Frjáls verslun - 01.11.1976, Síða 65
Reyðarf jörður:
„Mjög erfitt að reka sveitarfélag
af stærðargráðunni 500-1000
manns”
segir Hörður Þórhallsson, sveitarstjóri
Á þessu ári hefur einkum verið unnið að tveimur verkefnum á
Reyðarfirði þ.e. í fyrsta lagi að leggja olíumöl á 1 km. langan
kafla á þjóðveginum gegnum kauptúnið og er kostnaður við það
áætlaður 22 millj. króna og í öðru Iagi hefur verið unnið að
byggingu íþróttahúss og sundlaugar en við höfum 10 millj. kr. til
að vinna fyrir í sumar, sagði Hörður Þórhallsson sveitastjóri á
Reyðarfirði þegar Frjáls verzlun ræddi við hann síðla sumars.
— Sundlaugin verður 16%x8
metrar að stærð. Verður hún
eingöngu notuð yfir sumartím-
ann, en á veturna verður gólf
lagt yfir sundlaugina og aðstað-
an þá nýtt sem íþróttahús.
Fy.rirkomulag svipað þessu er
á Eskifirði og víðar.
— Hvenær áætlið þið að víga
sundlaugina og iþróttasalinn?
— Við gerum okkur vonir
um að það takist á næsta ári,
eða þá í síðasta lagi á árinu
1978.
HÖFNIN DÝPKUÐ
— Eru ekki einhverjar hafn-
arframkvæmdir á döfinni hér á
staðn'um?
— Framkvæmdir á vegum
hafnarinnar eru ekki hafnar
enn, en fyrirhugað er að dýpka
fyrir framan stálþilið, sem var
rekið niður í fyrrahaust, en við
það fæst 100 metra viðlegu-
kantur. Á'kveðið er að dýpkun-
arskipið Hákur dæli upp hér í
höfninni er dýpkað verður og
er skipið víst ekki væntanlegt
fyrr en í haust.
— Er mikið byggt hér á
staðnum í sumar?
— Það eru 14 íbúðarhús í
byggingu í sumar, en byrjað
var á þrem í vor, en þá var út-
hlutað 10 lóðum. Að vísu dró
eitthvað úr fólki að byrja, en
þess ber að gæta, að mjög
margir hófu húsabyggingar á
síðasta ári. Á næsta ári er svo
fyrirhugað að 'hefja byggingu
leiguíbúða hér, — ef til vill í
formi fjölbýlishúss.
FJÖLGAÐ UM 50 MANNS Á
5 ÁRUM
— Nú er oft rætt um að
Reyðarfjörður verði höfuðstað-
ur Austurlands í framtíðinni
vegna mikils landrýmis. Hver
hefur fólksfjölgun orðið hér á
síðustu árum?
— Það hefur verið nokkur
fólksfjölgun og á síðustu 5 ár-
um hefur fjölgað um 50 manns,
en þá hafði ekki fjölgað í kaup-
túninu í nokkuð mörg ár. Um
þessar mundir búa 700 manns í
hreppnum, þar af um 50 á
sveitabæjum hér í grendinni.
— Hvemig er atvinnuástandi
háttað á Reyðarfirði um þessar
mundir og hvernig er útlitið
framundan?
ENGIN KRAFTAVINNA
— Það er víst óhætt að segja,
að hér sé engin kraftavinna.
Því miður er t.d. ekki stöðug
atvinna í frystihúsinu, því vill
það bera við að vinna hjá kven-
fólkinu falli niður. Það er
miklu minna um útgerð héðan
en á flestum stöðum hér í
kring. Það verða því aldrei
þessir frægu toppar á vinnu-
álagi hér, eins og sumstaðar í
útgerðarbæjum, en á hinn bóg-
inn er vinna miklu jafnari hér
um slóðir, og ég get fullyrt að
karlmenn hafi yfirleitt ærið
nóg að starfa.
—- Hingað er nýbúið að
kaupa 50 lesta bát, en það er
orðin brýn nauðsyn að endur-
nýja þau skip, sem hér eru
fyrir og um leið þarf að auka
útgerðina.
TOLLVÖRUGEYMSLA Á
NÆSTA ÁRI
Ásamt því að gegna starfi
sveitastjóra á Reyðarfirði er
Hörður um leið stjórnarformað-
ur Tollvörugeymslu Austur-
lands, sem áætlað er að taki til
starfa á Reyðarfirði á næsta
ári.
Að sögn Harðar er fyrirhug-
að að koma umdirstöðum upp
fyrir 800 fermetra hús á þessu
FV 11 1976
G3