Frjáls verslun - 01.11.1976, Blaðsíða 85
förum að fást við nýtt verk-
efni. Við veljum svo það besta
úr þessum hugmyndum, sam-
einum jafnvel einstaka þætti
og felum síðan 1—2 mönnum
að vinna úr þeim mjög oft í
samráði við hina eða fleiri að-
ila. Við teljum að kostir þessa
vinnufyrirkomulags séu ótví-
ræðir fram yfir þann háttinn
að einn aðiii fóðri starfsfólkið
á hugmyndum og láti það ein-
ungis um það að útfæra sínar
hugmyndir.
Auglýsingastofan hf. gerðist
aðili að norrænu sambandi aug-
lýsingastofa Scan Viking fyrir
skömmu og einnig alþjóðlegu
sambandi auglýsingastofa, Af-
filiated Advertising Agencies
International. Aðild að þessum
samtökum gerir fyrirtækinu
kleift að njóta samstarfs, fyrir-
greiðslu og upplýsinga um aug-
lýsingastarfsemi og markaðs-
mál í helstu viðskiptalöndum
okkar.
Nú, eftir 15 ár í auglýsinga-
bransanum hefur Auglýsiinga-
stofan hf. um 30—40 fasta
viðskiptavini, þar sem stofan
sér um öll verkefni og um 30
sem láta hana annast einstaka
þætti þegar verkefni skapast. Á
sl. ári var velta fyrirtækisins
um 100 milljónir og var það
30—40% aukning f.rá árinu áð-
ur. Mest varð aukingin á sviði
sjónvarpsauglýsinga. Þessar
tölur vekja mann til umhugs-
unar um það hvort erfiðir tímar
í þjóðfélaginu komi ekki niður
á fyrirtækjum af þessu tagi?
— Kreppur í þjóðfélaginu
koma ekki fram sem samdrátt-
ur hjá okkur. Oft þvert á móti,
sagði Gísli. Erfiðir tímar gera
forráðamönnum fyrirtækja það
ljóst að þeir þurfa að nota aug-
lýsingafé sitt á sem áhrifarík-
astan hátt. Þá grípa þeir gjarn-
an til auglýsingastofanna. Á
erfiðum tímum fáum við að
vísu stundum strangari fyrir-
mæli um það hvemig við eig-
um að framkvæma hlutina, en
fólk hættir ekki að auglýsa þó
tímar séu erfiðir.
— En hvernig á góð auglýs-
ing að vera?
Gísli sagði að það væri erfitt
að segja til um það fyrirfram.
— Þegar auglýsing er gerð,
eru ótal spurningar sem við
þurfum að reyna að svara. Til
hvaða hóps á auglýsingin að ná,
hvaða fjölmiðil á að nota, 'hve
oft á að nota auglýsinguna o.s.
frv. o.s.frv. Hvort okkur hefur
tekist vel vitum við ekki fyrr
en eftir að auglýsingin hefur
verið notuð. Stundum fáum við
ótvíræðar sannanir fyrir því að
okkur tekst vel til. Eg man sér-
staklega eftir einni smjörlíkis-
auglýsingu sem olli þreföldun
á sölunni. í öðrum tilfellum
tekst okkur ekki eins vel upp.
En við höfum reynt að læra af
reynslunni og teijum að mis-
tökum okkar hafi farið fækk-
andi.
Auglýsingastofan h.f. hefur gert margar sjónvarpsauglýsingar.
Þetta eru drög að teiknimynd Iðnaðarbankans.
FV 11 1976
83