Frjáls verslun - 01.05.1977, Blaðsíða 9
Hörð átök er framund-
an í Alþýðuflokksfélagi
Reykjavíkur um skipun
framboðslista í þingkosn-
ingum og borgarstjórnar-
kosningum á næsta ári.
Þeir Benedikt Gröndal og
Gylfi Þ. Gíslason höfðu
gert með sér samkomulag
um að Benedikt yrði í
efsta sæti hér í Reykjavík
við næstu þingkosningar
og Gylfi í öðru. Stuðn-
ingsmenn Eggerts G. Þor-
steinssonar mótmæla
þessu harðlega og hafa nú
byrjað undirskriftasöfn-
un til að tryggja Eggert
annað sætið á listanum,
sem hann hefur verið í
undnfarið. Ekki er talið
ólíklegt að þessi átök leiði
til þess, að Benedikt verði
enn á ný að sætta sig við
framboð í Vesturlands-
kjördæmi. Um framboð
til borgarstjórnar er það
að segja, að margir vilja
komast í sæti Björgvins
Guðmundssonar efst á
listanum. Dr. Bragi
Jósepsson er talinn koma
sterklega til greina en
ekki er ljóst hvort hann
hyggst frcmur sækjast
eftir uppstillingu á þing-
listann.
röð stærstu fyrirtækja á
■þessu sviði ásamt Aug-
lýsingastofu Gísla B.
Björnssonar, Auglýsinga-
stofu Kristinar Þorkels-
dóttur og Auglýsingaþjón-
ustunni.
í hæsta máta undarlegt
ástand virðist vera orðið
ríkjandi í sölumálum ís-
lenzkrar ullarvöru. Sam-
keppni söluaðila hér
heima fyrir er orðin
háskaleg og verðmunur
ótrúlega inikill. Fram hef-
ur komið í fréttum að
farið er að prjóna „ís-
lenzkar“ ullarvörur á
Norðurlöndunum úr ís-
lenzku hráefni og selja á
lægra verði en framleið-
endur hér hcima bjóða. I
New York mun líka vera
starfandi verzlun sem sel-
ur íslenzkar ullarflíkur á
■niðursettu verði. Sagt er
að þær séu framleiddar
úr lopa, sem keyptur sé á
Islandi en fluttur til
Formósu, þar sem prjón-
að er úr honum og flík-
urnar síðan fluttar á
markað í New York.
Bjarni Grímsson, sem
verið 'hefur framkvæmda-
stjóri auglýsingastofu
Kristínar Þorkelsdóttur
er á förum frá því fyrir-
tæki og hyggst senn hefja
rekstur eigin auglýsinga-
stofu í samstarfi við Otto
Ólafsson formann FÍT.
Telja kunnugir, að aug-
lýsingastofa Bjarna eigi
mi'kla framtíð fyrir sér og
muni fljótlega skipa sér í
Ýmsir stuðningsmenn
meirihlutans í útvarps-
ráði hafa hvatt menn sína
í ráðinu til að stuðla að
eðlilegum fréttaflutningi
í hljóðvarpinu og setja
,,lituðum“ fréttum ein-
hver takmörk. f þessu
sambandi er vitnað til
fréttaflutnings af kosn-
ingabaráttunni á Spáni
nýverið, en íslenzka Rík-
isútvarpið fjallaði næst-
um einvörðungu um (þátt
kommúnistanna í henni
eins og aðrir stjórnmála-
flokkar væru tæpast til.
Síðan kom í ljós, að þessi
uppáhaldsflokkur frétta-
manna Ríkisútvarpsins
naut 5% fylgis í kosning-
unum. Full ástæða virðist
vera til að veita starfs-
mönnum fréttastofu út-
varpsins og svokölluðum
„fréttamönnum“ hennar
erlendis aukið aðhald
þannig að fréttaflutning-
ur þeirra sé í einhverju
samræmi við raunveru-
leikann en byggist ekki á
pólitískri óskhyggju við-
komandi einstaklinga.
Viðræður hafa undan-
farið átt sér stað milli
matvöruheildsala um að
hefja sameiginlegan inn-
flutning á matvöru undir
einu og sama merki til að
lækka vöruverð. Með
þessu ætla innflytjendur
matvöru að ná betri sam-
keppnisstöðu gagnvart
Sambandinu, sem í sí-
auknum mæli færir út
kvíarnar á þessu sviði sér-
staklega á höfuðborgar-
svæðinu.
Spáð er haustkosning-
um í kjölfar nýrra kjara-
samninga og endurnýj-
aðrar óðaverðbólgu sem
þeim fylgir. Flokkarnir
munu eflaust kynna nýj-
ar tillögur um aðgerðir í
efnahagsmálum með
haustinu og sennilega
leggja þær undir dóm
kjósenda.
FV 5 1977
9