Frjáls verslun - 01.03.1974, Blaðsíða 59
Halldór Jónsson hf:
IVfarkaðurinn allt of lítill
Þegar komið er á skrifstofu
Halldórs Jónssonar h.f. að Ell-
iðavogi 117, má sjá, að þar er
allt húsnæðið nýinnréttað. F.
V. átti nýlega viðtal við for-
stjóra fyrirtækisins, Halldór
Jónsson og innti hann fyrst
eftir því, hvort fyrirtækið
hefði verið lengi í þessu hús-
næði.
— Skrifstofan fluttist hing-
að í ágúst 1973, en hún var
áður í leiguhúsnæði að Hafnar-
stræti 18. Verksmiðjan Voga-
fell h.f. sem er dótturfyrirtæki
Halldórs Jónssonar h.f. var í
þessu húsnæði áður. Nú er
Vogafell flutt í nýbyggingu á
þessari sömu lóð, en skrifstofa
og efnaverksmiðja Halldórs
Jónssonar h,f. er í þessu hús-
næði nú.
— Hvaða starfsemi annast
þessi fyrirtæki, og hvað starfa
margir við þau?
— Hjá báðium fyrirtækjun-
um starfa um 40 manns. Voga-
fell h.f. flytur inn svamp frá
Dunlop í Englandi í stórum
blokkum og sker svampinn
niður í dýnur, eftir því, sem
viðskiptavinirnir kjósa. Innan
fyrirtækisins starfar sauma-
stofa, sem saumar utan um
dýnurnar ef viðskiptavinirnir
óska þess. Auk þess flytur fyr-
irtækið inn ýmsar vörur, sem
húsgagnabólstrarar nota til
framleiðslu sinnar.
Halldór Jónsson h.f. annast
innflutning, sölu og dreifingu
á snyrtivörum og auk þess
talsverða framleiðslu. Snyrti-
vörunum má, skipta í aðal-
atriðum í tvo flokka þ. e. hár-
greiðsluvörur og aðrar snyrti-
vörur. Framleiðsla okkar er
fyrst og fremst á sviði hár-
greiðsluvaranna, en auk þess
framleiðum við ofnhreinsilög,
svitalyktareyði, lofthreinsilög
og margt fleira.
Fyrirtækið hefur einkarétt
á framleiðslu á Wella hár-
greiðsluvörunum á íslandi. í
þeim flokki má nefna hárlakk,
'hárlagningarvökva, hárnær-
ingu o. fl. Framleiðslan er til-
tölulega einföld, þó gæta þurfi
mikillar nákvæmni við blönd-
un, en hún fer-fram eftir upp-
skriftum frá Wella.
Sérfræðingar frá Wella í
Þýzkalandi heimsækja fyrir-
tækið af og til og hafa eftirlit
með að framleiðslan sé sam-
kvæmt ströngum fyrirmædum
þeirra. Auik þess sendum við
höfuðstöððvum Wella mánað-
arlega skýrslur um fram-
leiðsluhætti og framleiðslu-
magn. Daglegt eftirlit með
framleiðslunni annast verk-
smiðjustjórinn Guðíbjartur
Sturluson, en hann hefur sótt
námskeið í Sviss varðandi
framleiðslu á snyrtivörum, og
hann er lyfjafræðingur að
mennt.
Wella hárgreiðsluvörurnar
eru mikið notaðar á hár-
greiðslustofum, og í sambandi
við þau viðskipti okkar reyn-
um við að hafa ávallt á boð-
stólum allar þær vörur, sem
þær þurfa á að halda. Við önn-
umst einnig innflutning á hár-
þurrkum, hárnetum, rúllum,
spennum og ýmsu öðru. Þetta
teljum við sjálfsagða þjónustu
við hárgreiðslustofurnar vegna
þess, hve mikið þær verzla við
okkur.
í sambandi við viðskipti
okkar við Wella, önnumst við
innflutning á Inka snyrtivör-
um. Inka snyrtivörur þykja
sérstaklega mildar, og eru
mjög þekktar í heimalandi
sínu, Þýzkalandi. Til fram-
leiðslu Inka snyrtivaranna eru
eingöngu notuð náttúruleg
efni, og virðast slíkar vörur
eiga mun befur við íslenzka
veðráttu. Annað sem telja má
sérstakt við Inka snyrtivörurn-
ar er, hversu fjölbreyttar þær
eru. Sérstakar vörur eru fyrir
ungar, miðaldra og eldri kon-
ur, en þessar vörur skiptast
svo í fimm flokka fyrir norm-
al húð, þurra og viðkvæma
húð, blandaða húð, feita húð
og fyrir unga húð.
Auk Inka snyrtivaranna
framleiðum við Moonsilk
snyrtivörurnar, en þær virðast
eiga vinsældum að fagna, sem
dæma má af sífellt aukinni
sölu.
— Eru ekki margs konar
vandkvæði á framleiðslu
snyrtivara á Islandi?
— Nei, framleiðslan sjálf er
engum vandkvæðum háð, ef
ávallt er gætt fyllstu ná-
kvæmni. Viði höfum samvinnu
við svissneska efnarannsóknar-
stofu að nafni Givaudan. Þessi
rannsóknarstofa er mjög full-
komin og nýtízkuleg og er ein
tveggja rannsóknarstofa, sem
sérstaklega þjóna snyrtivöru-
iðnaðinum í Evrópu. Givaudan
annast fyrir okkur allar þær
rannsóknir sem viði þurfum á
að halda og þar eru prófaðar
sérhverjar vörutegundir, áður
en við setjum þær á markað.
Þar með er okkar stærsta
og eina framleiðsluvandamál
leyst.
Hitt er svo annað mál að
markaðsstærðin veldur okkur
talsverðum vandkvæðum.
Vegna þess, hve markaðurinn
er lítill, verðum við að vera
með margar vörutegundir og
í efnaverksmiðjunni. Halldór Jónsson lengst til liægri.
FV 3 1974
59