Frjáls verslun - 01.11.1979, Blaðsíða 63
,,Hörpudisksmiðin eru vandmeðfarin”
— segir Ágúst
Sigurðsson, forstjóri
hjá Sigurði Ágústs-
syni h.f.
„Það er ein regla í þessum
bransa. Maður veit að það er erfitt
að ná endum saman, ef hver
dagur er skoðaður, en með löngu
úthaldi og seiglu tekst okkur að
gera þessar veiðar á hörpudiskn-
um arðbærar og náum endum
saman", sagði Ágúst Sigurðsson,
forstjóri í Stykkishólmi.
Þessar óvenjulegu veiðar eru nú
eingöngu stundaðar frá Stykkis-
hólmi og hafa orðið til þess að
ófriðarbál blossaði upp, þegar
bátar frá Grundarfirði hófu veiðar
án leyfa nú í vetur.
Ágúst kvað dagsafla bátanna
átta, sem veiðarnar stunda, vera
að meðaltali 45 tonn á dag. Skelin
er unnin í vélum, og úr henni er
tekinn vöðvinn, sem opnar og
lokar skelinni.
Það eru Bandaríkjamenn sem
sólgnastir hafa verið i hörpudisk-
inn og matbúa þeir lystilegar krásir
úr honum. Þá kvaö Ágúst markaði
vera að opnast í Evrópu, einkum í
Frakklandi, Þýzkalandi og í Eng-
landi. Sjálfur kvaðst hann ekki
hafa verið ýkja hrifinn af bragðinu í
fyrstunni, en nú væri hann kominn
á bragðið.
í Stykkishólmi er hörpudiskurinn
frystur, en að sögn Ágústar eru
íslenzkir sjávarréttir í Hafnarfirði
að fara út í niðursuðu á hörpu-
diski, sem verður þá fenginn í
Hvalfirði.
Ágúst kvaðst leggja áherzlu á að
hörpudisksmiðin væru vandmeð-
farin. Þar væru þeir heppnir að
njóta leiðsagnar Hrafnkels Eiríks-
sonar fiskifræðings. Hefði gott
samstarf orðið milli hans og sjó-
manna í Hólminum. Sagði Ágúst
að Ijóst væri að gáleysisleg nýting
skeljarinnar gæti auðveldlega
stefnt þessum fiskiðnaði í voða á
stuttum tíma.
,,Nú er framundan veiði á
hörpudiski í janúar og fram í
febrúarlok, en þá fara bátarnir í
bolfiskinn í 10 vikur eða svo og
taka sér þá frí. Þá tekur við veiði á
hörpudiski út árið. Um 70 sjómenn
hafa vinnu við veiðarnar og í landi
um 50 manns.
Stykkishólmur er einn þeirra
staða þar sem ekki hefur verið
ráðizt í togaraútgerð. Þar eru það
smábátarnir sem flytja björgina að
landi, og þá langmest skelina
góóu, hörpudiskinn.
i nýja hótelinu í Hólminum
— og miklar pantanir
þegar komnar fyrir
sumarið 1980
,,Hér ríkir ekkert nema bjart-
sýnin", sagði Guðrún Þorsteins-
dóttir, hótelstjóri í Hótel Stykkis-
hólmi í viðtali við Frjálsa verzlun.
,,Við eigum að vísu náðuga daga
sem stendur, en höfum talsvert að
gera við að undirbúa sumarið. Það
er augljóst að hér verður í nógu að
snúast, svo mikið er bókað fyrir-
fram. Langmest eru þetta Þjóð-
verjar, þeir hafa tímann fyrir sér,
þegar þeir ferðast, ólíkt okkur is-
lendingum. Hér koma oft innlendir
ferðamenn og verða undrandi,
þegar þeir heyra að ekki sé til
hótelherbergi".
Yfir vetrartímann er Hótel
Stykkishólmur, sem jafnframt er
félagsheimili Hólmara, sambyggt
skóla staðarins, að mestu ónotað,
nema helzt að vinnuflokkar fá inni.
Guðrún hótelstjóri sagði að síð-
asta sumar hefði verið hagstætt
rekstri hótelsins og seinni hluti
sumars hefði verið sérlega sólríkur
og skemmtilegur tími.
Hótel þeirra Stykkishólmsbúa
hefur þótt einstaklega fallegt og
þægilegt. Þar eru 25 tveggja
manna herbergi, öll með útvarpi
og baðherbergi. Fyrir einstakling
kostar herbergið 10.500 krónur en
fyrir tvo 14.900. í matsal er boðið
upp á veitingar, allt frá morgun-
verði til kvöldkaffis. Að sjálfsögðu
er hörpudiskurinn, skelfiskurinn
sem mestum ýfingum olli nýlega á
Snæfellsnesi, alltaf á matseðli
hótelsins. Sagði Guðrún að hann
væri snöggsoðinn í hvítvinssoði
og þætti hinn mesti herramanns-
matur.
Frá Stykkishólmi þykir gott að
ferðast til allra átta, en síðustu árin
hafa bátsferðirnar með Baldri yfir
Breiðafjörðinn til Brjánslækjar á
Barðaströnd þótt sérstaklega til-
komumiklar. i þeirri ferð er höfð
viðkoma í Flatey. Þá þykir mörgu
ferðafólki gaman að bregða sér í
bátsferðir um næsta umhverfi og
skoða eyjarnar. Nú eða þá að fara
á skak til að reyna að krækja í lúðu.
Guörún kvað umgengni alla um
hótelið og félagsheimilið til fyrir-
myndar. Fólk kynni greinilega vel
að meta þetta fallega hús og alla
innréttingu þess. Guðrún hefur
verið hótelstjóri í eitt ár, kom frá
Reykjavík og kann sérlega vel við
Hólmara.
63