Frjáls verslun - 01.11.1977, Blaðsíða 35
Iftnverk
Ókeypis alhliða byggingaþjónusta
Iðnverk, eitt fyrirtækjanna í
Norðurveri, veitir alhliða bygg-
tngaþjónustu. íslcifur Runólfs-
Son, framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins keypti það fyrir þrem-
ur árur.i, en upphaflega var
'það stofnað af nokkrum fram-
leiðcndum .
Iðnverk aflar tilboða fyrir
húsbyggjendur, þeim að kostr.-
aðarlausu, frá allt að 15 fyrir-
tækjum, sem framleiða m.a.
glugga, úti- og innihurðir, ofna,
gler. einangrunarefni, hitakerfi,
þakrennur og margt fleira.
ísleifur sagði, að nokkuð
hefði borið á því að sama fólk-
ið ætti viðskipti við sig allt
upp í tvö ár eða allt frá því að
það fær fyrstu gluggana og þar
til það fær sér innihurðirnar.
Hann sagði ennfremur að þessi
þjónusta væri töluvert mikið
notuð bæði af byggingafélögum
og einstaklingum, en margir
Á skrifstcfu Iðnverks er goitt sýnishorn af framleiðslu fyrir-
tækjanna.
hefðu ekki áttað sig á, að þessi
þjónusta er ókeypis fyrir hús-
byggjendur. Enn fremur sjá
framleiðendur um flutning á
byggingastað, jafnvel þó fram-
leiðslustaður sé ekki á Stór-
Reykjavíkursvæðinu.
Austurver
11 ár eru síðan Austurver á Háaleitishraut var opnað. Fjölmargar verslanir og þjónustustofnan-
ir cru har til húsa, og eiga allir sitt húsnæði sjálfir. Fyrirhugað er næsta sumar, að loka
göngum á milli verslananna og gera þá aðlaðandi fyrir viðskiptavinina t.d. með hví að
setja upp gosbrunna, bekki og einhverja aðstöðu fyrir börnin. Að jafnaði koma 4—5 þús manns til
að vcrsla í Austurveri daglega.
Fyrirhugað er að Ioka göngunii á milli verslananna í Austurveri
og gera með hví umhverfið meira aðlaðandi fyrir viðskiptavini.
Verslanirnar í Austurveri
eru:
Samvinnubankinn, útibú,
Faldurinn prjónagarn, vefnað-
arvörur og smávörur, Háaleitis-
apctek bæði með lyf og snyrti-
vörur, Sláturfélag Suðurlands,
matvöruverslun, Skóvinnustofa,
sem Sigurbjörn Þorgeirsson
rekur, Ástund bóka- og sport-
vöruverslun, Ncsití, grill- og
smurbrauðsstofa, Vor, blóma-
verslun, Hans Petersen, filmur,
vélar og framköllunarþjónusta,
Bakaríið Austurveri með brauð
og kökur, og loks Rafha, sem er
nýjasta fyrirtækið, en það selur
eldavélar, sem kunnugt er.
FV 11 1977
35