Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1977, Blaðsíða 7

Frjáls verslun - 01.11.1977, Blaðsíða 7
í stuttu máli # Mjólkurframleiðslan Fyrstu 9 mánuöi þessa árs hafa mjólkursamlögin tekiö á móti 94,4 milljón kg af mjólk, en á sama tíma- bili 1 fyrra var innvegin mjólk 89,5 millj. kg. Allt síöastliöið ár tóku mjólkursam- lögin á móti 112 millj. kg, en í ár er útlit fyrir að innvegin mjólk verði um 118 millj. kg. Smávegis samdráttur varð í sölu ný- mjólkur eða um 2,7%, en veruleg aukning 1 sölu undanrennu. Framleitt var um 40 lestum minna af smjöri á þessu ári en í fyrra. Birgðir í upphafi ársins voru nú 558 lestir, en í fyrra 328 lestir. Nokkur samdráttur hefur orðið í sölu á smjöri, í fyrra voru seldar fyrstu 9 mánuöi ársins 1265 lest- ir, en í ár 1035 lestir. Birgðir 1. októ- ber s.l. voru 1080 lestir, en 1. okt. 1976 voru þær 649 lestir. # Islendingar ekki lengur í borgarstjórn í Winnipeg Tveir menn af íslenskum ættum áttu sæti í borgarstjórn Winnipeg- borgar, en hvorugur þeirra náði kjöri í síðustu kosningum. Magnús Elíasson, sem verið hefur virkur þátttakandi í stjórnmálum í 45 ár, og átti sæti í borgarstjórninni síðustu tvö kjörtíma- bil, tapaði í kosningunum með mjög fáum atkvæðum, eða aðeins 212. — Robert Johannsson tapaði einnig, — hann fékk líka næst flest atkvæði frambjóðenda í sínu kjördæmi. # Áfkoma Sambandsins Erlendur Einarsson forstjóri flutti að vanda yfirgripsmikið erindi um á- standið í efnahagsmálum landsins, rekstur Sambandsins það sem af er ár- inu og horfurnar framundan á fundi kaupfélagsstjóra í lok nóvember. Varðandi rekstur sambandsins gat hann þess, að velta aðaldeilda þess frá áramótum til septemberloka væri orð- in 33 miljarðar og hefði aukizt um 50%. Launakostnaður hefði hækkað um 47,2,% en annar kostnaður um 48-9%. Afkoma flestra deilda Sam- bandsins væri lakari en í fyrra nema Sjávarafurðadeildar. Varðandi fram- tíðarhorfur kvað Érlendur útlitið ekki glæsilegt í svip: Útflutningsiðnaður- inn ætti í erfiðleikum, smásöluverzl- unin væri þung í skauti, en þó hefði verðbólguástandið farið einna verst með landbúnaðinn. Þá hafa verið dregnar saman upp- lýsingar um verzlun hjá 16 kaupfélög- um innan Sambandsins, og benda þær til þess, að í lok ágúst hafi verzlun þeirra aukizt um 31.2%, en laun hækkað um 44,2%. Einnig kom fram, að vaxtakostnaður kaupfélaganna hefði tvöfaldazt síðastliðin fimm ár, og samvinnuhreyfingin hefði verið illa undir þaö búin að mæta vaxtahækkun. Vaxtabyrði kaupfélaganna væri orðið vandamál, sem leysa þyrfti með ein- hverju móti. # 26% söluaukning hjá lceland Products Fyrstu níu mánuði yfirstandandi árs jókst sala Iceland Products í dollurum um 26% miðað við sama tímabil fyrra árs. Salan greinist sem hér segir í milljónum dollara: 1976 1977 Fiskréttir 16.8 22.6 aukn. 35% Flök 15.5 20.3 aukn. 31% Annað 4.8 4.0 samdr. 17% Samtals 37.1 m/$ 46.9m/$ aukn. 26% í magni er salan svipuð og árið áður, og er því ljóst aö rekja má aukninguna til verðhækkana. Það sem af er þessu ári hefur eftirspurn Iceland Products eftir flökum, einkum þorskflökum, ver- iö miklu mun meiri en unnt hefur ver- ið að anna og þó er framleiðsluaukn- ing í þorskflökum yfir 40% 1 október- lok. Er óhætt að fullyrða, að söluaukn- ing hjá Iceland Products hefði oröið mun meiri, ef hægt hefði verið að hafa til reiðu öll þau fiskflök, sem viðskipta- vinir fyrirtækisins vildu kaupa. Allt árið 1976 varð velta Iceland Products 48.5 millj. dollara, og vantar því ekki mikiö upp á, að veltu alls fyrra árs sé náð 1 lok september 1977. FV 11 1977 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.