Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1977, Blaðsíða 18

Frjáls verslun - 01.11.1977, Blaðsíða 18
Upplýsingar fyrir ferðalanga: Hvernig á að komast á milli flugvallanna í Mew Vork-borg? Ekki má ætla sér minna en klukkutíma frá IUanhattan á Kennedy - flugvöll Færri íslendingar hafa komið til New York en til flestra borga Vestur-Evrópu og það er algeng spurning, hvernig komast eigi til og frá flugvellinum. New York er stór horg og furðu mörgu fólki virðist standa ógn af henni. Margir vita ekki hvernig á að snúa sér í að komast inn í borgina, né út úr henni aftur. Til að létta þessu fólki ferða- lögin verða hér gefnar helstu ráðleggingar um hvernig kom- ast á til eða frá flugvöllum borgarinnar. Hér verður aðeins sagt frá hvernig ferðast á til og frá miðborginni, á Manhattan- eyju. LEGUBÍLAR INN í BORGINA Allir íslendingar, sem koma til Bandaríkjanna með flugvél, lenda á John F. Kennedy flug- velli, sem staðsettur er á Long Island. Þegar þangað kemur er um tvennt að gera. Taka leigu- bíl, þangað sem maður er að fara, sem kostar 14 til 18 doll- ara, auk 15% þjórfjár og 75 senta gjalds fyrir að aka um Queens-Midtown Tunnel. Ekk- ert gjald er fyrir að aka um Queensboro brúna, en leigubíl- stjórar eru oft tregir til að fara um hana. Sama fargjald er fyr- ir einn til fjóra farþega, þó að sumir bílar taki ekki nema þrjá farþega. Stundum bjóða bílstjórar að aka á tiltekinn stað. Því er rétt að hafna og krefjast þess að mælir sé í gangi. í New York á aldrei að fara upp í leigubíl, sem annar ókunnur farþegi er í fyrir. Þetta er gert til dæmis í Washington, en ber að varast með öllu í New York STRÆTISVAGNAR Hin leiðin inn í borgina er að taka Carey fólksflutningabíl, sem kemur framhjá húsinu, þar sem farþegar koma úr flugvél- um, á 15 til 20 mínútna fresti. Farið er 4 dollarar inn á East Air Terminal á 38. götu og fyrsta stræti. Þaðan þarf að' taka leigubíl, sem kostar 2 til 3 dollara á flest hótel í mið- borginni. Þar gildir einnig regl- an um 15% þjórfé, til viðbótar því, sem sýnt er á mælinum. FARIÐ ÚR BORGINNI mr Þegar fólk vill fara úr borg- inni, gilda sömu reglur, en er aðeins snúið við. Augljóst er af því sem að framan segir, að ævinlega borgar sig að nota leigubíl, ef fleiri en einn ferðast saman . Þegar farið er úr borginni er rétt að hafa í huga að mörg hótel hafa ferðir á flugvöllinn og algengt að það kosti 6 til 7 dollara, sem kemur svipað út, og að nota East Side Terminal og Carey bílana, en ekki þarf að skipta um bíl og bera tösk- ur á milli. Spyrjið hótelið um slíkar ferðir. Tíminn sem það tekur að komast á flugvöllinn er mjög mismunandi eftir veðri og um- ferð. Carey áætlar að ferðin frá East Side Terminal til Kenn- edy taki um 35 mínútur að jafn- aði, en 50 mínútur á annatíma. Bæta má nokkru við fyrir leigu- bíla og aldrei skynsamlegt að ætla sér minna en klukkutíma, því að alltaf getur eitthvað orð- ið til að tefja á leiðinni. LA GUARDIA Nú nota ekki allir Kennedy flugvöll, sem þurfa að ferðast um Bandaríkin. Mikið af innan- landsflugi fer um La Guardia flugvöll, sem einnig er á Long Island. Leigubíll þangað kostar 8 til 10 dollara úr miðborginni, auk gjalds ef ekið er um Tri- boro brúna eða Midtown Tunnel. Bílar frá hótelum kosta um 5 dollara. Fargjald með Carey vögnum frá East Side Terminal er 3 dollarar og á- ætlað að ferðin taki 20 til 30 mínútur NEWARK FLUGVÖLLUR Newark flugvöllur er í New Jersey og mikið um innan- landsflug þaðan. Strætisvagnar aka frá Port Authority Bus Terminal á áttunda stræti og 18 FV 11 1977
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.