Frjáls verslun - 01.05.1977, Qupperneq 7
í stuttu máli
# Framrúöutryggingar bifreiöa
Það kom fram í ræðu stjórnarfor-
manns Samvinnutrygginga, að hæpinn
rekstrargrundvöllur virðist vera l'yrir
rekstri l'ramrúðutrygginga hér á landi.
Hjá Samvinnutryggingum kom þessi
tryggingagrein út með 18,7 milj. kr. tapi
árið 1976, og er það lítið eitt hærri
upphæð en tapið á henni var árið 1975.
Það licfur einnig komið í ljós, að lang-
flest tjón í þessari tryggingagrein virð-
ast verða á vissum stöðum á landinu.
Slæmir staðir í þessu sambandi eru t.d.
vegurinn um Melasveit, vegurinn undir
Hafnarfjalli, svo og vegurinn frá
Þjórsá og austur fyrir Hvolsvöll. Var
bent á það á fundinum að sennilega
stæði þetta í sambandi við gerð ofaní-
burðar á þessum vegarköflum, og kæmi
])að því væntanlega til kasta Vcgagerð-
arinnar að reyna að bæta hér úr.
# Sambandsfiskurinn
Framleiðsla allra frystra afurða hjá
frystihúsunum innan Félags Sambands-
fiskframleiðenda varð 20.622 lestir árið
1976, sem er 2,0% minna en árið á und-
an. Bolfiskfrysting hjá þessum liúsum
varð 18.513 lestir, og er það 7,1%
minna en 1975. Þessi samdrátturí fryst-
ingu virðist einkum eiga sér þrenns
konar orsakir, í fyrsta lagi tímabundna
truflun á hráefnisöflun til einstakra
liúsa, í öðru lagi að meira hráefni en
áður hafi farið til skreiðarframleiðslu,
og í þriðja lagi verkloll á vetrarvertíð
1976.
Árið 1976 varð hlutdeild Sjávaraf-
urðadeildar í heildarvöruútflutningi
landsmanna 10,5%, og í heildarútflutn-
ingi sjávarafurða 14,5%. Hlutur deild-
arinnar í heildarútflutningi á freðfiski
varð 24,4%. í loðnumjöli 15,6% og í
fiskimiöli 12,9%.
Bandaríkin voru sem fyrr þýðingar-
mesti markaðurinn fyrir frystan fisk,
og fór 86,6% af freðfiskútflutningi
deildarinnar þangað. Til Sovétríkjanna
fór 12,2%, og til annarra landa 1,2%.
0 Tízkusýningarnar
Tískusýningarnar í Blómasal Hótel
Lol'tleiða eru hafnar að nýju og verða
í hádegisverðartíma á hverjum föstu-
degi til 2. september n.k.
Ekki verður unnt að telja upp allt
það sem sýnt verður, en hér eru flíkur
allt frá íslenskum ullarnærfötum til
dýrindis samkvæmisklæðnaðar, en alll
unnið úr íslenskri ull. Margar flíkur eru
handprjónaðar eða unnar í heimahús-
um og litlum verksmiðjum víðs vegar
um land. Þá mun Guðrún Vigfúsdóttir
frá Isafirði sýna handofinn klæðnað og
Jens Guðjónsson gullsmiður sýnir silf-
urskraut.
Það nýmæli verður á tískusýningun-
um að nú verður sýnd tóvinna og sér
frú Sigrún Stefánsdóttir um þann þátt
sýningarinnar.
I hlómasal stendur gestum til boða
mikill fjöldi rétta og þar er í hverju
hádegi kalt horð með um 60 réttum.
0 Trúfélögín
Mannfjöldinn 1. desemher 1976 skipí-
ist á trúfélög sem hér segir: AIls ' 220545
Þjóðkirkjan 204915
Frikirkjan í Reykjavik 6437
Óháði söfnuðurinn í Reykjavík 1439
Fríkirkjan í Hafnarfirði .... 1723
Kaþólskir 1433
Aðventistar 646
Hvítasunnusöfnuður 638
Sjónarhæðarsöfnuður 60
Vottar Jehóva 301
Baháisöfnuður 112
Ásatrúarsöfnuður 77
önnur trúlelög og ótilgreint . . 227
Utan trúfélaga 2537
FV 5 1977
7