Frjáls verslun - 01.11.1976, Blaðsíða 59
Norðurbraut hf. sjái um iagn-
ingu varanlegs slitlags á götur
Raufarhafnar, en sveitarfélagið
er hluthafi í Norðurbraut.
Reiknað er með að lagning var-
anlegs slitlags hefjist 1978, en
samtímis gatnagerðiruni verður
allt holræsakerfið endurnýjað
og sömuleiðis vatnsveitukerfið
í bænum.
SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI
Skrifstofur Raufarhafnar-
hrepps fluttu á sl. sumri í ný-
innréttað og vandað skrifstofu-
húsnæði. Hreppurinn hefur
leigt hús til 10 ára og notar
það jafnframt fyrir bókasafn.
Skrifstofa ihreppsins var áður í
einu herbergi í svokölluðum
læknisbústað, eni þar sem fjölga
þurfti starfsfólki á skrifstof-
unni var óhjákvæmilegt að
auka við húsnæðið. Umsvif
hafa aukist mjög hjá hreppnum
á undanförnum árum og var
því ráðin stúlka á skrifstofuna
til að annast launaútreikninga
og önnur skrifstofustörf. Áður
þurfti sveitarstjórinn að sjá um
alla skrifstofuvinnu auk áætl-
anagerðar fyrir 'hreppinn, verk-
stjórnar við leiguíbúðirnar og
stjórnun á áhaldahúsi hrepps-
ins, sem er eina þungavinnu-
vélafyrirtækið í nágrenninu.
HAFNARFRAMKVÆMDIR
Á sl. sumri kom samstarfs-
nefnd um hafnarmál ásamt
hafnarmálastjóra í heimsókn
og upplýstist það þá, að fyrir-
hugað er að koma upp grjót-
garði úr 15000m;! af grjóti til
skjóls fyrir smábáta í höfninni.
Hefja á verkið á næsta ári og
vinna þá fyrir 20 milljónir. Á
árinu 1978 er svo áformað að
byggja 60 metra langa viðlegu-
bryggju fyrir smábáta innan
grjótgarðsins. Áætlaður kostn-
aður við það verk er 25 millj-
ónir. Sama ár er ætlunin að
dýpka höfnina. Þá má gera ráð
fyrir að höfnin fari að verða
sæmilega örugg fyrir þessa 30
—40 smábáta, sem gerðir eru
út á staðnum, en aðstaða fyrir
þá hefur verið óviðunandi. Þá
er það á áætluninni að koma
upp löndunarkanti í tengslum
við frystihúsið, en það verður
50 metra langt stálþil.
ÍÞRÓTTAHÚS
Á þessu hausti á að byrja
framkvæmdir við byggingu í-
þróttahúss, sem nýlega var
klárað að hanna. Byrjað verð-
ur á því að grafa grunn undir
sundlaugarhluta, en í húsinu
verður bæði sundlaug og í-
þróttasalur. Hreppurinn hefur
að vísu ekM fengið fram-
kvæmdaleyfi, en ætlar sér að
byrja upp á eigin spýtur. Eins
og er verðum við að senda
börn á sundnámskeið að Laug-
um í Suður-Þingeyjarsýslu, svo
þörfin er brýn að koma sund-
lauginni upp.
SKIPULAG
Ekki er til neitt staðfest
skipulag af Raufarhöfn, en til
er endurskoðað skipulag frá
1942, sem reynt er að fara eft-
ir. Núna er verið að vinna að
endurskoðun skipulagsins hjá
skipulagsstjóra ríkisins og er
þá jafnframt unnið að skipu-
lagi hafnarinnar í samvinnu við
hafnarmálastjóra. Gamla skipu-
lagið var allt miðað við síldar-
útvegsbæ, sem ekki er lengur
raunhæft og var því þörf á að
endurskoða þetta.
S AMGÖN GUMÁL
Þeir sem áræða að fara land-
leiðina til Raufarhafnar veita
því óhjákvæmilega athygli, að
Sléttuvegur er með því lakara
sem til er á landinu. Það hefur
verið deilt um það hvort fara
ætti með sjó við endurbyggingu
vegarins, eða hvort gera ætti
veg þvert yfir sléttuna. Valið
hefur verið að fara með sjón-
um, þótt um lengri leið sé að
ræða, því sú deið ikemur til með
að haldast opin lengur. Það var
byrjað á þessari framkvæmd á
árinu og unnið fyrir 20 millj-
ónir króna. Ef svona verður
haldið áfram ætti heils árs
vegur að vera kominn fy.rir
Sléttu eftir 3 ár. Það verður
veruleg bragarbót fyrir okkur,
því mest af aðdráttum hiingað
fer fram landleiðina.
Kaupfélag l\l-Þingeyinga
Verða að
taka mjólk
frá Húsavík
Á Raufarhöfn búa einungis
um 480 manns, en þar eru þó
reknar tvær matvöruverslanir.
Önnur þeirra er útibú frá
Kaupfélagi Norður-Þingeyinga
á Kópaskeri og er að sumu
leyti fjarstýrt þaðan, en dag-
legum rekstri verslunarinnar
stjórnar ung stúlka að nafni
Ingunn Árnadóttir, og átti hún
einmitt 21 árs afmæli daginn
sem Frjáls verslun hitti hana
að máli á Raufarhöfn.
Verslunarstjórinn
Ingunn Árnadóttir.
FV 11 1976
57