Frjáls verslun - 01.03.1974, Síða 62
Rafbúðin hf:
Fjölbreytt úrval kastljósa
Rætt við Sigurð R. Guðjónsson rafvirkjameistara
Almenningur gerir sér sí-
fellt betur grein fyrir mikil-
vægi réttrar og góðrar lýsing-
ar á heimilum og vinnustöð-
um. Gæði birtunnar eru einn-
ig mikilvæg og rétt heimilis-
Iýsing þarf að hafa nægilega
birtu fyrir öll störf og alla
aldursflokka. Rafbúðin, Auð-
brekku 49, Kópavogi leggur
sérstaka áherzlu á ljós og
Iampa, sem hafa ljóstæknilegt
gildi og gefa rétta lýsingu á
heimilum, vinnustöðum, sam-
komuhúsum og víðar.
Rafbúðin var opnuð vorið
1967 og er eigandi hennar Sig-
urður R. Guðjónsson, raf-
virkjameistari. Upphaflega
verzlaði hann eingöngu með
raflagnaefni, en með tímanum
var vöruúrvalið aukið og
verzlunin fór að hafa á boð-
stólum ýmsar gerðir ljósa og
lampa svo og ýmis rafmagns-
tæki. Kom þetta m. a. fram
í viðtali, sem F.V. átti við Sig-
urð Guðjónsson.
Nú s.l. haust var verzlunar-
húsnæðið stækkað verulega
og innréttað á ný. Jókst því
vöruúrvalið að sama skapi.
Rafbúðin flytur inn ýmsar
gerðir ljósa og lampa frá
brezka lýsingarfyrirtækinu
Concorde, sem er sérhæft í
framleiðslu kastljósa til
gluggalýsinga, lýsingar á veit-
ingahúsum og í heimahúsum
m. a. Rafbúðin leggur mikla
áherzlu á kastljósin og hefur
jafnan á boðstólum margar
gerðir.
Ahugi fyrir kastlýsingu hef-
ur vaxið mikið undanfarið.
Ljós þessi eru venjulega höfð
uppi við loft, og kemur mjög
skemmtileg og þægileg birta í
herbergi, þar sem þau eru not-
uð. Lýsing frá kastljósum er
mjög góð. Þau fást í mörgum
litum svo sem rauðu, gulu,
bláu, hvítu, svörtu og gráu og
kosta frá 2-3000 krónum. Einn-
ig hefur Rafbúðin á boðstólum
hreyfanleg kastljós á raf-
brautum. Slík kastljós eru
mjög algeng í verzlunum, en
eru einnig nokkuð notuð á
heimilum.
Fjölbreytt úrval útiljósa er
í verzluninni bæði með gamal-
dags og nýtízkulegu útliti.
Einnig eru á boðstólum sér-
stök garðljós. Þá selur Rafbúð-
in einnig standlampa, leslampa
og ýmsar gerðir loftljósa. Af
rafmagnstækjum hefur verzl-
unin m. a. á boðstólum brauð-
ristar, straujárn, vöfflujárn,
grill og ýmsar tegundir gjafa-
vara í þessum vöruflokki.
Rafbúðin leggur einnig á-
herzlu á lampa til að fella
upp í loft. Lýsing af þessum
lömpum er jöfn og góð og
ryðja þeir sér sífellt meira til
rúms á heimilum, en eru
einnig mjög mikið notaðir á
skrifstofum og verkstæðum.
Glóperur eru í þessum lömp-
um.
Flúrljós njóta mikilla vin-
sælda nú og eru mikið notuð
á heimilum. Hægt er að velja
um 9 staðlaða liti, þar af einn,
sem er sérstaklega ætlaður til
notkunar í heima'húsum og
hefur sama blæ og glóperur.
Ending flúrljósanna er miklu
meiri en venjulegrar glóperu
og auk þess gefur flúrljós 5
sinnum meiri birtu. Rafbúðin
selur mikið af þessum ijósum,
aðallega á skrifstofur, í skóla,
verkstæði, samkomusali o. fl.
Miklar sveiflur eru í tízk-
unni og á þetta einnig við um
ljós og lampa. Nú eru mjög
vinsælir lampar og loftljós
með gamaldags sniði, svo og
gömul húsgögn, og innrétta
margir húsnæði sitt samkvæmt
því. Þessir gamaldags lampar
og loftljós setja mjög mikinn
svip á herbergi, sem búin eru
gamaldags húsgögnum.
Sigurður sagði, að vöruúr-
valið væri alltaf að aukast
með tilkomu stærra húsnæðis.
Með haustinu er von á úrvali
af lampaskermum svo og fjöl-
breyttu úrvali af ljósum og
lömpum.
Nú má leggja 36,5% á ljósa-
vörur og 'kvaðst Sigurður
nokkuð ánægður með þá á-
lagningu, ef ekki yrði of mikil
rýrnun á lömpunum, m. a.
vegna þess, að glerið hefur
brotnað í sendingu. Einnig
sagði hann að nokkrar sveifl-
ur væru í sölu á þessum vör-
um, minna seldist á sumrin, en
á haustin og fram undir jól
er yfirleitt afar mikil sala á
ljósum og lömpum.
Verzlunin leggur álierzlu á ljós, sem hafa Ijóstæknilegt gildi.
62
FV 3 1974