Frjáls verslun - 01.11.1977, Blaðsíða 22
60 ára Sovétstjórn
Vísindi og efnahagslegur viðgangur
— eftir fréttaritara APIM-fréttastofunnar
— Á 60 ára tímabili sovét-
stjórnar hefur hlutdeild Sovét-
ríkjanna í iðnaðarframleiðslu
hcimsins aukist úr 4% í 20%,
sagði Vladimir Kirillin, vara-
forsætisráðherra Sovétrkjanna
og formaður vísinda- og tækni-
nefndar sovéska ríkisins, í við-
tali við Irinu Lunatsjarskaju,
vísindafréttaritara APN. —
Þetta er að sjálfsögðu mjög
mikil aukning.
Hér á eftir fara nokkrar töl-
ur er sýna á hvaða stigi sovésk-
ur iðnaður er í dag. Árið 1976
framleiddi landið 520 milljón
tonn af olíu, þar með talið sam-
þjappað gas, 712 milljón tonn
af kolum, 145 milljón tonn af
stáli og 92,3 milljón tonn af til-
búnum áburði. Sovétríkin
standa framar en Bandaríkin á
þessum og fleiri sviðum. Þau
framleiða t.d. 30% meira af
olíu, 7% meira af kolum, 21%
meira af stáli og 26% meira af
tilbúnum áburði iheldur en
Bandaríkin. Á síðustu tíu árum
hefur efnahagsmáttur Sovét-
ríkjanna tvöfaldast.
Eitt höfuðverkefni okkar er
að flýta vísinda- og tæknifram-
þróuninni í landinu.
VÍSINDI OG VÍSINDA- OG
TÆKNIÞRÓUNIN
Umfang rannsóknarstarfsemi
í Sovétríkjunum má glöggt ráða
af þeirri staðreynd, að við sov-
éskar rannsóknarstöðvar og
æðri menntastofnanir starfa
1.300.000 manns, þar með tald-
ir prófessorar og aðrir kennar-
ar. í Rússlandi á dögum keis-
arans voru 300 vísindastofnanir
að söfnum meðtöldum og við
þær störfuðu rösklega 10 þús-
und manns.
Skipulag rannsókna í landi
okkar einkennist af nánum
tengslum milli rannsóknamið-
stöðva annars vegar og hönn-
unarskrifstofa og framleiðslu-
deilda hins vegar. Nytsemi
slíkrar samvinnu hefur sannast
á síðustu árum, en hún flýtir
mjög fyrir því að vísindalegar
uppgötvanir séu teknar í notk
un við framleiðsluna.
Annað form náinnar sam-
vinnu milli vísinda- og fram-
leiðslu er einnig notað í vax-
andi mæli, þ.e. vísinda- og fram-
leiðslusamtök, sem sameina sér-
hæfðar rannsóknarstofnanir og
verksmiðjur undir einni stjórn.
Þegar hafa verið stofnuð um
130 slík samtök.
— Þetta samband hefur
þegar borið ávöxt, heldur Kir-
illin áfram. — Tökum sem
dæmi Uralmasj vísinda- og
framleiðslusamtökin, sem hafa
búið til gröfu með 100 rúm-
metra skóflu, Kirovverksmiðj-
una í Leningrad, sem hefur
smíðað 1.200.000 kwt túrbínu,
o.s.frv. Vísindaframleiðslu og
framleiðslusamtök framleiða nú
meira en 30% af iðnaðarfram-
leiðslu landsins.
Mikill gaumur er gefinn þró-
un svæða-iðnaðarsamsteypa.
Þær eru oft staðsettar nálægt
auðugum námusvæðum og
miklum orkuauðlindum. Utan
við Tjumen hefur t.d. risið upp
samsteypa olíuvinnslustöðva og
olíuhreinsunarstöðva. Keðjan
„hráefni — fullunnin fram-
leiðsla", felld inn í eitt heildar-
kerfi, hefur mikla kosti, bæði
frá efnahagslegu og tæknilegu
sjónarmiði séð.
— Við gerum okkur fullkom-
lega grein fyrir því, að stríðan
straum vísinda- og tæknifram-
fara mun fíjótt þrjóta kraft, ef
hann á ekljp upptök sín í stöð-
ugum grundvallarrannsóknum,
sagði Leonid Brézjnéf á 25.
þingi sovéska kommúnista-
flokksins.
Auk héraða-rannsóknarmið-
stöðva í sambandslýðveldunum,
Síberíudeildar sovésku vísinda-
akademíunnar og vísindastöðv-
anna í Úral og á Kyrrahafs-
ströndinni er verið að koma
upp samsteypum sérhæfðra
rannsóknarstofnana í Sovétríkj-
unum, svo sem líffræðimiðstöð-
inni í Pusjtsjino. í smíðum eru
nýjar rannsóknarstofnanir,
tölvumiðstöðvar og hönnunar-
skrifstofur.
Sovéskir eðlisfræðingar hafa
með réttu unnið sér heimsfrægð
fyrir rannsóknir sínar á sviði
kjarnorkunnar. Rannsóknir á
hagnýtingu kjarnorkunnar í
friðsamlegum tilgangi hófust
undir forustu vísindamannsins
Igor Kurtsjatov og leiddu þær
til þess að reist var utan við
Moskvu fyrsta kjarnorkuver
heims. Það var árið 1954. Síðan
hafa nokkrar stórar kjarnorku-
stöðvar verið reistar í landinu
og aðrar eru í byggingu.
HORFUR Á SVDOI ORKU-
VINNSLU í SOVÉTRÍKJ-
UNUM
— Kjarnorkuver eru sérstak-
lega hagkvæm á landsvæðum
þar sem kol eða olíu er ekki að
finna í jörðu. Af þessum sökum
er smíði nýrra kjarnorkuvera
fyrst og fremst áætluð í hinum
iðnvædda Evrópuhluta lands-
ins, þar sem efnafræðilegar
orkulindir eru sjaldfundnar á
staðnum. Verið er að reisa há-
orkuver, Atommasj, í Volgo-
donsk til þess að örva þróun
kjarnorkunnar, segir vísinda-
maðurinm.
Varmaorkustöðvar, sem
brenna venjulegu lífrænu elds-
neyti, eru einn helsti orkugjaf-
inn. Sovétríkin eiga auðugar
kolanámur í landinu austan-
verðu, m.a. Ekibastuz 'kola-
námusvæðið í Kazakjstan og
Kansk-Atsjinsk kolanámusvæð-
ið í Síbiríu þar sem kol eru
unnin í opinni námu. Ráðgert
er að reisa þar stór orkuver.
Hluti raforkunnar, sem þau
munu framleiða, verður leiddu’-
til miðsvæðis landsins með
orkuflutningslínum. Lokið verð-
ur við lagningu orkuflutnings-
línu frá Ekibastuzsvæðinu á
tímabili næstu fimm ára áætl-
unar, hún verður um 2.400 km
löng, 1,5/m volt dc.
22
FV 11 1977