Frjáls verslun - 01.02.1976, Side 67
Hin nýja síldarbræðsla Síldarvinnslunnar á Norðfirði.
Síldarvinnslan iVeskaupstað:
Bætur Viðlagasjóðs duga ekki
fyrir endurbyggingu
Rætt við Óskar Gunnarsson framkvæmdastjóra
— Það má segja að þetta
fyrirtæki sé umfangsmikið á
mælikvarða staðarins. Við er-
um með frystihús, saltfiskverk-
un, skreiðarverkun þegar hún
á við, niðurlagningu og niður-
suðu þegar eitthvað er hægt
að gera á því sviði, síldarverk-
smiðju, útgerð á tveimur skut-
togurum og einu nótnaskipi.
Þetta sagði Olafur Gunnarsson,
framk væmdastjóri Síldarvinnsl-
unnar hf. á Neskaupstað þegar
Frjáls verzlun heimsótti hann
á dögunum.
Síldarvinnslan hf. er svo til
eini aðilinn í Neskaupstað sem
fæst við fiskverkun og jafn-
framt stærsti vinnuveitand-
inn á staðnum. — Við erum
með allt frá 80-200 manns í
vinnu, eftir því hvaða árs-
tími er og hvernig aflabrögðin
eru, sagði Ólafur. — Síðasta
ár hefur verið mikii atvinna
hér á staðnum og mikil eftir-
spurn eftir vinnuafli vegna
uppbyggingarstarísins. Síldar-
vinnslan hefur þurft að standa
í ströngu við uppbyggingu, því
frystihúsið skemmdist og síld-
arvetksmiðjan eyðilagðist al-
veg í snjóflóðunum, sagði Ól-
afur.
Kapphlaup við tímann.
Síldarvinnslan fékk lóð und-
Ólafur G'unnarsson,
framkvæmdastjóri.
ir nýja verksmiðju í júní eða
júlí 1975 og var þá þegar haf-
ist handa við undirbyggingu. í
byrjun september voru vélar
settar á undirstöðurnar og
þakið var komið á í október.
Það hefur verið unnið jöfnum
höndum með allt í verksmiðj-
unni og endurbyggingin tekið
tiltölulega skamman tíma. —
Við vonum að þetta fari að
komast í skikkanlegt horf allt
saman, sagði Ólafur. Við höf-
um verið í kapphlaupi við tím-
ann vegna þess að við höfum
ekki viljað láta loðnuna fara
framhjá áður en við setjum
verksmiðjuna í gang. Þetta er
búið að vera kostnaðarsamt
fyrirtæki, t. d. vegna þess hve
viðamikið þetta hefur verið.
Frystihúsið var ekki í gangi í
3 mánuði vegna skemmda, en
það var allt sett upp á sama
stað, sagði Ólafur.
Vegna þessara gífurlegu
skemmda á eignum Síldar-
vinnslunnar hefur fyrirtækið
fengið bætur frá Viðlagasjóði.
— Þessar bætur hafa ekki dug-
að fyrir kostnaðinum við end-
urbygginguna, sagði Ólafur og
vantar mikið upp á en það
dæmi verður ekki fullreiknað
fyrr en eftir 3-4 mánuði. Bæt-
urnar voru miðaðar við verð-
lag seinni hluta síðasta árs og
í sambandi við frystihúsið, sem
tók tiltölulega skamman tíma
að gera við kemur dæmið
sennilega ekki mjög illa út.
Sæmilegur afli togaranna.
Síldarvinnslan hf. var stofn-
uð árið 1957 og byrjaði fyrst
með síldarverksmiðju. Á ár-
unum 1964—1967 voru keyptir
4 nótnabátar, en frysti'húsið
FV 2 1976
67