Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1979, Blaðsíða 8

Frjáls verslun - 01.11.1979, Blaðsíða 8
áfangar Þóröur Magnússon hefur veriö ráðinn sem framkvæmdastjóri fjármála- og stjórnunarsviðs Eimskipafélags íslands frá og með 15. janúar nk. Þórður lauk stúdentsprófi frá Menntaskólan- um í Reykjavík 1970 og viðskiptafræðiprófi frá Háskóla íslands 1974. Að því loknu hélt Þórður til framhaldsnáms í University of Minnesota og lauk þar MBA prófi með fjármálastjórn og milli- ríkjaverslun að sérgreinum. Að því loknu gerð- ist Þórður starfsmaður Útflutningsmiðstöðvar iðnaðarins, þar til er hann varð framkvæmda- stjóri fjármála Fríhafnarinnar á Keflavíkurflug- velli árið 1978. Frá haustinu 1978 hefur Þórður annast kennslu í markaðsrannsóknum og utanríkisverslun í viðskiptadeild Háskóla ís- lands. Með ráðningu Þórðar er búið aö ákvarða fyrstu breytinguna af þeim sem forstjóri félags- ins hefur boðað að væru væntanlegar á innra skipulagi Eimskipafélagsins. Er þar með ákveðið að allar deildir félagsins sem lúta að fjármálum og almennri stjórnsýslu verði sam- einaðar undir framkvæmdastjórn Þórðar Magnússonar. Steinar J. Lúðvíksson hefur verið ráðinn til útgáfustjórnar við bókaútgáfuna Örn og Örlyg. Steinar er fæddur 1941 og útskrifaðist úr Kennaraskólanum 1965 og réðst þá þegar sem blaðamaður að Morgunblaðinu. Þar starfaði hann fram til ársins 1977 er hann réðst til út- gáfufyrirtækisins Frjálst framtak sem ritstjóri Sjávarfrétta. Auk þess að ritstýra Sjávarfréttum hefur Steinar ritstýrt tveimur öðrum sérritum Frjáls framtaks, íþróttablaðinu og bílablaðinu Ökuþór, sem hann mun ritstýra áfram um sinn. Fyrir utan blaðamennskuna hefur Steinar safnað saman miklum fróðleik um sjóslysasögu íslands sem birst hefur í bókaflokknum Þraut- góóir á raunastund. Alls eru nú komnar út 10 bækur í þessum bókaflokki, þar af ein núna fyrir þessi jól. Einnig skrifaði Steinar bók um Ólympíuleikana 1972, en þeir voru sem kunnugt er haldnir í Sapporo í Japan og Munchen í Vestur-Þýskalandi. Steinar var spurður að því hvernig hið nýja starf hans legðist í hann: ,,Það leggst afskaplega vel í mig," sagði hann. „Vinna við bókaútgáfu er ákaflega spennandi verkefni og á nokkuð skylt við blaðamennskuna. En það er annað mál, að bókaútgáfa er erfiður „bissniss" og mikið til bundin við sölu fyrir jólin." Hvernig stendur íslensk bókaútgáfa í dag? „Bókaútgafan er í aftúrför á einu sviði, og það er barnabókaútgáfan. Hún virðist vera að leggjast niður nema í formi samprentana á teiknimynda- sögum sem flæða nú yfir markaðinn. Þetta er öfugþróun og til þess eins að gera fólk ólæst á almennilegar bækur." 8
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.