Frjáls verslun - 01.02.1976, Blaðsíða 21
mikílvægu framleiðsíugrein
Skota sem sérstaka tekjulind
fyrir ríkissjóð hvenær sem slíks
er þörf, hefur verið tekin upp
á öðrum vettvangi til umfjöll-
unar, að sögn framleiðenda.
Samkvæmt upplýsingum sam-
bands skozkra viskíframleið-
enda hækkuðu álögur eða skatt-
ar á skozkt viskí í 28 löndum í
fyrra. í Brasilíu hækkaði verð-
ið um 60%, í Grikklandi var
settur á það 80% munaðarvöru-
tollur, í Hong Kong hækkaði
tollurinn um 7,5%, stjórn Líb-
anon kom á 12 punda tolli á
hvern lítra af innfluttu áfengi
og Nicaragua tók upp nýjan
virðisaukaskatt sem nemur
63%. Þetta eru aðeins fáein
dæmi um versnandi kjör fyrir
viskíframleiðendur á erlendum
mörkuðum.
Þeir hafa þó alla tíð staðið
frammi fyrir svipuðum vanda.
Reynslan áður fyrr var aftur á
móti sú, að þegar viðskiptamúr-
ar voru reistir á einum stað
jókst eftirspurn til mikilla
muna annars staðar. Að undan-
förnu hefur útflutningur Skota
hins vegar minnkað að magni
til vegna þess að mörg beztu
viðskiptalöndin hafa orðið illi-
lega fyrir barðinu á efnahags-
kreppunni. Fyrri helming árs-
ins í fyrra var afgreitt 2%
minina af viskíi til útlanda en á
sama tíma 1974, eða 41,5 millj-
ón gallon. Það kom sem reiðar-
slag yfir viskíframleiðendur að
útflutndngur til Bandaríkjanna,
sem eru stærsti markaðurinn
fyrir skozkt viskí minnkaði um
7% á þessum tíma.
HUGGUN HARMI GEGN
Á heimamarkaðinum hefur
hækkun viskítolls ríkisins haft
sín áhrif og síðari helming árs-
ins hafði salan minnkað að
magni til.
Það er þó huggun harmi gegn
fyrir viskíframleiðendur að
þeim tókst að hækka útflutn-
ingsverðið svo mikið, að þrátt
fyrir minnkað útflutningsmagn
hefur verðmætið ekki minnk-
að nema ef síður væri. Á tíma-
bilinu janúar-júní í fyrra jókst
söluverðmæti erlendis um 10%
upp í 164 milljónir sterlings-
punda.
Vestrænir kaupsyslumenn spyrja:
Hvernig á að gera
viðskipti
við Arabahöfðingjana?
Sölumenn frá Vesturlöndum flykkjast
til Arabalanda og læra af reynslunni
Kaupsýslumenn alls staðar að úr heiminum flykkjast nú til Araba-
ríkjanna við Persaflóa til að reyna að ná viðskiptasamningum við
hin vellauðugu olíuríki. Kaupsýslumennirnir eru að reyna að ná
sér í bita af stærstu peningaköku heims með því að bjóða ráða-
mönnum olíuríkjanna tækjabúnað og þjónustu í sambandi við
hinar miklu þróunar og uppbyggingaráætlanir, sem þessi ríki
hafa sett í gang.
Kaupsýslumennirnir hafa
undanfarið einkum verið frá
vestrænum ríkjum, sem hvað
verst urðu úti í kreppunni, sem
kom í kjölfar olíuverðhækkun-
arinnar, en nú bætast óðum í
hópinn menn frá Asíulöndum,
Afríku og S-Ameríku, sem hafa
það eitt í huga að rétta af við-
skiptahallann, sem þau urðu
fyrir vegna olíuverðshækkunar-
innar.
Viðskiptavertíðin á þessum
slóðum hefst fyrir alvöru, er
kemur fram í desember og jan-
úar, er þrúgandi hiti og raki
sumarsins við Persaflóa hefur
vikið fyrir aðeins kaldara og
þægilegra veðurfari. Þó er allt-
af nokkur hópur harðsækinna
manna, sem lætur hitann ekki
á sig fá og telja hagsmunum
sínum betur borgið þegar sam-
keppnin er í lágmarki.
BJÓÐA HÖNNUN OG SMÍÐI
ATVINNUFYRIRTÆKJA
Þessir menn bjóðast til að
byggja verksmiðjur, selja vör-
ur, þjónustu og sérfræðikunn-
áttu til ríkjanna við flóann frá
Kuwait til Omanifjallanna, sem
Rikin við Persaflóa auglýsa viðskiptamöguleika sína í heimsblöð-
'unum. Nýrra atvinnufyrirtækja er þörf til að bæta lífskjör fólks-
ins.
Flylran AirtO ilun lr»a I Ikcoumn'j vou rcally tin'utloitl ixh u
nctv opportunities.
rcw<ouiuiicj»nr»btrt icniunK'ronJofiulrokUoíflhÆf moicdcuiU.
hnlJouihctiopn»p«iiioihí cvtrv kinJ.Ifiou'rtpUnninit ÆtZ---, ...
viuung Bnmh bmmcvmun a biumco mp n> ihc lar Eait, JZIMf SU§
FV 2 1976
21