Frjáls verslun - 01.02.1976, Page 38
greidd á annað þúsund slíkra
viðfangsefna. Þessi þjónustu-
verkefni greinast í: Steypu-
rannsóknir, jarðtæknirannsókn-
ir, vegagerðarrannsóknir, bygg-
ingatæknilegar rannsóknir og
ýmsar rannsóknir. Tæmandi yf-
irlit yfir starfsemina er í árs-
skýrslu stofnunarinnar 1974—
1975 sem er væntanleg.
Varla er við því að búast að
skörp skil séu milli verksviða
rannsóknastofnana, og sumt af
því sem Rannsóknastofnun iðn-
aðarins fæst við tengist meira
og minna byggingaiðnaði. Hjá
þeirri stofnun standa nú yfir
rannsóknir og tilraunir með ís-
lenskan perlustein með tilliti
til hagnýtingar hans sem bygg-
ingarefnis, bæði sem einangrun
og efni í milliveggja- og þilplöt-
ur. Þá hafa einnig verið gerðar
tilraunir með steinullargerð úr
basaltbráð.
Perlusteinstilraunir eru
framkvæmdar samhliða til-
raunaþenslu á perlusteini, sem
nú sendur yfir hjá Sements-
verksmiðjunni að tilhlutan Gos-
efnanefndar Iðnaðarráðuneyt-
isins.
Hér á landi hefur starfað
ungverskur sérfræðingur á veg-
um SameinUðu þjóðanna í rúmt
ár og er hann ráðgefandi um
perlusteinsvinnslu. Víða er-
lendis er umtalsverður iðnaður
byggður á notkun perlusteins
og virðist þróunin vera tví-
mælalaust í þá átt að perlu-
steinn verði sífellt verðmeira
iðnaðarhráefni. Með tilliti til
þess hve gífurlegt magn af
vinnsluhæfum perlusteini er i
Prestahnúki á Kaldadal, vægt
reiknað um 30 milljón tonn,
má ætla að útflutningur í stór-
um stíl gæti orðið veruleg bú-
bót fyrir þjóðarbúið á næstu
áratugum. Þó er rétt að vera
hæfilega bjartsýnn á tekjuöfl-
un af þeim útflutningi, þar sem
mörg ljón eru á veginum, og
skortur íslendinga á þekkingu
og reynslu af markaðsöflun er-
lendis á þessu afmarkaða sviði,
er líklegur til að þyngja róður-
inn verulega.
Nokkrar aðrar opinberar
stofnanir fást við, eða munu
fást við rannsókna- og tilrauna-
starfsemi á sviði byggingaiðn-
Smári hf. Byggingaverktakar
Furuvöllum 3, Akureyri. Sími 96-21234
Erum að hefja byggingu á fjölbýlishúsi, 2, 3 og 4
herbergja íbúðum.
•
Sala íbúðanna hefst um miðjan marz. Kynnið ykkur
verð og greiðsluskilmála.
•
Teikningar og allar upplýsingar Iiggja frammi á
skrifstofunni.
•
Beðið verður eftir láni Húsnæðismálastjórnar
ríkisins.
Smári hf. Byggingaverktakar
Furuvöllum 3 — Akureyri — Sími 96-21234
38
FV 2 1976