlega til að
auglýsa og 'hefur fyrirtækið
samræmda alheimsstefnu í
auglýsingamálum, og eru sömu
auglýsingarnar sýndar á sama
tíma víða um heim. Tvisvar
'hefur Coca Cola látið semja
lög fyrir auglýsingar og hafa
þau bæði orðið mjög vinsæl.
Er þar fyrst að nefna lag
sem kom fram á stríðsárunum
og sungið var af Andrews
systrum. Það lag hlaut strax
heimsfrægð. Seinna lagið er
frekar nýtt og var á hvers
manns vörum fyrir u. þ. b. 2
árum. Það lag syngur hópur
ungs fólks undir berum himni
og var það kallað “It’s a real
thing”.
Að sögn Péturs Björnssonar
hefur Coca Cola fyrirtækið
selt útgáfuréttinn á lögum
þessum, en fengið alltaf vissa
upphæð af gróðanum, sem síð-
an er gefið til góðgerðarstarf-
semi.
Prjónastofan Iðunn hf:
60 þúsund peysur framleiddar í ár
Rætt við IXIjál Þorsteinsson, framkvæmdastjóra
Iðunn framleiðir eingöngu peysur fyrir innanlandsmarkað.
Prjónastofan Iðunn h.f., á
Seltjarnarnesi er með eldri
starfandi fyrirtækjuin í prjóna-
iðnaðinum á landinu, en fyrir-
tækið var stofnað árið 1934,
sem hlutafélag. Núverandi eig-
endur tóku við því árið 1950,
en áður hafði starfsemi þess
gengið nokkuð misjafnlega, m.
a. vegna ýmissa hamla á efn-
um til framleiðsl'unnar. Hinir
nýju eigendur hófu þegar upp-
byggingu prjónastofunnar,
cnda hefur árangurinn sýnt
sig.
Ein mesta breyting í starfs-
sögu fyrirtækisins var þeigar
prjónastofan flutti í nýtt og
fullkomið 1200 m- húsnæði,
að Skerjabraut 1, og var það
tekið í notkun á árinu 1968.
f þessu húsnæði er prjónastofa,
saumastofa, lager og skrifstof-
ur og fer öll önnur starfsemi
fyrirtækisins þar fram. Kom
þetta m. a. fram í viðtali sem
F.V. átti við framkvæmda-
stjóra prjónastofunnar Iðunn-
ar, Njál Þorsteinsson.
60 ÞÚS. PEYSUR
Á S.L. ÁRI
Prjónastofan Iðunn h.f.
framleiðir eingöngu peysur
fyrir innanlandsmarkað á börn
og fullorðna. Eru þær úr
acrylefnum, sem flutt eru inn
frá Danmörku og Belgíu. Við
fyrirtækið starfa nú 25 starfs-
menn.
Margar þeirra kvenna, sem
vinna að framleiðslunni eru
húsmæður, sem vilja vinna úti
allan daginn, eða einhvern
hluta úr degi. Hér nýtist
vinnuafl, sem af öðrum ástæð-
5G
FV 3 1974