Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1977, Qupperneq 29

Frjáls verslun - 01.11.1977, Qupperneq 29
Önundur Ásgeirsson, forstjóri, sem stjórnaði umræðum ásamt Höskuldi Ólafssyni, bankastjóra. Til hliðar við hann sitja Benedikt Gröndal og Magnús Torfi Ólafsson. er nú víst svarti sauðurinn í þessu öllu saman. Ég get tek- ið undir með Jóni Skaftasyni, um það sem hann sagði, að þarna er ekki óvenjulegt að stjórnmálamenn ráði einhverju. En fyrst ég minnist á Fram- kvæmdastofnunina þá þekki ég svolítið til á þeim bæ, því ég hef setið þar sem varamaður núna undanfarin ár, en mér finnst einhvern veginn í umræðum manna og það hefur jafnvel komið fram hér á þessu þingi, að þarna sé eitthvað voðalegt á ferðinni. Ég held að það hafi komið fram í gær að Byggða- sjóður hafi ráðstafað 47% af sínu lánsfé til tveggja kjör- dæma í landinu, Austfjarða- kjördæmis og Norðurlandskjör- dæmis eystra og einhvern veg- inn hafði ég það á tilfinning- unni að menn teldu að þarna hefði verið um vitlausa úthlut- un að ræða. í hlutfalli við út- lán lánastofnana var hlutfall Byggðasjóðs á árinu 1976 nú ekki meira en 3,9%. En ekki vil ég nú halda, að menn trúi því að öllu hafi þessu verið ráð- stafað með vitlausum hætti. Eig- um við að segja helmingnum? Þá er þetta hlutfall komið niður fyrir 2% af heildarúthlutunum, sem ráðstafað er ranglega. Nú er þetta ekki svo. Seðlabanka- stjóri kom aðeins inn á þetta varðandi Framkvæmdasjóð í sinni ræðu, að það hefði ekki verið óeðlilegt, að ríkið kæmi inn með lán til ýmissa félags- legra þátta og ég er alveg sam- mála þvi. Þarna held ég, að það gerist einmitt í gegnum Byggðasjóð. Hins vegar, fyrst ég er nú farinn að tala um Byggðasjóð, á hann ekki að fara inn á útlán, sem banka- kerfið á að anna eins og t.d. að lána mönnum til þess að koma upp rakarastofum og bókhalds- skrifstofum og svoleiðis út um land. Það hefur hann gert. MA>GNÚS TORFI ÓLAFSSON: Ég held að það hafi verið of mikið talað hér um frjálst markaðshagkerfi. Ég held að nafnið á því kerfi, sem við er- um nú að fjalla um, sé réttara félagslegt markaðskerfi. Það er það nafn, sem að Erhard gaf sínum ráðstöfunum á sínum tíma í Vestur-Þýzkalandi og sem braut nú í rauninni ísinn fyrir þá þróun, sem síðan hef- ur orðið í flestum vestrænum löndum. Það er því rangt að tala um frjálst markaðskerfi að mínum dómi, af því að það yrði skilið og er eðlilegast að skilja það, sem afturhvarf til laissez-faire og ég býst ekki við að neinn sé þeirrar skoðunar að það sé unnt eða æskilegt. En spurningunni ætla ég að svara þannig, að ég tel, að fjármagn sem á að skila fullum fjár- magnskostnaði, skuli bera fulla markaðsvexti, að því eigi að ráðstafa eftir arðsemissjónar- miðum gegnum það kerfi, sem bankar og aðrar lánastofnanir hafa komið sér upp til að meta arðsemi lánsbeiðanda og fylgj- ast með rekstri þeirra og af- komu. Hins vegar tel ég, að það sé annar geiri ráðstöfunar á fjár- magni, þar sem ekki er til þess ætlast, að fullur fjármagnskostn- aður skili sér, heldur er gert ráð fyrir að sameiginlegur sjóður landsmanna beri hluta fjár- magnskostnaðarins, mismun- andi mikinn eftir atvikum. Ákvörðun um slíkt og ráðstöf- un á fé hljóta að fara fram eft- ir pólitískum leiðum og þar verði stjórnmálamenn að koma við sögu. BENEDIKT GRÖNDAL; Maður sleppur ekki með svona einfalt svar. Ég vildi til frekari skýringar segja það, að eins og ykkur er vafalaust ljóst, þá er ég þeirrar pólitísku skoð- unar, að ríkisvaldið eigi að hafa margvisleg og öflug hagstjórn- artæki og ríkisvaldið eigi að beita þeim þegar ástæða er til. Aðgerðir ríkisstjórnar og Al- þingis hafa því auðvitað stór- kostleg áhrif á lánsfé, hvert það fer í stórum straumum, en spurningin var lögð þannig fram, að ég býst við, að flestir muni nú hafa talið, að hún ætti við nánari atvik, sem við þekkj- um í okkar þjóðfélagi, þar sem ýmsir sjóðir og stofnanir eru til, sem úthluta einstökum lán- um, þar sem stjórnmálamenn og t.d. alþingismenn sérstak- lega sitja. Þrátt fyrir allmargra ára reynslu, t.d. að stjórn Byggðasjóðs, sem Ólafur nefndi, þá tel ég það mjög ó- heppilegt, að stjórnmáiamenn og alþingismenn sitji við slíka úthlutun. Fyrst þegar ég kom inn í pólitík og fór að skipta mér af henni þá kom fólkið til FV 11 1977 29
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.