Frjáls verslun - 01.11.1976, Blaðsíða 81
Stjórnunarfélagid
Heldur 30 námskeið
í vetur
Starfsemi Stjórnunarfélags
íslands hefur vaxið jafnt og
þétt undanfarin ár. í vetur
verða haldin 30 námskeið á
vegum félagsins, en auk þess
gengst félagið fyrir margs kon-
ar fundum um þjóðhagsleg efni
og stuðlar að útgáf'u stjórnun-
arbóka. Formaður félagsins er
Ragnar S. Halldórsson forstjóri,
framkvæmdastjóri er Friðrik
Sophusson lögfræðingur, og
fræðslustjóri er Ásmundur
Stefánsson hagfræðingur.
Frjáls verzlun leitaði til Frið-
riks Sophussonar og lagði fyrir
hann nokkrar spurningar um
starfsemina.
— Hverjir standa að Stjórn-
unarfélaginu og hvert er hlut-
verk þess?
— í Stjórnunarfélaginu eru
fyrirtæki, félög, stofnanir og
einstaklingar, sem með þátt-
töku í félaginu vilja stuðla að
betri stjórnun í hvers konar
rekstri og aukinni hagræðingu.
í félaginu eru flest stærstu fyr-
irtæki og félög landsins, og má
þar nefna Samband íslenzkra
samvinnufélaga, Alþýðusam-
bandið, BSRB og Vinnuveit-
endasambandið auk annarra at-
vinnulífssamtaka. Þátttaka
laumþegafélaganna annars veg-
ar og Vinnuveitendasambands-
ins hins vegar hefur mikið gildi
fyrir félagið og starfsemi þess.
Grundvallarreglur stjórnunar
eru ekki aðeins fyrir þá, sem
stjórna heldur og fyrir þá, sem
stjórnað er. Stjórnunarfélagið
getur verið ákjósanlegur vett-
vangur fyrir ýmis þjóðþrifa-
mál, þa.r sem ofangreindir aðil-
ar koma saman ásamt ríkisvald-
inu, en fjöldi ríkisstofnana á
aðild að félaginu. Stjórnunar-
félagið gengst fyrir ráðstefnum
og fundum og hefur stuðlað að
útgáfu stjórnunarbóka, en
veigamesti þáttur starfsins eru
námskeiðin, og þar njóta félag-
ar afsláttarkjara.
— Hvernig eru námskeiðin
sótt, og hverjar eru helztu nýj-
ungar í námskeiðahaldi félags-
ins?
— Nú í vetur gengst félagið
fyrir u.þ.b. 30 námskeiðum um
26 mismunandi efni. Flest nám-
skeiðanna eru sæmilega sótt og
sum mjög vel, en önnur illa,
og því miður virðast mér það
stundum vera námskeið, sem
eiga virkilega erindi til ís-
lenzkra stjórnenda. Auk hefð-
bundinnn námskeiða, verðum
við með þrjú ný námskeið eftir
áramótin, þ.e. Skattskil ein-
staklinga með atvinnurekstur,
þar sem Atli Hauksson endur-
skoðandi leiðbeinir, Stefnumót-
un fy.rirtækja, sem Árni Vil-
hjálmsson prófessor sér um og
loks fáum við hingað til lands,
John Winkler, sem er einn al-
þekktasti markaðsfræðingur
breta um þessar mundir, og
mun hann leiðbeina námskeiði,
sem við höfum kallað: sala,
verðbólga, óvissa og áhætta.
Þess má geta í þessu sambandi,
að John Winkler er höfundux
bókarinnar Company Survival
During Inflation, en hún hefur
verið gefin út víða í Evrópu af
stjórnunarsamtökum og -stofn-
unum. Ég tel það hafa sýnt sig,
að flest námskeiðanna hafa
staðið fyrir sínu, enda koma
sömu aðilar gjaxnan á mý nám-
skeið, sem félagið stendur fyrir.
— En hvað um aðra þætti í
starfsemi félagsins?
— Á þessu ári höfum við
haldið nokkra smáfundi auk
stærri funda og ráðstefna. Má
þar nefna meðal efna Verk-
menntun, Fiskveiðar, Lánamál
atvinnuvega og nú síðast héld-
um við fjölmennan fund í nóv-
ember um Fjárfestingarstefnu
hins opinbera. Sé vikið að út-
gáfumálunum má minnast á
Atvinnulýðræði, sem kom út
fyrir ári síðan og Nútímastjórn-
un, sem kom út í vetur, en það
er fyrsta bók sinnar tegundar
sem er þýdd á íslenzku og
markar því tímamót með ti'lliti
til nýy.rða alls konar. Nútíma-
stjórnun var valin vegna þess
að hún er yfirgripsmikil, en að
sama skapi auðveld aflestrar
fyrir byrjendur. Og þá má að
lokum segja frá því, að nú hef-
ur hin vinsæla bók prófessors
Árna Vilhjálmssonar Fjármála-
stjórn fyrirtækja verið endur-
útgefin.
— Að lokum: Hver er helsti
vandi íslenskra stjórnunarmála
að þínu viti?
— Það er erfitt að svara þess-
ari spurningu með einföldum
hætti, en til að svara einhverju
vil ég benda á, að það er land-
lægt hér á landi að kenna fjár-
skorti um alla hluti. Vissulega
er það .rétt, að fjármagnsskort-
ur er mikill, en hann má ekki
verða til þess að koma í veg
fyrir hagræðingu og aðgerðir,
sem ætlaðar eru til að bæta
stjórnun og rekstur. Fram-
kvæmd byggðastefnu hér á
landi er gott dæmi um þetta.
Dælt er peningum í byggðarlög
og framkvæmdir áni þess að
spyrjast fyrir um það, hvort á
stöðunum sé nægileg þekking
og reynsla, sem til þarf ef hag-
nýta á fjármagnið rétt. Pleiri
atriði mætti nefna til að svara
spurningunni, en þetta er gott
til umhugsunar fyrir ráðamenn
í bili.
FV 11 1976
79