Frjáls verslun - 01.11.1975, Blaðsíða 41
mætaskÖpun er látin þoka fyrir
þjónustudundi og styrkja-
rekstri. Þegar þannig er búið
að staursetja efnahagskerfið í
heild, eiga heilbrigð sjónarmið
ekki lengur upp á pallborðið.
Hver heilvita maður sér að
arðbær iðnaður rís ekki úr
þeirri vilpu.
AFLEIÐINGIN
Stjórnmálamenn skilja ekk-
ert í því hvers vegna fram-
leiðni eykst ekki i iðnaði á ís-
landi. Eitt gáfnaljósið á Alþingi
tók þannig til orða, að bezta
og líklega eina mó-tbragð iðn-
aðar gegn opinberum launvíg-
um og arðráni, væri einmitt
aukin framleiðni.
Yið skulum nú líta ögn nán-
ar á dæmið.
Samkvæmt gildandi lögum
er ákveðin álagning í pi'ósent-
um leyfð á iðnvarningi, sem
framleiddur er í landinu. Þessa
álagningu skal síðan leggja á
„sannanlegan framleiðslukostn-
að“. Ef við gefum okkur þá for-
sendu að með hagræðingarað-
gerðum hefði tekist að auka
svo framleiðni iðnfyrirtækis að
sannanlegur framleiðslukostn-
aður hefði lækkað um 40%, og
lítum síðan á afleiðingu auk-
innar framleiðni:
Fyrir hagræðingu:
1 stk. framl. eining
(sannanl. kostn.) kr. 10.000
Alagning 25% — 2.500
Söluv. til smásala kr. 12.500
Eftir hagræðingu:
1 stk. framl. eining
(sannanl. kostn.) kr. 6.000
Álagning 25% — 1.500
Söluv. til smásala kr. 7.500
Beint tap af þessari fram-
leiðsluaukningu er því fyrir
iðnfyrirtækið kr. 1.000/pr. ein-
ingu.
Með öðrum orðum tapar fyr-
irtækið 1.000 kr. á hverjum
framleiddum hlut, fyrir utan
kostnað við framleiðsluaukandi
aðgerðir.
Þau rök að lægra söluverð
auki fjölda seldra eininga og
geti því unnið upp tapið eru
haldlaus af tveimur orsökum:
1. Á íslandi er ekki um neinn
magnmarkað að ræða. Mark-
aðurinn er svo lítill að sölu-
auking nær svo til aldrei að
vinna upp tap af aukinni
framleiðni.
2. Með því að auka framleiðni
tekur iðnrekandinn ákveðna
áhættu. Það eina sem hvet-
ur til slíkrar áhættu er sölu-
aukning. Líkur fyrir henni í
þeim mæli sem nauðsynlegt
er, eru hverfandi.
NIÐURSTAÐA
Af þessu litla dæmi sést að
eins og löggjafinn býr að iðn-
rekstri á íslandi á því herrans
ári 1975, er aukin framleiðni
vís með að leiða til gjaldþrota
í stærri stíl en fram til þessa.
Það er varla hægt að áfellast
iðnrekendur þótt þeir spyrni
við fótum í lengstu lög og reyni
að forða fyrirtækjum sínum
frá þeim voða, sem nýtízku
vinnubrögð gætu kallað yfir þá.
Hér er sama heimskukerfið
í gangi og í landbúnaði, þar
sem fyrirhöfnin er launuð en
ekki afraksturinn. Á þennan
hátt er hægt að færa blómlegt
athafnalíf aftur í steinöld á
nokkrum áratugum. Ef til vill
skiptir ekki sköpum hvort al-
þingismaður er kenndur við
Nauteyrarhrepp eða Neander-
thal?
CREME T
FRAlCHE 1
Notið sjrðan rjóma sem ídýfu með
söxuðu grœnmeti í stað t. d.
mayonnaise.
MJÓLKURSAMSALAN I REYKJAVÍK
FV 11 1975
39