Frjáls verslun - 01.01.1976, Blaðsíða 37
leyfír ekki glæstar vonir um
verðhækkun íslenzkra afurða.
ÁFRAMHALDANDI VIÐ-
SKIPTATÁLMANIR
Rauðablásturinn í Hvalfirði
ætlar að dragast á langinn.
Viðskiptatálmanir eru áfram
erlendis vegna þess að ekki
hefur tekist að semja í land-
helgismálinu. Álið hefur ekki
skilað eins miklu á undan-
förnum mánuðum og búist var
við. Veruleg orka fer í að
greiða afborganir og vexti af
erlendum lánum.
SIGLT MILLI SKERS OG
BÁRU
Stefna ríkisstjórnarinnar er
greinilega sú að sigla milli
skers og báru með því að stilla
erlendum lántökum og inn-
lendum aðgerðum rétt saman.
Þetta þýðir hins vegar að allt
er unnið fyrir gýg, ef lífs-
kjarakapphlaupið hefst of
fljótt aftur. Þegar næsti upp-
gangur kemur verður að byrja
á því að létta skuldabyrðina
og safna til næsta afturkipps.
Skyldi þetta takast næst
eða endurtekur sama hring-
rásin sig einu sinni enn?
LÆRT Á KERFIÐ
Ég hef stundum verið að
velta því fyrir mér hvernig
færi, þegar allur almenningur
lærir á kerfið og fer að spila
á það. Enginn vafi leikur á
því að óðaverðbólgan sem ríkt
hefur og þær miklu svifting-
ar sem verið hafa í gjaldeyr-
ismálum hafa gjörbreytt við-
horfum og atferli fólks sem
þegar hafði ekki rankað við
sér. Einmitt vegna þessa mynd-
ast sú þverstæða að fólk fer
að telja sér hag í því að verð-
bólgan haldi áfram. Á hinn
bóginn er líklegt að verði
greiðslustaðan gagnvart út-
löndum ekki styrkt og jafn-
framt dregið stórlega úr verð-
bólgunni muni þjóðfélagið
sjálft breytast stórlega.
Færðu fullar bætur,
tapirðu innbúinu?
hcimilistækjunum eóa bokunum.
Þar vió bætast gólfteppin, rúm-
fatnaóur og fatnaóur fjölskyldunnar
Svo má lengi telja.
Nánari atnugun þín mun
leiða í ljós hve há heimilis-eða
innbústryggingin þarf að vera. Að
því búnu nægir eitt símtal við
okkur, eða næsta umboðsmann
okkar, til að koma þessu í lag.
Það veltur a ymsu, aöaUega þo
á tryggingarupphæðinni.
Er hún í samræmi við
verðgildið í dag, eða e.t.v. óbreytt
fra gömlum tíma.t.d. kr. 150 þús.
eða svo ? Þu fengir ekki mikiö
fyrir þá upphæð.
I borðstofuskápnum einum
eru trúlega meiri verðmæti, eða
í hljómflutningstækjunum.
ARMULA 3
SIMi 38500
Hver
er
hvað?
Þegar þú þarft að finna rétta
viðskiptaaðilann til þess að
tala við, þá er svarið að finna
í uppsláttarritinu "ÍSLENSK
FYRIRTÆKI”
Þar er að finna nöfn og
stöður þúsunda stjórnenda
og starfsmanna í íslenskum
fyrirtækjum, hjá stofnunum
og félagasamtökum og auk
þess starfsmenn stjórnar-
ráðsins og sveitarstjórnar-
menn.
Sláiö upp í
’ÍSLENSK FYRIRTÆKI”
og finnið svarið.
FÆST HJÁ ÚTGEFANDA. j
Útgefandi: FRJÁLST FRAMTAK hf.
Laugavegi 178-Símar: 82300 82302
FV 1 1978
37