Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1976, Síða 71

Frjáls verslun - 01.01.1976, Síða 71
Bolungarvík: Jarðfræðingar vissir um að þar sé heitt vatn að finna Tilraunaholu sleppt en vinnsluhola boruð strax Einn ,a£ nýrri kaupstöðum landsins er Bolungarvík. Þar búa nú um 1100 manns, eða % hlutar íbúa Norður-ísafjarðarsýslu utan ísafjarðarkaupstaðar. Þegar Frjáls verzlun heimsótti Vestfirði fyr- ir skömmu var Guðmundur Kristjánsson bæjarstjóri Bol’ungar- víkur beðinn að segja örlítið frá helstu verkefnum bæjarstjórnar á staðnum. — Það má eiginlega segja að aðalstarfið undanfarna áratugi hafi verið hafnarframkvæmdir, sagði Guðmundur, — enda hef- ur nokkuð orðið ágengt. Fyrir 3—4 árum var komin aðstaða fyrir þann flota sem þá var til, en síðan bættist skuttogarinn Dagrún í flotann og með til- komu hans urðu til ný vanda- mál. Skuttogarinn getur ekki athafnað sig í höfninni hérna nema á flóði og í góðu veðri. Nú er gert ráð fyrir dýpkunar- framkvæmdum í höfninni á þessu ári, en fleira verður að koma til. Höfnin verður að stækka til að skuttogarinn þurfi ekki að fara til ísafjarðar með aflann í slæmum veðrum. SUNDLAUG OG HITA- VEITA Af öðrum framkvæmdum í Bolungarvík má nefna bygg- ingu sundlaugar. Sundlaugar- byggingin er nú á því stigi að verið er að bjóða út tréverk. Við vonumst til að hún verði til um næstu áramót. Með sundlauginni batnar mjög að- staða til iþróttaiðkana á staðn- um. Eina innanhússaðstaðan hér er í samkomuhúsinu. Svo er verið að vinna að lagningu varanlegs slitlags á götur bæj- arins og er það gatnagerðarfyr- irtækið Átak hf. sem sér um þær framkvæmdir. Nú er lokið við að setja slitlag á samtals tvo kílómetra af götum bæjar- ins og væntanlega verður hald- ið áfram næsta sumar. Eins og á fleiri stöðum á Vestfjörðum er verið að kanna hitaveitumöguleika i Bolung- arvík. Borað var fyrir heitu vatni fyrir nokkrum árum án teljandi árangurs, en á staðnum er sjálfrennandi lind með tveimur sekúndulítrum af 30 gráða heitu vatni. — Jarðfræð- ingarnir eru vissir um að hér er heitt vatn í hitaveitu, sagði Guðmundur. — Þeir eru svo vissir að þeir leggja til að ekki verði boraðar neinar tilrauna- holur, heldur farið beint í að bora vinnsluholu. Við bindum miklar vonir við þessa borun, því staðnum yrði mikill hagur í hitaveitu. LEIGUÍBÚÐIR BÆJARINS í Bolungarvik er nú unnið að smíði leiguíbúða fyrir bæjar- sjóð. — Ætlunin er að byggja hér 21 leiguíbúð í allt, sam- kvæmt lögum um 1000 leigu- íbúðir utan Reykjavíkursvæð- isins, sagði Guðmundur. Við höfum þegar leigt út þrjár og sex eru í smíðum. Húsnæðis- málastjórn lánar 80% af bygg- ingarkostnaði íbúðanna, en bæjarsjóður fjármagnar af- ganginn með því að selja leigj- endunum skuldabréf. Það vekur athygli hve veg- legar skrifstofur Bolungarvík- urkaupstaðar eru og því var bæjarstjórinn inntur eftir því hver ætti húsnæðið. — Það var byggt af bæjar- sjóði, Sparisjóði Bolungarvíkur og ríkissjóði og var tekið í notkun fyrir einu og hálfu ári síðan. Bæjarskrifstofurnar og afgreiðsla Sparisjóðsins eru hér til húsa, sömuleiðis slökkvi- stöð og til stendur að bæjarfó- geti og lögregla fái hér aðstöðu, sagði Guðmundur Kristjánsson bæjarstjóri Bolungarvíkur að lokum. FV 1 1976 71
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.