Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1979, Blaðsíða 27

Frjáls verslun - 01.11.1979, Blaðsíða 27
ans fær eintök, formaður banka- ráðs viðkomandi banka og for- maður stjórnar sparisjóðs svo og bankastjórar og sparisjóðsstjórar viðkomandi stofnunar. Banka- ráðsmenn hafa fengið eintök nú í seinni tíð en svo var ekki áður. Ekki er algengt að sérhver stjórn- armaður í sparisjóöi fái eintak eftirlitsskýrslunnar. Endurskoð- endur viðkomandi stofnunar fá ekki sent eintak að okkar frum- kvæði." Hvers vegna? „Jú eins og ákvæði um endur- skoðun hjá þessum stofnunum er í lögum í dag eru þau vita gagns- laus ef ekki ráðast til endurskoð- unar menn með sérþekkingu á þessu sviði. I núgildandi lögum er ekki gerð krafa til þess að svo sé. Einstaka innlánsstofnanir hafa þó ráðið til sín löggilta endurskoð- endur og jafnframt byggt upp innri endurskoðunardeildir. Að slíku er mjög mikið öryggi. í frumvörpum til laga um banka og sparisjóði er gerð krafa um öflugri endurskoö- un en nú er gert." Fá fleiri aðilar eftirlitsskýrslur? „Samkvæmt lögum ber okkur að tilkynna’ráðherra þegar í stað ef við teljum hag eða rekstur inn- lánsstofnunar óheilbrigðan. Við höfum þó nokkrum sinnum gert það. Þar sem um meiri háttar brot er að ræða t.d. fjárdrátt eða þess- háttar fara þau mál til ríkissak- sóknara. Annars erum viö mjög íhalds- samir á dreifingu eftirlitsskýrsl- anna því að í þeim eru slíkar upp- lýsingar er varða viðskipti einstak- linga og fyrirtækja sem eru mjög viðkvæmar." Víðtækar heimildir Hefur bankaeftirlitið heimild til að krefjast hvaða upplýsinga sem er hjá innlánsstofnunum? „Já. Heimildir okkar eru mjög víðtækar hvað þetta snertir. Við höfum aðgang að öllum gögnum varðandi fjárhag og rekstur stofn- ananna. Sú heimild hefur ekki verið véfengd, a.m.k. ekki þannig að okkur hafi verið meinaöur að- gangur að gögnum sem við höfum óskað eftir að fá aó skoða. Slíkt kom jú fyrir tvisvar sinnum en við höfðum okkar fram." NCKSTHA'miEIKNINGUR Allar Innlánsstofnanlr eru skyldugar tll að senda bankaeftirlitinu mánaðarlegt rekstraryfirlit. Hvernig er athugasemdum fylgt eftir? „Meó skriflegum kröfum um úr- bætur. Viðræðum viö stjórnendur. Síðan með endurteknum athug- unum. Yfirleitt bregðast stjórn- endur mjög vel við athugasemd- um.“ Hvað er farið oft í hverja stofnun? „Að jafnaði einu sinni á ári í flesta sparisjóöi. í stærri sparisjóði er farið sjaldnar. Suma jafnvel á 3ja—4 ára fresti. I banka er farið sjaldnar." Innlánsstofnanir gefa mánaðarlegar skýrslur. í hverju felst starfsemi banka- eftirlitsins að öðru leyti en beinu eftirliti á staðnum? „Allar innlánsstofnanir eru skyldugar til þess að senda mán- aðarlega yfirlit yfir efnahag og rekstur sinn og auk þess ítarlega og sundurliðaða ársskýrslu yfir reksturinn. Þetta er hver innláns- stofnun skyldug til þess að gera að undanskildum innlánsdeildum samvinnufélaganna." Hvert er þá eftirlitið með inn- lánsdeildum samvinnufélag- anna? „Við höfum af og til heimsótt þær og kannað bæði umfang og bókhaldslegt skipulag þeirra. Flestar eru þannig reknar að inn- lánin eru notuð sem lán til reksturs viðkomandi samvinnufélags. Inn- lánin eru notuð sem veltufé t.d. kaupfélags þannig að það má segja að það velti á fjárhag sam- vinnufélagsins, hvort innstæðurn- ar eru útborgunarlegar eða ekki. Verði síðan kaupfélag gjaldþrota, hefur sá sem á innistæðufé í inn- lánsdeild þess enga tryggingu fyrir því að fá fé sitt til baka. Að visu er til Tryggingasjóður innlánsdeilda en hann er hvergi nógu sterkur til að mæta slíkum hugsanlegum áföllum." Eru tryggingasjóðir innláns- stofnana yfirleitt nógu sterkir? „Nei, en þetta er nú eitt af þeim atriðum sem bankaeftirlitið hefur beitt sér fyrir að breyting verði á. i nýju frumvarpi um sparisjóði eru ákvæði um nýjan Tryggingasjóð sparisjóða, sem gjörbreytir þessu að því er sparisjóðina varðar." Er nokkurt raunhæft gagn að bankaeftirliti? Nú kann einhver að spyrja hvort bankaeftirlit geri nokkurt raun- hæft gagn. Eru innlánsstofnanir á landinu ekki það vel reknar að bankaeftirlitið sé ekki óþarfa af- skiptasemi ríkisvaldsins? Þórður: „Það má segja það alveg hreint út, aö í nokkrum til- vikum hefur bankaeftirlitið komist að raun um að fjárhag innláns- stofnunar hefur verið þannig komið, að ógætileg útlán til aðila, sem ekki áttu möguleika á endur- greiðslu, hafi verið þess eðlis að þau hafi verið óinnkallanleg. Út- lánin hafa því verið af þeirri stærðargráðu, að varasjóður inn- lánsstofnunarinnar hefði ekki nægt til að mæta því tapi sem þegar var orðið. Þegar slík tilvik koma upp er oftast um að kenna mistökum í stjórnun, rangt mat á aðstæðum og ófullnægjandi tryggingar. Sem betur fer eru slík tilvik fá. Ég get þó sagt það að slíkt hefur komið fyrir hjá sparisjóðum. Ekki þó það stórkostlegt að ekki hafi verið hægt að forða tjóni. Björgunaraðgerðir í slíkum tilvik- um eru einkum fólgnar í samein- ingu innlánsstofnana eða hreinni yfirtöku. Það versta sem gæti komið fyrir nokkurt bankaeftirlit er að sitja uppi með gjaldþrota pen- ingastofnun í fanginu. Slíkt gæti hins vegar orðið, eða hver hefur 27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.