Frjáls verslun - 01.01.1976, Síða 33
ferðar á viðeigandi hjartagæzlu-
deild sjúkrahúsanna, þegar
því verður við komið. Með-
ferðin verður þó aðallega í
því fólgin að gefa lyf, sem
draga úr hættunni á alvarleg-
um hjartatruflunum, ráða bót
á hjartsláttartruflunum séu
þær til staðar, draga úr ó-
heppilegum afleiðingum hjarta-
bilunar með viðeigandi lyfja-
gjöfum. Við vissum tegundum
hjartsláttartruflana eru gang-
ráðar notaðir til að viðhalda
fullnægjandi hjartslætti. Gefin
eru lyf, sem auka kraft og af-
köst hjartavöðvans og draga
þannig úr hættunni á losti.
Margt fleira mætti til telja.
Án þess að nefna sérstakar
tölur, er óhætt að segja, að ef
sjúklingur, sem hefur fengið
skyndilegt hjarta- eða æðaáfall
fær tafarlítið viðeigandi með-
ferð, að þá lifa langflestir
sjúkdóminn af. Eftir að þeir
útskrifast af sjúkrahúsi nær
mikill meirihlutinn það góðri
heilsu að geta tekið upp fyrri
störf. Með viðeigandi endur-
hæfingu, sem nú er að ryðja
sér til rúms, hefur langtíma
árangur aukizt. Menn fá auk-
ið starfsþrek og fjöldi þeirra
sem kemst aftur til vinnu sinn-
ar og geta unnið þar störf sín,
eins og ekkert hafi i skorizt,
eykst.
F.V.: Er að vænta nýjunga á
þessu sviði læknavísinda á
næstunni er marka munu tíma-
bót?
Snorri Páll: Á undanförnum
áratugum hafa orðið stöðugar
framfarir á þessu sviði lækna-
vísindanna. Hjartaþræðingarn-
ar mörkuðu tímamót á sínum
tíma, siðan skurðaðgerðir á
meðfæddum hjartasjúkdómum
og lokugöllum. Nákvæmar
greiningaraðferðir hafa komið
til sögunnar. Þekking manna
á hættuþáttum og meðferð-
um þeirra hefur aukizt stór-
lega. Gangráðar voru fundnir
upp til að ráða bót á vissum
hjartsláttartruflunum. Hjarta-
raflost var tekið í notkun fyrir
10-15 árum í meðferð hjart-
sláttartruflana. Skurðaðgerðir
á kransæðum hafa á allra síð-
ustu árum rutt sér til rúms.
Hjálpardælur til að létta á
starfi hjartans í bráðum hjarta-
áföllum hafa verið notaðar síð-
ustu árin. Gervilokur eru
græddar í hjarta, þegar um
sjúkdóma í hjartalokum er að
ræða.
Enginn vafi er á, að fram-
farir munu eiga sér síað, jafn-
vel með auknum hraða á þessu
sviði og nýjungar munu koma
fram. Unnið er að rannsóknum,
sem virðast þegar bera árang-
ur við að draga úr skemipdum
á hjartavöðva við bráða krans-
æðastíflu. Endurbætur eru
gerðar á hjálpardælum við
hjartabilun. Unnið er að kappi
að smíði gervihjarta og eru
menn þegar komnir talsvert á-
leiðis á því sviði.
Þótt Bandaríkjamönnum
virðist hafa tekizt að draga
verulega úr tíðni kransæða-
sjúkdóma með breyttum lifn-
aðarháttum, m. a. með breyt-
ingu á mataræði og stórminnk-
uðum vindlingareykingum þar
í landi eða um 30%, þá hefur
þó ekki ennþá fundizt ráð til
að koma í veg fyrir æðakölk-
un og þar með kransæðasjúk-
dóma. Afar umfangsmiklar
rannsóknir fara nú fram á
þessu sviði víða um heim. Ekki
er að efa að þær bera árang-
ur, en ennþá hillir þó ekki
undir neina einfalda eða alls-
herjar lausn á því mikla heil-
brigðisvandamáli.
íþrótta-
blaðið
Eina íþróttablað
landsins.
Fjallar um íþróttir
og útilíf.
Áskriftasímar:
82300 — 82302
... við stigum skrefið til fulls!
og kynnuin ný.ia tryggingu
fyrir heimili og fjölskyldu
sem er einstök í sinni röð
Altrygging er nýtt trygginga-
form, sem veitir heimilinu
og fjölskyldunni fyllsta
öryggi. Hér fara á eftir
nokkur dæmi um hvað
ALTRYGGING
bætir framyfir venjulega
heimilstry ggingu:
Bætir nánast allt án undan-
tekninga
— eigin áhætta er þó 5400
krónur
Giidir i ölhim lieiminum
— bæði menn og munir eru
verndaðir á ferðalagi sem við
dvöl
Uágmarkstryggingar-
upphæð er kr. 4.000.000
— fyrir lausafjármuni
(kr. 400.000 — utan heimilis)
Tekur til þýðingarmikilla
hagsbóta: Skaðabótaréttar
Bætir líkamstjón, sem
tryggður verður fyrir og fær
ekki bætt frá tjónvaldi, með
allt að kr. 2.000.000
Béttargæzlu
Bætir lögmanns- og máls-
kostnað út af ágreinings-
málum
I»ar að auki fá allir í fjöl-
skyldimni góða undirstöðu-
vernd gagnvart slysum
í fristundum, við heimilis-
störf og við skólanám
Dæmi:
Ef þú fótbrýtur þig i Napolí
eða Neskaupstað....
Altryggingin greiðir auka-
kostnaðinn
Ef þú missir myndavélina
þína í Mývatn eða Miðjarðar-
iiafið...
— þá færð þú nýja frá
Ábyrgð. Tryggingin bætir
notaða hluti með nýjum svo
fremi sem þeir eru ekki
afgamlir eða sundurslitnir
Ef litli bróðir brýtur sjón-
varpið eða stóri bróðir nýju
skíðin sín í Hlíðarf jalli...
— eða pappi missir pípu-
glóðina í bezta sófann
— þá bætir Altryggingin það
Ef Sigga litla ætlar að hjálpa
mömmu við uppþvottinn en
lætur mávastellið i þvotta-
vélina í staðlnn fyrir
uppþvottavélina
— greiðir tryggingin bæði
stellið og þvottavélina
Ef mamma verður svo
ólieppin að rifa nýju kápuna
sina...
þá bætir Altryggingin tjónið
ABYRGÐ!
Tryggingarfélag
fyrir bindindismenn
Skúlagötu 63 . Reykjavík
Sími 26122
FV 1 1976
33