Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1977, Page 40

Frjáls verslun - 01.11.1977, Page 40
Grímsbær í u.þ.b. fimm ár hefur verið starfrækt verslanamiðstöð í Fossvoginum, eina verslunarhúsið í bví hverfi, en bað er Grímsbær. Þar eru reknar fimm verslanir auk skóvinn,ustofu, hárgreiðslu- stofu, fatahreinsunar, bakaris og fiskbúðar, en það er einmitt fisksalinn, Sit'eingrímur, sem er eig- andi hússins. Gnmsbær er eina verslunin enn sem komið er í Fossvoginum. í Grímsbæ eru: Ásgeir, matvöruverslun, Skó- vinnustofa Halldórs, Bókabúð Fossvogs, Hárgreiðslustofa Siggu DóiU, Hannyrðaverslunin Grímsbæ, með hannyrða- og prjónavörur, Björnsbakarí, en frá því berst alltaf ilmur af ný- bökuðum brauðum og kökum, ígulkerið, blómabúð, sem einn- ig er með gjafavörur og er nýj- asta verslunin í Grímsbæ, Fisk- búð, Fatahreinsunin Grímsbæ og loks verslunin Sporið, með vefnaðarvöru, garn, barnaföt og fleira. „Svo lengi sem fólk gengur I skóm verður næg vinna hjá skó- smiðum“ Skóvinnustofa Halldórs: Skósmiðurinn í Grímsbæ, Iialldór Örn Snorrason, hefur rekið skóvinnustofu har í 4 ár. Ilann kvaðst mjög ánægður með að reka vinnustofu sína í verslanamiðsíöð, sem Gríms- bær er og sagði að sá háttur að reka margar verslanir í sama húsinu ætti mikla framtíð fyr- ir sér. Skósmíði er þriggja ára nám í Iðnskólanum. Á þeim tíma sem Halldór lærði voru nemar látnir smíða skó, en síðustu 2—3 árum hafa nemendur ein- göngu lært að gera við skó. Milli 15—20 skósmíðavinnu- stofur eru starfræktar í Reykja- vík, og sagði Halldór að undan- farin ár hefði alls staðar verið nóg að gera. Nú kostar t.d. 2 389 krónur að sóla og hæla kvenskc, en nýir kuldaskór kosta tJ. allt upp í 20 þúsund krónur, og því finnst fólki margborga sig að gera upp gömlu skóna. Þótt ótrúlegt megi virðast, er vinnan oft háð veðrinu, því fólk veigrar sér frekar við að fara út í slæmu veðri og leiðin- legri færð með skóna sína til skósmiðs, en hins vegar koma alltaf tarnir á vorin og haustin. Halldór í skóvinnustofu sinni. „Svo lengi sem fólk gengur í skóm, verður alitaf vinna hjá skósmiðum“, sagði Halidór að lokum og brosti í kampinn. 40 FV 11 1977

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.