Frjáls verslun - 01.11.1976, Blaðsíða 100
Ew4
ritstiárn
Bætt kjör láglaunafólks
Þing Alþýðusambands Islands hefur gei'ið
tilefni til líflegra umræðna undanfarið og
blöðin liala gefið því ríflegt umtal svo sem
vænta mátti. Forystumenn verkalýðshreyf-
ingarinnar hafa að þingi loknu reynt að meta
árangurinn al' því og tala þá gjarnan um
sóknarþing og að vörn sé breytt í sókn í
verkalýðsbaráttunni með þessu þingi.
Hvað sem því líður eru altar horfur á að
cnn verði á það knúið af hálfu verkalýðs-
hreyfingarinnar snemma næsta árs, að laun
í landinu hækki almennt mjög verulega.
Margir eru uggandi um að sá árangur, sem
náðst hefur í viðureign við verðbólguna
verði að engu gerður með einu pennastriki og
nú þegar eru kunnugir farnir að spá 40%
verðbólgu í kjölfar nýrra kjarasamninga.
I lengstu lög verður að vona, að til slíkrar
ógæfu komi ekki en liitt er líka ljóst, að stór
hópur launþega á réttmætar kröfur til um-
talsverðra kjarabóta, sem koma verður til
móts við. Alkunna er, að þeir lægstlaunuðu
hafa ekki borið jafnmikið úr býtum og á-
stæða hefur verið til við gerð kjarasamninga
undanfarinna ára. Alltaf hafa þeir, sem bet-
ur máttu sín fyrir, fleytt rjómann ofan af
og launabilið milli launþegahópanna inn-
byrðis lialdizt óbreytt ef ekki breikkað. Þótt
fjálglega liafi verið talað um að laun hinna
lægstlaunuðu þyrfti að hækka hefur árangur
imi ekki verið eftir því. - Þar er
verkatýðsforystunni fyrst og fremst sjálfri
um að kenna, því að hún hefur ekki getað
tekið ábyrga afstöðu með hinum verst settu
innan shma raða, ef það þýddi mcira aðtiald
i tiækkun til þeirra, sem meira máttu sín.
I fljótu bragði virðist árangurinn al' nýaf-
stöðnu ASl-þingi alla vega vera sá, að mönn-
um sé ljóst, hver alvara er þarna á ferðum
og að nú verði að breyta um stefnu til hags-
bóta lyrir láglaunastéttirnar. I sjónvarpsvið-
tali að loknu ASl-þinginu, lagði formaður
Landssambands ísl. verzlunarmanna höfuð-
áherzlu á þetta, en það var atliyglisvert, að
koimnúnistinn, sem sat fyrir svörum með
lionum stó úr og í vegna liagsmuna hins svo-
nefnda „uppmælingaaðals", sem hann var
fulltrúi fyrir.
Haft hefur vcrið á orði, að láglaunahóp-
arnir hafi styrkt mjög stöðu sína innan
verkalýðshreyfingarihnar á þinginu. Von-
andi er það til merkis um, að forysta hennar
hagi sér öðru visi í komandi samningum en
liingað til og sýni það ótvírætt í verki, að
hún vilji fyrst og fremst bæta hag hinna
lægst launuðu. Um það getur áreiðanlega
náðst víðtæk samstaða með öðrum aðilum
vinnumarkaðarins og stjórnvöldum, að svo
miklu leyti sem þeim á að blanda inn í al-
menna samningagerð.
Vaxtafrádrátturinn
Það gengur fjöllunum hærra, að með
breytingum á reglum um vaxtafrádrátt til
skatts verði hagur húsbyggjenda mjög
skéftur frá því scm nú cr. Seint skal því
trúað, að forsvarsmenn Sjálfstæðisflokksins
á þingi og í ríkistjórn muni eiga aðild að
þess konar ráðstöfunum, svo mjög scm tals-
menn flokksns halda á loft einstaklingsfram-
taki og því stefnumáli, að hér á landi verði
fólki gert kleift að búa í eigin húsnæði. Er
þetta grundvallannunur á fyrirkomulagi
húsnæðismála hér og víðast í nágrannalönd-
um okkai*, sem Islendingar geta verið stoltir
af. Til þess að ná árangri og verða öðrum ó-
liáðir i húsnæðismálum hafa ungir húsbyggj-
endur orðið að leggja hart að sér og vinna
mikið til að ná nauðsynlegum tekjum meðan
á framkvæmdum hefur staðið. Samt hefur
ckki annað dugað en veruleg skuldasöfnun
að auki. Stjómvöíd hafa tekið tillit til þess-
ara sérstæðu aðstæðna með frádrætti vaxta
á skattframtali og hafa þeir, sem nýverið
hafa lagt í fjárfestingar ekki trúað öðru en
að svo myndi verða áfram. Vonandi kemur
]iað líka i ljós, að sá ótti við grundvallar-
breytingar í þessu efni, sem hefur gri])ið um
sig síðustu vikur, eigi ekki við rök að styðj-
ast.
08
FV 11 1976