Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1977, Side 57

Frjáls verslun - 01.11.1977, Side 57
stundaðar flestar íþróttagrein- ar aðrar en knattspyrna, skíða- iðkun og siglingar. Mikill áhugi er á líkamsrækt og er þrek- þjálfunardeildin mjög vinsæl. í Eyjum starfar lyftingaklúbbur undir stjórn Óskars Sigurpáls- sonar, sem þjálfar þar af mikl- um áhuga og atorku. Óskar, sem starfar sem lögreglumaður í Eyjum er mikil driffjöður á þessu sviði og ihefur hann einn- ig gengist fyrir líkamsræktai- námskeiði fyrir almenning í vetur, og hefur aðsókn að því verið mikil. Þrekþjálfunardeildin er vel búin tækjum og nýtur vaxandi vinsælda. íþróttafélögin hafa afnot af deildinni endurgjalds- laust og það færist nú óðum i vöxt að æfingar á vegum þeirra hefjist með klukkutíma þrek- þjálfun. Frúarleikfimi hefur einnig verið á boðstólum og aðsókn verið góð. ALMENN SÖFNUN TIL TÆKJAKAUPA — 14 MILLJÓNIR Vignir fræddi o'kkur á því, þegar við dáðumst að því hve vel íþróttamiðstöðin væri búin tækjum og húsbúnaði, að al- menn söfnun hefði farið fram meðal bæjarbúa á sínum tíma til kaupa á tækjum og áhöld- um. Ýmis félög gengust fyriv söfnuninni og söfnuðust hvorki meira né minna en 14 milljónir meðal bæjarbúa, sem er ekkert lítið í 4.500 manna bæ. Fyrir þetta fé voru keypt öll íþrótta- tæki, áhöld, húsgögn og 'hljóm- burðartæki og var það allt til- búið og uppsett þegar húsið var opnað 1976. í þakklætisskyni fyrir mikið starf þeirra 19 líknarfélaga í Eyjum sem hjálpuðu til við söfnunina hafa þau afnot af fundarsölum Íþróttamiðstöðvar- innar endurgjaldslaust. íþrótta- félögin nota einnig þessa fund- arsali endurgjaldslaust. Vignir benti okkur á stórar auglýsingar sem eru á veggjum íþróttasalarins, en þær eru frá ýmsum fyrirtækjum. Sagði hann að þeir hefðu í fyrstu átt í brösum við yfirvöld íþrótta- mála rikisins út af þeim, en það hefði siðan verið leyst úr þvi máli. Þessar auglýsingar sjá iþróttafélögin um og nota það sem inn kemur til þess að greiða fyrir sín afnot af saln- um og væri þeim mikill akkur í. GÓLFÞVOTTAVÉLAR OG SÓTTHREINSUNARTÆKI Starfsfólk íþróttamiðstöðvar- innar vinnur á tveimur vökt- um, en þótt húsið sé stórt starfa þar einungis 9 manns í fullu starfi og einn í hálfu. Húsið er hannað með það fyrir augum að fáir geti annast rekstur þess og eru ýmis nýtísku tæki til mikillar hjálpar. Með sérstök- um gólfþvottavélum er unnt að skúra 3000 fermetra daglega. Bnnfremur eru öll böð og bún- ingsklefar úðaðir daglega með sóttvarnarefni og skolað af með vatni. Er þetta gert með nýjum úðunartækjum sem reynst hafa mjög vel að sögn Vignis. FRÁBÆR HLJÓMBURÐUR Eitt mun alveg sérstakt við íþróttamiðstöð Vestmannaeyja en það er hve góður hljómburð- ur er í húsinu. Ekkert bergmál er í húsinu og við vígslu þess höfðu lúðrasveitarmenn orð á því hve gott væri að spila í þvi. Þannig er gengið frá lögn- um í íþróttasalnum að hægt er að koma fyrir því magnarakerfi sem nauðsynlegt er fyrir skemmtanir. í ráði er að halda skemmtanir í húsinu til að afla íþróttastarfseminni tekna. Ver- ið er að vinna við uppsetningu sjónvarpspalls þannig að full- komin aðstaða sé til að lýsa kappleikjum beint í fjölmiðl- um. Með byggingu hússins hafa Vestmannaeyinar komið sér upp iþróttaaðstöðu sem mun fljótt skila miklum árangri. Ekkert virðist nú vera því til fyrirstöðu að meiriháttar tón- leikar Sinfóníuhljómsveitarinn- ar geti farið fram í Eyjum svo aftur færðist líf í „list um landið“. Steypustöð Vestmannaeyja: IVIarkaður- inn mætti vera stærri — segir Jóhannes Kristinsson Steypustöðin í Vestmanna- eyjum hefur verið starfrækt í 10 ár af núverandi eigendum. Auk þess að sclja steinsteypu fæst fyrirtækið við ýmsa aðra framleiðslu. Við hittum að máli stjórnarformann Steypustöðvar- innar Jóhannes Kristinsson og spurðum hvernig reksturinn gengi. — Ekki nógu vel því miður. Markaðurinn hérna í Eyjum er of lítill til þess að rekstur svona steypustöðvar geti verið nægi- lega hagkvæmur. Árin 1974 og 75 gekk þetta sæmilega en á árinu 1976 fór salan niður úr Steypustöð Vestniannaeyja. FV 11 1977 57

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.