Frjáls verslun - 01.11.1975, Page 27
Efnahagsmál
Árangur af toppfundinum ?
Sérfræðingar vara við bjartsýni á að efnahagslegur bati
sé á næsta leiti á Vesturlöndum.
Grein byggð á frásögn L.S. INIeivs and World Report.
Loforðin lágu á lausu:
Sameiginlegar aðgerðir til
að bæla nið'ur verðbólgu,
hleypa lífi í viðskipti, binda
enda á efnahagsörðugleika.
En hvernig þetta skuli fram-
kvæmt er annað mál.
Evrópubúar eru hóflega
hamingjusamir yfir þeim
séu ótímabærar og geti
samvinnuanda, sem leiðtog-
ar sex mestu iðnríkja hins
vestræna heims sýndu á
fundi sínum um miðjan
nóvember. Almenningur í
Vestur-Evrópu taldi fund-
inn í Chateau Rambouillet
fyrir utan París marka upp-
haf sameiginlegra ráðstaf-
ana, sem lengi hefur verið
beðið eftir hjá leiðtogum
Bandaríkjanna, Bretlands.
Frakklands, Vestur-Þýzka-
lands og Japan í því augna-
miði að grípa á vandamá1-
unum, sem eru kjarnar
efnahagskreppunnar í heim-
inum.
Evrópskir efnahagssér-
fræðingar og bankastjórar
hafa þó varað við bjartsýni
á að einn fundur, meira að
segja „topp“-fundur geti
breytt rás viðburða á einni
nóttu. Mjög áberandi svart-
sýni gætir á gildi yfirlýs-
inga hinna vestrænu leið-
toga um að ástandið sé að
batna.
HÆTTUR BJARTSÝN-
INNAR.
Evrópskir sérfræðingar
taka varlega ummælum
Fords Bandaríkjaforseta um
að efnahagslegur bati í
Bandaríkjunum sé vel á
veg kominn. í einkaviðræð-
um láta þeir i ljós þá skoð-
un, að fully.rðingar Fords
geti gefið Evrópumönnum
falsvonir um einhver geysi-
leg straumhvörf til hins
betra í bandarískum efna-
hagsmálum. Helztu efnahags-
málasérfræðingar eru mjög
efins um að efnahagsástand-
ið vestan hafs hafi batnað
svo mjög. Þeir benda á, að
fasteignakaup séu í lág-
marki. Og með miklum halla
í opinberum rekstri sé vart
hægt að búast við vaxta-
lækkunum á næstunni.
Sumir hagfræðingar í Ev-
rópu draga líka í efa skoð-
anir Helmut Schmidts,
kanzlara Vestur-Þýzkalands
um að Vestur-Þýzkaland sé
nú komið upp úr lægðinni
og muni taka höndum sam-
an við Bandaríkin um að
leggja af mörkum stærstan
skerf til endurlífeunar
verzlunar og viðskipta á
næsta ári.
Haft er eftir einum af
seðlabankastjórum í Ev-
rópu, að spár um efnahags-
bata í Vestur-Evrópu á
næsta ári séu enn byggðar
á „vonum fremur en stað-
reyndum.“
MÁLAMIÐLUN.
Henry Kissinger, utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna,
segir mesta ávinninginn af
fundinum í Rambouillet
fólginn í málamiðlunarsam-
komulagi Frakka og Banda-
ríkiamanna um gjaldeyris-
mál, sem getur stuðlað að
stöðugri gengisskráningu á
alheims vísu.
Milli ríkisstjórna Frakk-
lands og Bandaríkjanna hef-
ur lengi staðið ágreiningur
vegna ásetnings Frakka um
að hverfa aftur að föstu
gengi en Bandaríkjamenn
eru hins vegar staðráðnir í
að halda því fljótandi.
Samkvæmt þessu nýja
samkomulagi, sem aðrar
Þannig sá teiknari blaðsins
San Diego Union viðureign
ríkjaleiðtoganna við efna-
hagsvandamál iðnveldanna.
ríkisstjórnir hafa ekki fall-
izt á, verður ekki horfið
að fastri gengisskráningu.
Þó verður gætt strangara
aðhalds með „röngum“ eða
„óreglulegum“ sveiflum,
sem kunna að eiga sér aðr-
ar orsakir en efnahagslegar.
„Hvorugur aðilinn sigraði,
og hvorugur fór halloka“,
sagði William Simon, fjár-
málaráðherra Bandaríkj-
anna.
SPOR í RÉTTA ÁTT.
Bankastjórar í Evrópu
fögnuðu málamiðlun Frakka
FV 11 1975
25