Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1979, Blaðsíða 64

Frjáls verslun - 01.11.1979, Blaðsíða 64
Grundarfjöröur Byggt upp eftir þrjá stórbruna Eldsvoðar hafa valdið Grund- firðingum miklum skakkaföllum síðustu mánuðina. Fyrst brann skólahúsið. Skólanum hafði verið slitið á föstudegi, — á sunnu- dagskvöld var skólinn brunninn. Þá varð mikið tjón hjá Sæfangi h.f. í bruna, og loks brann efri hæð f íbúðarhúsi á staðnum. Að sjáif- sögðu er þetta mikið áfall fyrir ekki stærra byggðarlag. í sumar var unnið af kapþi við að endurbyggja grunnskólahúsið, framkvæmd upp á 40 milljónir króna, að sögn Guðmundar Ós- valdssonar, hins nýja sveitarstjóra í Grundarfirði. Skólinn átti að komast í gagnið í októberbyrjun. Verkföllin, sem stöðvuðu skipa- flotann, settu strik í reikninginn við uppbygginguna, þar eð bygging- arefni seinkaði. Það er mikið byggt í Grundar- firði eins og víðar um landsbyggð- ina. Þar er e.t.v. fréttnæmast að öll fiskiðjufyrirtæki staðarins eru að stækka við sig, þá eru 16 einbýlis- hús í smíðum og að auki 8 sölu- og leiguíbúðir á vegum hreppsins. Grundarfjörður er ungur að ár- um sem þéttbýlisstaður og húsa- kostur því nýlegur og byggðin bólgnar út eftir því sem árin líða. Búið er aö leggja olíumöl á margar gatnanna í bænum, og ráðagerðir um að losna við rykið og aurinn á næstu sumrum. í sumar opnaði matstaður í Grundarfirði. Það var Friðrik Clausen, sem stofnsetti nýjan grillstað, Ásakaffi. í sjálfu sér eru það merki um að Grundarfjörður er stækkandi bær þar sem ýmis- konar þjónusta fer að sjá dagsins Ijós. Áður var hvergi hægt að fá bita keyptan fyrir svangan ferða- mann, en Grundfirðingar þó með eindæmum gestrisnir og ófeimnir að bjóöa fólki heim til sín upp á kræsingar. ,,Já, hér er gott fólk", sagöi Friðrik Clausen, eigandi Ásakaffis. Hann kvaðst hafa búið í Grundar- firði síöustu tvö árin . Mikið væri að gera, og greinilegt að full þörf væriá stað sem þessum. Ásakaffi tekur 65 manns í sæti og aö sögn ferðafólks, sem farið hefur um Grundarfjörð, er þessi matstaður sérlega skemmtilega úr garði gerður. Friðrik er húsasmiður og reisti sér sjálfur húsið, sem er 131 fermetri á stærð. Clausen-ættin er annars vel þekkt á Snæfellsnesi. Þar hafa Clausenar verzlaö tals- vert á aðra öld. Guðmundur Ósvaldsson sagði í viðtali við Frjálsa verzlun að von- ast væri eftir að borað yrði eftir heitu vatni í bænum nú um eða upp úr áramótum. Vitað er að heitt vatn er þar að finna og mikill hugur í mönnum á tímum orkukreppu að nýta þá möguleika, sem þarna eru taldir fyrir hendi. — og nú er vonast til að boraö veröi eftir heitu vatni 64
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.